Fréttablaðið - 20.12.2019, Síða 22

Fréttablaðið - 20.12.2019, Síða 22
Snæfríður var að gefa út hand- bók um Kanarí en þangað leggja margir Íslendingar leið sína ár eftir ár. Þar er margt hægt að gera fyrir utan að liggja í sólbaði. Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Bók hennar sem kom út fyrir stuttu nefnist Komdu með til Kanarí þar sem Snæfríður segir frá ýmsu sem gaman er að upplifa sem ferðalangur, áhuga- verðum stöðum, matarmenningu og ævintýralegum stöðum. Flestir fara til Kanarí til að liggja í leti, sleikja sólina og hlaða batteríin. Það er vel hægt að gera það þótt maður ferðist aðeins um og skoði nýja staði. Þetta er fjórða handbók Snæfríðar, ein var um íbúða- skipti, önnur um Tenerife þar sem hún dvaldi með fjölskyldu sinni í nokkra mánuði, síðan kom krakkabók um Tenerife sem hún vann með dóttur sinni, Ragnheiði Ingu, og loks nú er það Kanarí sem hefur verið sólarstaður Íslendinga í áratugi, sérstaklega yfir vetrar- mánuðina. Saltnámur og kaffiakrar Þegar Snæfríður er spurð hvort það sé einhver munur á að dvelja á Kanarí eða Tenerife, svarar hún: „Eyjarnar eru um margt líkar en þó er munur á þeim. Á báðum stöðum er gullfalleg náttúra, fjölbreyttur gróður, næg afþreying fyrir alla aldurshópa og æðislegar göngu- leiðir. Tenerife er stærri eyja og þar er örlítið fjölbreyttara landslag. Á móti kemur að Gran Canaria hefur margt sem Tenerife hefur ekki, eins og til dæmis saltnámur, einu kaffi- akra Evrópu, stærri höfuðborg og friðaðar sandöldur. Tenerife hefur í staðinn til að mynda pýramída, hæsta fjall Spánar og hinn fræga Siam vatnsrennibrautagarð. Hvað varðar veðráttu, mat og mannlíf þá eru eyjarnar svipaðar. Kanaríbúar eru indælis fólk og það er gott að vera ferðamaður á báðum eyjum,“ segir hún. Snæfríður segir að hún og fjöl- skylda hennar hafi farið reglu- lega til Kanaríeyja, fyrst fyrir sjö árum. „Við höfum heimsótt Gran Canaria, Tenerife og Fuerte- ventura. Best þekkjum við Tenerife og sú eyja á ákveðinn stað í hjarta okkar því við bjuggum þar allan síðasta vetur. Ég er viss um að ég eigi eftir að heimsækja allar eyjarnar einhvern daginn en mér liggur ekkert á og það er mér ekkert sérstakt kappsmál að ná sem flestum eyjum. Mig langar eiginlega frekar að kafa dýpra í menningu heimamanna, kynnast til að mynda öllum hátíðunum betur og matarhefðum. Eins er ég með langan lista af gönguleiðum sem ég á enn eftir að ganga bæði á Gran Canaria og Tenerife,“ segir hún þegar hún er spurð hvort hún hafi heimsótt allar eyjarnar sjö en þær nefnast, fyrir utan Tenerife og Gran Canaria, Lanzarote, Fuerte- ventura, La Palma, La Gomera og El Hierro. Góðar gönguleiðir Þegar Snæfríður er beðin að mæla með einhverju sérstöku á Kanarí fyrir þá sem langar í ævintýri um jólin, segir hún að þau sé helst að finna utan hinna hefðbundnu ferðamannastaða. „Ég hvet fólk til þess að hreyfa sig um og sjá fleira en bara sundlaugarbakkann, upp- lifa náttúruna, pálmana, möndlu- trén og bananalaufin, litríkan arkitektúr og bragðgóðan mat heimamanna. Það liggja göngu- stígar þvers og kruss svo þrátt fyrir að eyjarnar séu vinsælar meðal ferðamanna þá má auðveldlega Jólunum vel varið á Kanarí Margir Íslendingar ætla að dvelja á Kanarí eða Tenerife um jólin. Þessar eyjar hafa verið gríðarlega vinsælar hjá Íslendingum. Snæfríður Ingadóttir hefur gefið út bækur um báðar þessar eyjar. Snæfríður ásamt eigin- manninum, Matthíasi og dætrunum Mar- gréti, Ragnheiði og Bryndísi, í Barranco de Guayadeque á Gran Canaria en þar er fjöldi hella sem fólk býr enn í. Snæfríður og fjölskylda ferðaðist um húsbíl um Tenerife um síðustu páska. Hér eru þau í Teide þjóðgarðinum en þar er hæsta fjall Spánar að finna. Mæðgur á Maspalomas-sandöldunum sem hafa verið friðaðar frá 1987. gleyma sér einn á göngu í fagurri náttúru. Um síðustu páska ferðuðumst við um Ten erife á húsbíl, það var skemmtilegt og eftirminnilegt ævintýri sem vel er hægt að mæla með fyrir ævintýraglaða og vana ökumenn. Það var mjög notalegt að leggja bílnum við sjóinn. Fara svo bara í sundfötin í bílnum og drekka morgunkaffið á ströndinni. Í þessari ferð héldum við okkur ekki bara við ströndina heldur keyrðum upp í Teide-þjóðgarðinn og freistuðum þess að sjá stjörn- urnar en sagt er að einn besti stjörnuskoðunarstaður eyjunnar sé þar. Eins er vert að benda fólki á að það er ódýrt að hoppa á milli eyjanna svo auðveldlega má heim- sækja fleiri en eina eyju á ferða- laginu.“ Brimbretti eða köfun Spænsk ferðamálayfirvöld á Kanarí benda á að skemmtilegt sé að fara í hjólaferðir um eyjuna. Hægt er að leigja hjól. Þau segja líka að það sé fullkomið að gifta sig á eyjunni. Á Kanarí skín sólin meira en 300 daga á ári svo veðrið er alltaf gott. Mælt er með að gifta sig á ströndinni þegar sólin er að setjast. Á Gran Canaria eru meira en 60 km af fallegri strönd, margir glæsilegir golfvellir, hótel sem bjóða upp á spa-aðstöðu auk þess sem hægt er að fara í bátsferðir, kafa í hlýjum sjónum eða fara á brimbretti. Ótrú- legar gönguleiðir eru í nágrenninu og mjög gaman að heimsækja lítil sveitaþorp þar sem innfæddir setja sinn svip á mat og umhverfi. Snæ- fríður bendir á nokkra góða staði í bók sinni. Tilboð á tapasréttum Það er líka skemmtilegt að koma til borgarinnar Las Palmas. Þar er gamall bær sem vert er að skoða. Á hverju fimmtudagskvöld fyllist gamli bærinn, sem nefnist Vegueta, af heimamönnum á aldrinum 20-30 ára. Vinsælt er að fá sér tapas á einhverju veitingahúsinu og úr nægu er að velja. Barborðin er hlaðin tapasréttum og fólk fer gjarnan á milli þeirra og prófar einn eða tvo bita á hverjum stað. Tapasbitarnir kosta frá einni upp í þrjár evrur. Þótt um 4,5 milljónir ferðamanna komi til Kanarí árlega koma fáir þeirra í tapasveisluna. Það er hins vegar skemmtileg upp- lifun. Réttirnir geta verið kartöflu- eggjakaka, spænsk þurrskinka, steiktir sveppir með ferskum jurtum og hvítlauk, chorizo-pylsur, kartöflukrókettur, rækjur í heitri hvítlauksolíu, ansjósur sem hafa verið fylltar með tómötum, egg og beikon, eða alls kyns kjöt í fíló- deigi. Tapastilboðin á fimmtudög- um hófust árið 2011 vegna þess að barirnir í gamla bænum voru ekki nægilega vel sóttir nema um helgar. Þetta varð strax mjög vinsælt. Það er sem sagt ýmislegt hægt að bralla á Kanarí og sögusagnir um að þar séu bara öldungar eru rangar. Fólk á öllum aldri nýtur lífsins í þessari suðrænu paradís. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.