Skessuhorn


Skessuhorn - 24.04.2019, Síða 26

Skessuhorn - 24.04.2019, Síða 26
MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 201926 Snæfellingar máttu játa sig sigraða gegn KB þegar liðin mættust í fyrstu umferð Mjólkur- bikars karla í knattspyrnu. Leikið var á Leikn- isvelli á mánudaginn í síðustu viku. Stykkis- hólmsliðið fékk óskabyrjun í leiknum þegar Matteo Tuta kom Snæfellingum yfir á 9. mín- útu leiksins. Þeir voru hins vegar ekki lengi í forystu því Praveen Gurung jafnaði metin fyrir KB á 15. mínútu. Fleiri mörk voru ekki skoruðu í fyrri hálfleik og staðan því 1-1 þeg- ar liðin gengu til búningsherbergja sinna í hléinu. Síðari hálfleikur var ekki gamall þegar næsta mark leit dagsins ljós. Þar var á ferðinni Eiður Bragi Benediktsson sem kom KB í 2-1 á 49. mínútu leiksins. Fleiri mörk voru ekki skor- uð í leiknum og Snæfellingar hafa því lokið þátttöku sinni í Mjólkurbikar karla að þessu sinni. kgk Snæfell úr leik í bikarnum MT: Stefán Gísli með verðlauna- gripinn síðastliðinn sunnudag. Hvað ætlar þú að gera á sumar- daginn fyrsta? Spurni g vikunnar (Spurt á Akranesi) Jenný Sólborg Bara að liggja í leti. Guðbrandur Þorvaldsson Ég ætla að vera heima. Þorsteinn Eggertsson Ekkert sérstakt. Ætli ég verði ekki bara í sauðburði. Eygló Anna Sigurðardóttir Ég ætla bara að slaka á og njóta veðursins. Kristín Jónsdóttir Bara vera heima, kannski fá mér göngutúr. Það voru ekki allir sem lágu og borðuðu súkkulaði um páskana því tæplega 50 keppendur í Crossfit tóku þátt í móti sem fram fór í íþróttahúsi Grundar- fjarðar laugardaginn 20. apríl. Það voru þau Aldís Ásgeirsdóttir og Leifur Harðarson sem sáu um skipulagningu mótsins en kepp- endur voru frá Grundarfirði, Snæfellsbæ og Stykkishólmi. Góð stemning var í íþróttahúsinu og fjölmargir áhorfendur mættir til að hvetja sitt fólk. Líklega hafa einhverjir keppendur leyft sé smá súkkulaði á páskadag eftir átökin á laugardeginum. tfk Víkingur Ólafsvík átti ekki sinn besta dag þegar liðið mætti Úlf- unum á heimavelli í annarri um- ferð Mjólkurbikarsins í knattspyrnu á skírdag. Leikurinn fór vel af stað og skoraði Pétur Steinar Jóhanns- son mark strax á 2. mínútu leiks- ins. Emmanuel Eli Keke fékk svo rautt spjald á 20. mínútu og jöfnuðu gestirnir strax í kjölfar þess. Harley Willard kom svo heimamönnum yfir á 34. mínútu og staðan því 2 - 1 í hálfleik. Seinni hálfleikurinn byrj- aði illa fyrir heimamenn en Úlfarnir jöfnðu á 49. mínútu og komust svo yfir fimm mínútum síðar. Víkingar áttu engin svör við þessu og Úlfarn- ir skoruðu aftur á 76. og 79. mín- útu og endaði leikurinn með 2-6 sigri. Langt er síðan Víkingar hafa tapað svona stórt á heimavelli. Vík- ingur hefur svo leik í Inkasso deild- inni þegar liðið tekur á móti Gróttu sunnudaginn 5. maí. þa Landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar verður haldið á Eg- ilsstöðum dagana 17. og 18. maí næstkomandi. Að venju má ætla að nokkur hundruð manns taki þátt í þinginu, björgunarleikum og árshátíð Landsbjargar sem fram fer á laugardeginum. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að und- irbúningur fyrir þingið sé í full- um gangi. Meðal annars skráning í björgunarleikana. Þá hefur upp- stillingarnefnd kynnt framboðs- lista fyrir komandi kosningar til stjórnar. Smári Sigurðsson for- maður gefur ekki kost á sér til end- urkjörs í félaginu og hafa þrír boð- ið sig fram. Meðal þeirra er Þór Þorsteinsson frá Skálpastöðum í Lundarreykjadal, fyrrverandi for- maður björgunarsveitarinnar Oks í Borgarfirði og núverandi varafor- maður Landsbjargar. Aðrir í for- mannsframboði eru Guðjón Guð- mundsson og Þorsteinn Þorkels- son. Til stjórnar í Landsbjörgu bjóða sig fram eftirtaldir: Auður Yngva- dóttir, Borghildur Fjóla Kristjáns- dóttir, Gísli V. Sigurðsson, Guðjón Guðmundsson, Hallgrímur Óli Guðmundsson, Hildur Sigfúsdótt- ir, Otti Rafn Sigmarsson, Valur S. Valgeirsson, Þorsteinn Þorkelsson og Þór Þorsteinsson. mm Skagamenn töpuðu í úrslitaleiknum Skagamenn luku keppni í 2. deild karla í körfuknattleik á þriðjudagskvöld þegar þeir mættu Álftnesingum í úrslitaleik deildarinn- ar. Leikið var í Forsetahöllinni á Álftanesi. Jafnræði var með liðunum í upphafsfjórð- ungnum. Í öðrum leikhluta náðu Skaga- menn góðri forystu en Álftnesingar komu til baka. Undir lok fyrri hálfleiksins og í upphafi þriðja leikhluta þriðja réðu heimamenn lög- um og lofum á vellinum. Þeir náðu á þessum kafla 20 stiga forskot og gáfu aldrei færi á sér það sem eftir lifði leiks. Að lokum sigruðu Álftnesingar með 123 stigum gegn 100 stig- um ÍA. Það er því ljóst að lið ÍA mun mæta til leiks í 2. deildinni á nýjan leik á næsta keppnistímabili. kgk Kristín Sif Íslands- meistari í boxi Borgnesingurinn og hnefaleikakonan Kristín Sif Björgvinsdóttir tryggði sér Íslandsmeist- aratitilinn í hnefaleikum á Íslandsmeistara- mótinu sem fram fór í Reykjanesbæ fyrir rúmri viku síðan. Kristín Sif keppti í -75 kílóa flokki kvenna og mætti þar Hildi Ósk Indriða- dóttur. Eftir einróma dómaákvörðun var það Kristin Sif sem stóð uppi sem sigurvegari. arg Kristín Sif Íslandsmeistari eftir einróma dómaraákvörðun. Ljósm. mmafrettir.is. Keppendur ásamt mótshöldurum og dómurum. Crossfit mót um páskana Víkingur sleginn út úr bikarnum Þór í framboði til formanns Landsbjargar Þór Þorsteinsson.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.