Fréttablaðið - 20.12.2019, Side 36

Fréttablaðið - 20.12.2019, Side 36
Aðalpersónan í nýrri skáldsögu Kristínar Ómarsdóttur, Svana-fólkinu, er Elísabet Eva sem starfar við eftirlit hjá leynilegri sérdeild innanríkisráðuneytisins. Hún kynnist svanafólkinu, sem er bæði álftir og menn. Kristín segir að sérstök tilfinn- ing sé á bak við þessa bók. „Þetta er svipuð tilfinning og sú sem fylgir því að vera lítið barn, til dæmis á sunnudagsmorgni – þegar allir voru sofandi nema ég sjálf og mig langaði til að vekja fólkið. Það er þessi tilfinning, að langa til að vekja einhvern sem sefur og vera að bíða eftir því að hann vakni. Mér finnst ég hafa skrifað bókina á þess konar andartaki.“ Manngerð takmörk Bókin gerist í eftirlitsþjóðfélagi og Kristín er spurð hvort verkið sé þjóðfélagsádeila á okkar tíma. „Ég myndi segja það. Ég bý í okkar tímum og tengist ekki öðrum tímum. Það er margt við þetta þjóðfélag sem mér hugnast ekki, þótt mér hugnist margt. Ég skrifaði þessa bók vegna þess að ég gæti ekki útskýrt í fáum orðum hvað mér hugnast ekki. Þess vegna verður þetta að rúmlega 200 síðna bók.“ Erum við ekki alveg frjáls í þessari þjóðfélagsgerð? „Ég hef ekki fundið fyrir því að við séum frjáls. Ég velti því oft fyrir mér hvernig maður verði frjáls, en frelsisleitin er líka á mína eigin ábyrgð. Fólk er tilbúið að gefa mikið fyrir smá frelsi – og oftast er þetta litla frelsi dýru verði keypt – eins og bara til dæmis öll tæknin, jafn mikið og hún auðveldar mér lífið kostar hún sitt. En ég ætla samt ekki að sakna daganna þegar amma mín stóð yfir suðupottunum og afi minn bar óhreinan þvottinn upp í Laugar- dal og hreinan heim í hryllingsfrosti og fólk dó úr alls konar veikjum. En svo er ég sjálf líka íhaldssöm, rót- gróin, formföst og hefðbundin og þessir eiginleikar letja leit mína að einhverju öðru og öðruvísi. Það er einhver bilun í mér sjálfri eða auð- mýkt sem gerir að verkum að ég sætti mig við hin manngerðu tak- mörk.“ Það er sterkur ævintýrablær yfir bókinni. „Já, þessi saga er líka fyrst og fremst ævintýri. Ég get auðveld- lega sópað pólitíkinni í burtu og sagt: Þetta er bara ævintýri. Það er lesandans að ákveða hvort hann lesi pólitíska gagnrýni úr sögunni. Aðalpersónan er þátttakandi í eftir- litssamfélagi og ekki saklaus þátt- takandi, langt í frá,“ segir Kristín. Í dýragildru Kristín er nýkomin heim eftir að hafa dvalist erlendis, í París og Berl- ín, þessum skemmtilegu borgum. „Ég ætlaði fyrst að vera í tvo mánuði sem urðu fjórir. Svo kom ég heim og fór aftur út og var í burtu í aðra fjóra mánuði. Það er óskaplega gott að komast burt en það er líka gott að koma aftur. Hér á ég heima.“ Hvernig er að vera þátttakandi í jólabókaf lóðinu? „Það er skrýtið og tekur á taugarn- ar. Þetta er dálítið eins og að lenda í dýragildru. Ég datt ofan í holu og kemst ekki strax upp úr henni.“ Svanafólkið er tilnefnd til Fjöru- verðlaunanna, bókmenntaverð- launa kvenna. „Það er gaman,“ segir Kristín og bætir við: „Það sem skiptir mestu máli eru lesendur og viðbrögð þeirra. Ef þeir segjast hafa upplifað við lesturinn það sem ég var að reyna að kalla fram – án þess ég sé búin að kjafta neinu – finnst mér að mér hafi tekist ætlunarverk- ið. Um leið get ég byrjað að gleyma bókinni. Þegar maður er búinn að ljúka við bók þá kann maður hana utan að. Svo tekur tíma fyrir haus- inn að losa sig frá henni.“ Fyrst og fremst ævintýri Svanafólkið er ný skáldsaga eftir Kristínu Ómars- dóttur og gerist í eftirlitsþjóðfélagi. Segir það vera eins og að lenda í dýra- gildru að taka þátt í jólabókaflóðinu. Ég velti því oft fyrir mér hvernig maður verði frjáls, segir Kristín Ómarsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is BÆKUR Óstöðvandi Magnús Örn Helgason Útgefandi: Benedikt bókaútgáfa Fjöldi síðna: 208 Það verður ekki annað sagt en að bókin um Söru Björk Gunnarsdótt- ur, íþróttamann ársins og landsliðs- fyrirliða í knattspyrnu, er býsna vel lukkuð. Bókin er frum raun Magn úsar Arnar Helgasonar og óhætt að segja að verkið farist honum vel úr hendi. Þá er bókin vönduð að allri gerð og ríkulega mynd- skreytt. Sara Björk er ein mesta afrekskona kvennaknattspyrn- unnar á Íslandi f r á uppha f i og glæsileg fyrirmynd stúlkna og kvenna í k n a t t s p y r n - unni hér á landi. En bókin um hana f jallar um f leira en knattspyrnu. Í henni tekst vel að flétta saman glæsi- legan íþróttaferil hennar og líf ið utan vallarins. Árang- ur Söru Bjarkar hefur ekki náðst nema með mikilli elju og vinnu- semi allt frá unglings- árum. Greint er frá því í bókinni hve heimur atvinnumanns í knatt- spyrnu getur verið harður og miskunnar- laus. Það er oft kalt á toppnum eins og fram kemur í bókinni. Höf- undurinn reynir ekki að draga upp einhliða glansmynd af þessari einbeittu afrekskonu heldur skýrir einnig frá erfiðum tímum og áföllum. Það gefur bók- inni aukið gildi að þar er greint frá sorgum jafnt sem stórum sigrum á knattspyrnuvellinum. Þetta er í fyrsta skipti sem gefin er út bók um íslenska afreks- íþróttakonu. Það vekur nokkra furðu. Bókin um Söru Björk er því kærkomin og tímabær. Hún lýsir óstöðvandi íþróttakonu sem hefur lagt mikið á sig til að komast verð- skuldað á toppinn. Jón Þórisson NIÐURSTAÐA: Vönduð og vel skrifuð bók sem á erindi við allt áhugafólk um íþróttir sem og aðra. Óstöðvandi afrekskona Hvað? Hvenær? Hvar? Föstudagur hvar@frettabladid.is 20. DESEMBER 2019 Tónlist Hvað? Árlegir sólstöðutónleikar Hvenær? 12.00 Hvar? Hallgrímskirkja Schola Cantorum flytur hug- ljúfa jólatónlist úr ýmsum áttum. Einsöngvarar eru: Hildigunnur Einarsdóttir alt, Þorsteinn Freyr Sigurðsson tenór og Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir sópran. Hvað? Glitrandi jól Hvenær? 12.00 - 12.35 Hvar? Dómkirkjan Þríeykið Hólmfríður Jóhannes- dóttir mezzósópran, Victoria Tarevskaia sellóleikari og Julian Hewlett píanóleikari f lytja íslensk og amerísk jólalög. Miðaverð er 1.500 kr. við dyr án posa. Hvað? Sálmar og jólalög í sveiflu Hvenær? 12.00-13.00 Hvar? Kex hostel, Skúlagötu 28 Karl Olgeirsson og félagar flytja jóladjass af plötunni Svöl jól sem Jólakettir gáfu út fyrir rúmum 20 árum. Ásamt Karli, sem leikur á píanó og fleira, leika Gunnar Hrafnsson á kontrabassa, Snorri Sigurðarson á trompet og Erik Qvick leikur á trommur. Hvað? Jólatónleikar Fóstbræðra Hvenær? 19.30 Hvar? Langholtskirkja Yfirskrift tónleikanna er Stafa frá stjörnu. Á efnisskránni eru inn- lend og erlend kórverk, gömul og ný sem tengjast jólum og hinu eilífa ljósi. Einsöngvarar úr hópi kórmeðlima. Stjórnandi er Árni Harðarson og meðleikari Tómas Guðni Eggertsson. Miðaverð er 3.900 kr. Hvað? Síðbúnir útgáfutónleikar Hvenær? 20.00 Hvar? Hátíðarsalur MR Tónlistarkonan Ásta fagnar útgáfu fyrstu breiðskífu sinnar, Sykur- baðs. Sérstakur gestur er Una Torfadóttir. Hvað? Súrt og sætt, gamalt og nýtt Hvenær? 21.00 Hvar? Mengi, Óðinsgötu 2 Sölvi Kolbeinsson saxófónleikari og Magnús Trygvason Eliassen slagverksleikari efna til snar- stefjaðrar óvissuferðar. Miðaverð: 2.000 kr. Hvað? Mozart við kertaljós Hvenær? 21.00 Hvar? Kópavogskirkja Kammerhópurinn Camerarctica leikur. Hópinn skipa: Ármann Helgason klarínettuleikari, Hildi- gunnur Halldórsdóttir og Bryndís Pálsdóttir fiðluleikarar, Svava Bernharðsdóttir víóluleikari og Sigurður Halldórsson sellóleikari. Dans Hvað? Tangó praktika og milonga Hvenær? 21.00-24.00 Hvar? Kramhúsið, Skólavörðustíg Argentínskur tangó. Prakt ika og milonga . Dj er Heiðar og gestgjafi Gunna Beta. Milongan 1.000 kr. 2 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R24 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.