Skessuhorn


Skessuhorn - 30.01.2019, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 30.01.2019, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2019 17 www.skessuhorn.is Fréttaveita Vesturlands VISKUKÝRIN 2019 Hin árlega spurningakeppni Nemendafélags Landbúnaðarháskóla Íslands verður haldin í matsal skólans á Hvanneyri fimmtudaginn 7. febrúar og hefst keppnin klukkan 20:00. Nemendur, starfsfólk og heimamenn úr Borgarbyggð munu etja keppni. Spyrill er Logi Bergmann. Skemmtiatriði og sælgætissala í hléi. Aðgangseyrir er 1.000 krónur en frítt er fyrir 12 ára og yngri. Athugið að Viskukýrin er áfengislaus skemmtun! KM þjónustan í Búðardal óskar eftir að ráða starfsmann á verkstæði og í dráttarbílaþjónustu. Við leitum að vandvirkum og samviskusömum einstaklingi í fullt starf. Almenn enskukunnátta æskileg. Nánari upplýsingar hjá Karli í síma 895-6677. ATVINNA ALZHEIMERKAFFI  Í BORGARBYGGÐ F I M M T U D A G I N N   7 .  F E B R Ú A R  K L . 1 7 : 0 0  - 1 8 : 3 0   í F é l a g s b æ , B o r g a r b r a u t 4  Berglind Indriðadóttir iðjuþjálfi hjá Farsælli öldrun - Þekkingarmiðstöð, kemur og fjallar um mikilvægi virkni í daglegu lífi með heilabilun.   Kaffiveitingar, söngur og gleði. Vonumst til að sjá sem flesta, Guðný & Ólöf, tenglar Alzheimersamtakanna í Borgarbyggð. • • • •• • • Nánari upplýsingar: www.alzheimer.is & alzheimer@alzheimer.is Íþróttafólk úr Snæfellsbæ lætur að sér kveða á mörgum sviðum íþrótta þessa dagana. Um síðustu helgi tók Marteinn Gíslason, sem fæddur er í Ólafsvík, þátt í Reykjavík Inter- national Games í rafíþróttum. Þar keppti hann ásamt liði sínu í tölvu- leiknum League of Legends. Gerðu þeir sér lítið fyrir og unnu á mótinu en sigur færði þeim þátttökurétt á evrópumótinu Dreamhack sem fram fer í febrúar, þar sem spilað verður á sviði. Á myndinni er Marteinn ásamt liðsfélögum sínum. Frá vinstri: Mikael Dagur, Marteinn, Aron Gabríel, Nikola Remic, Thomas Samúel og Arnar Snæland. þa Sigruðu á rafíþróttamóti Leikskólinn Krílakot í Snæfellsbæ hélt upp á 40 ára afmæli sitt á síð- asta ári. Af því tilefni færði Kven- félag Ólafsvíkur skólanum nýverið gjöf. Krílakot vinnur með kennslu- aðferðina Leikur að læra en það er kennsluaðferð þar sem börnum er kennt í gegnum leiki, hreyfingu og skynjun á skipulagðan og lífleg- an hátt. Færði Kvenfélagið þeim því Morphun - skólasett sem sam- anstendur af kubbum, bæði með bókstöfum og myndum, sem nýt- ast mun vel í starfi leikskólans. Voru bæði starfsfólk og börnin spennt að byrja að nota kubbana. Það voru þær Steiney Kristín Ólafsdóttir og Sóley Jónsdóttir frá Kvenfélagi Ólafsvíkur sem afhentu Ingigerði Stefánsdótt- ur leikskólastjóra og börnunum á rauðu deildinni gjöfina. þa Krílakoti færð gjöf Félag nýrra Íslendinga gengst fyr- ir árlegri þjóðahátíð sunnudag- inn 3. febrúar klukkan 14-17. Há- tíðin verður að þessu sinni hald- in í Hjálmakletti í Borgarnesi og eru allir velkomnir og aðgangur ókeypis. Sem fyrr er það Pauline McCarthy, formaður Félags nýrra Íslendinga, sem skipuleggur hátíð- ina. „Það verður fólk frá tuttugu löndum sem kemur og kynnir sín þjóðlönd með mati og skemmtiat- riðum. Flestir gefa sýnishorn af mat frá þeirra þjóðlöndum en einnig verður hægt að kaupa mat frá Suð- ur-Kóreu, Filippseyjum, Thailandi og Rúmeníu. Flestir af sýnendum eru búsettir hér á Vesturlandi,“ seg- ir Pauline í samtali við Skessuhorn. Gunnlaugur A Júlíusson sveitar- stjóri mun setja hátíðina en heið- ursgestur verður Michael Devin, sendiherra Breta hér á landi. Geir Ólafsson verður veislustjóri og stýrir samkomunni, en auk hans verður boðið upp á keltneska tón- list, hin alþjóðlega hljómsveit Skor- steinn spilar, sýndur verður Thai- dans, blásið í Digeridoo lúður, spil- að á afrískar trommur auk þess sem íslensk þjóðlagatónlist verður flutt. „Það verður margt í gangi og ég hvet alla sem vettlingi geta vald- ið að koma og njóta með okkur; smakka góðan mat og hlýða á tón- list frá ýmsum heimshornum,“ seg- ir Pauline. mm Þjóðahátíð haldin í Borgarnesi á sunnudaginn

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.