Skessuhorn


Skessuhorn - 30.01.2019, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 30.01.2019, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 5. tbl. 22. árg. 30. janúar 2019 - kr. 750 í lausasölu arionbanki.is Það tekur aðeins örfáar mínútur að skrá sig í viðskipti hjá Arion banka. Af því að okkar lausnir snúast um tíma og þægindi. Þægilegri bankaþjónusta gefur þér tíma Gildir alla daga frá 11–16 ef þú sækir 1.000 KR. Lítil pizza af matseðli 0,5 lítra gos 1.500 KR. Pizza af matseðli, miðstærð 0,5 lítra gos Landnámssetur í febrúar sími 437-1600 „Farðu á þinn stað“ Í flutningi Tedda löggu föstudaginn 1. febrúar kl. 20:00 Næstu sýningar laugardaginn 16. febrúar kl. 16:00 laugardaginn 23. febrúar kl. 20:00 sunnudaginn 24. febrúar kl. 16:00 Auður djúpúðga Sýningar laugardaginn 2. febrúar kl. 20:00 sunnudaginn 3. febrúar kl. 16:00 Nánar um dagskrá og miðasala á landnam.is/vidburdir UPPSELT 20 ÁR Bjarni Þór Bjarnason, listamaður og lífskúnstner, var um liðna helgi útnefndur Skagamaður ársins 2018. Valið fer þannig fram að tilnefningum er safnað og bæjarráð staðfestir niðurstöðuna. Elsa Lára Arnardóttir, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs, afhenti Bjarna Þór blóm og verðlaunagrip eftir Dýrfinnu Torfadóttur gullsmið. Sjá nánar bls. 16. Ljósm. Gunnhildur Lind Hansdóttir. Skagamaður ársins Umferðaróhöpp sem rekja má til hálku og erfiðrar færðar voru áber- andi í dagbók Lögreglunnar á Vest- urlandi í síðustu viku. Þá var eitt- hvað um minniháttar meiðsli en engin alvarleg. Miðvikudaginn 23. janúar varð minniháttar árekstur á Borgarbraut í Borgarnesi, en eng- in slys á fólki. Sama dag, rétt fyrir miðnætti, fór rúta út af á Dragavegi í Skorradal. Alls voru 18 manns í bíln- um en enginn slasaðist. Á fimmtu- dag missti ökumaður stjórn á bíl sínum á Akrafjallsvegi með þeim af- leiðingum að hann fór út af og valt eina veltu. Ökumaðurinn var flutt- ur til skoðunar á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi en reyndist óslasaður. Sama dag varð árekstur í Dölum. Hliðarhleri á vörubíl opn- aðist á ferð og hlerinn lenti framan á vörubíl sem ekið var úr gagnstæðri átt. Ökumaður þeirrar bifreiðar fékk skurð í andlit en slapp annars óskaddaður. Á föstudag fór rúta út af á bíla- stæðinu við Grábrók í Borgarfirði. Engin slasaðist. Önnur rúta kom og sótti fólkið og síðan var kallað eft- ir aðstoð við að ná bifreiðinni aftur upp á bílastæðið. Útafakstur varð í erfiðu færi á Innnesvegi á móts við Miðgarð í Hvalfjarðarsveit. Öku- maður náði að losa bílinn sjálfur. Ófært var á Bröttubrekku laust fyrir miðnætti á föstudagskvöld. Björgun- arsveitin Heiðar úr Borgarfirði að- stoðaði ökumenn sem höfðu fest bíla sína vegna veðurs fram eftir nóttu. Aðfararnótt mánudags varð umferð- aróhapp í Reykholti. Ferðamaður ók inn í skafl á veginum, missti stjórn á bílnum í hjólförum með þeim afleið- ingum að hann lenti framan á öðrum bíl, en engin meiðsl urðu á fólki. Lögregla vill hvetja fólk til að fara sérstaklega varlega í umferðinni á þessum árstíma, þegar allra veðra er von og myrkur stærstan hluta sólar- hringsins. kgk Mikið um óhöpp og meiðsli vegna færðar Frá óhappi við Glerárskóga í Dölum. Hurð á flutningakassa vörubifreiðar hafði opnast með þeim afleiðingum að hún slóst harkalega utan í stýrishús vöru- bifreiðar sem kom á móti. Framrúðan bílstjóramegin mölbrotnaði við höggið og rigndi glerbrotum yfir bílstjórann sem skarst í andliti. Við óhappið missti bíl- stjórinn aftanívagninn út af veginum og þurfti aðstoð tækja og mannskapar til að ná honum aftur upp á veginn. Ljósm. sm.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.