Fréttablaðið - 20.12.2019, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 20.12.2019, Blaðsíða 42
Birting grunnlýsingar Almenna leigufélagið ehf., kt. 611013-0350, Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, Íslandi hefur birt uppfærða grunnlýsingu í tengslum við 30.000.000.000 króna útgáfuramma skuldabréfa og víxla félagsins. Grunnlýsingin sem er dagsett 19. desember 2019 hefur verið staðfest af Fjármálaeftirlitinu. Grunnlýsingin er birt vegna fyrirhugaðrar umsóknar félagsins um töku skuldabréfa og víxla félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Grunnlýsingin er á íslensku og er birt á rafrænu formi á vef Almenna leigufélagsins ehf., http://www.al.is/#!/investors. Útprentuð eintök af grunnlýsingunni má einnig nálgast, að kostnaðar- lausu, á skrifstofu Almenna leigufélagsins ehf., að Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, á gildistíma grunnlýsingarinnar. Nánari upplýsingar veitir: María Björk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri maria@al.is, s: 519 6450 / 774 0604 Reykjavík, 20. desember 2019 La ngþr áða r sý ning a r hófust loksins á níunda og allra síðasta kaf la Stjörnustríðsbálksins sem hófst í miðjum brjál-æðislegum geimhasar í fjórða hlutanum, sem kenndur er við Nýja von, árið 1977. „Ég beið frá klukkan fjögur til níu um kvöldið í Nýja bíói árið 1978 þegar New Hope var sýnd. Það var uppselt á sýningarnar klukkan fimm og sjö og þá beið maður bara eftir næstu,“ segir Grímur Atlason, þroskaþjálfi og tónleikahaldari með meiru. Þá var hann alveg á hárréttum aldri til þess að heillast og verða fyrir varanlegum áhrifum af ótrú- legri geimóperu George Lucas en nú mætti hann til leiks ásamt Emil, syni sínum, á þriggja mynda mara- þon í Kringlubíói sem lauk með nýju myndinni. The Rise of Skywalker er vita- skuld þegar orðin umdeild og sitt sýnist hverjum en Grímur tilheyrir einu kynslóðinni sem virkilega skilur og skynjar Star Wars rétt og er því í meira lagi marktækur þegar hann kveður upp sinn gagnorða dóm: „Stórkostlegt meistaraverk!“ toti@frettabladid.is Stórkostlegt meistaraverk!  Titringurinn í Mættinum hlýtur að hafa fundist á jarðskjálftamælum þegar æstustu Star Wars-aðdáendur landsins ruddust í bíó til að sjá Stjörnustríðsmyndina The Rise of Skywalker fyrstir íslenskra nörda. Kátar kempur af seinni kynslóðum í góðum félagsskap góðu vondu gauranna, góðverkasnatanna sem kenna sig við 501-herdeildina. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Varst þú ekki dauður? Pálmi keisari, sá fúli raftur, er upp risinn. Gemmér fimmu! Stormsveitarmenn Keisarans hittu aldrei þessu vant í mark þegar þeir gáfu fimmur. Grímur Atlason, ákafur fulltrúi Star Wars-kynslóðarinn- ar, vandar sig við uppeldið og bauð Emil til helgistundar. Save the Children á Íslandi 2 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R30 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.