Skessuhorn - 30.01.2019, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 20192
Facbook síðu deildarinnar. „Skor-
um við á fólk að fara inn á síðuna
og byrja að fylgjast með. Einnig er
deildin með snapchat sem gaman
að fylgjast með. Hittumst svo hress
og kát föstudaginn 8. febrúar þeg-
ar keppt verður í slaktaumatölti og
liðin verða kynnt,“ segir í tilkynn-
ingu.
Dagskrá Vesturlandsdeildarinn-
ar 2019:
8. febrúar - Slaktaumatölt
22. febrúar - Fjórgangur
6. mars - Gæðingafimi
22. mars - Fimmgangur
5. apríl - tölt og skeið.
mm
Þar er frost í kortunum og búast
má við að kuldaboli bíti fast næstu
daga. Ástæða er til að minna þá sem
verða á ferðinni utandyra að klæða
sig vel, draga fram lopaflíkurnar,
bæði föðurlandið og ullarpeysuna,
áður en haldið er út úr húsi.
Á morgun, fimmtudag, er útlit fyr-
ir norðan 8-15 m/s og éljagang, en
þurrt og bjart sunnan til á landinu.
Frost á bilinu 2 til 12 stig. Norða-
nátt á föstudag og él fyrir norðan,
en víða léttskýjað á Suður- og Vest-
urlandi. Herðir á frosti. Breytileg átt
og bjart með köflum á laugardag,
en sums staðar él með ströndinni.
Kalt í veðri. Vaxandi austanátt sunn-
an heiða um kvöldið með snjókomu
og minnkandi frosti. Á sunnudag
er útlit fyrir breytilega átt og snjó-
komu eða él með köflum. Styttir
upp víða þegar líður á daginn. Frost
2 til 10 stig. Vaxandi suðaustanátt
á mánudag, með slyddu eða snjó-
komu á sunnanverðu landinu. Þurrt
norðan heiða.
„Hvernig finnst eggin best mat-
reidd?“ var spurningin sem varpað
var fram á vef Skessuhorns í vikunni
sem leið. „Linsoðin“ sögðu flest-
ir, eða 42%, „steikt“ sögðu 22% og
„harðsoðin“ sögðu 21%. Valmögu-
leikarnir „hrærð“ og „eggjakaka“
fengu 6% hvor, 2% sögðu „hleypt“
en 1% svöruðu „hrá“ og 1% svar-
enda segjast ekki borða egg, líklega
vegna þess að þeir kunna ekki að
elda þau.
Í næstu viku er spurt:
Hvað er best að gera við snjóinn?
Kristjana Þórarinsdóttir lét af störf-
um sem landpóstur sunnan Skarðs-
heiðar á áramótum, eftir fjörtíu ára
þjónustu við íbúa Hvalfjarðarsveitar.
Rætt er við Kristjönu í Skessuhorni
vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Verslunin Nína
flytur ofar í
götuna
AKRANES: Hjónin Heim-
ir Jónasson og Helga Dís
Daníelsdóttir eiga og reka
verslunina Nínu á Akranesi.
Verslunin hefur verið til húsa
við Kirkjubraut 4-6 frá árinu
1982 en nú eru þau Heimir
og Helga búin að festa kaup
á húsnæði ofar í götunni,
við Kirkjubraut 12, þar sem
verslunin Ozone var áður
til húsa. „Þetta er bara rosa-
lega flott húsnæði sem var til
sölu þarna ofar í götunni og
við ákváðum bara að slá til og
kaupa það,“ segir Heimir í
samtali við Skessuhorn. Ekki
liggur fyrir hvenær verslunin
verður flutt en að sögn Heim-
is stefna þau á að flytja eins
fljótt og kostur er. Aðspurður
segir hann engar breytingar
vera framundan á vöruúrvali.
„Við erum bara að flytja. Það
verða engar frekari breyting-
ar og við höldum áfram að
vera með sama góða vöruúr-
valið,“ segir Heimir.
-arg
Hrossastóð á
vegum
VESTURLAND: Nokk-
ur mál tengd hrossum voru
bókuð í dagbók lögreglunn-
ar á Vesturlandi í vikunni sem
leið. Ung manneskja datt af
hestbaki í reiðhöllinni í Stað-
arhúsum í Borgarhreppi. Var
hún flutt með sjúkrabíl und-
ir læknishendur en meiðsli
hennar eru ekki talin alvarleg.
Þrisvar sinnum í vikunni sem
leið var lögreglu gert við-
vart um hrossastóð á vegum.
Tilkynnt var um tólf hesta
á miðjum vegi á Snæfells-
nesvegi við Kverná. Einn-
ig var tilkynnt um stóð ná-
lægt Sveinatungu í Norður-
árdal og síðan klukkan sex að
morgni mánudags á þjóðveg-
inum í Dölum. Lögreglan á
Vesturlandi telur að hestarn-
ir hafi gengið á snjó yfir girð-
ingar sem víða eru komnar
á kaf og þannig sloppið út á
vegina. Telur lögregla rétt að
vara fólk við þessu því mikil
hætta getur skapast af stór-
gripum úti á þjóðvegum.
Lögregla vill jafnframt minna
bændur og hestamenn á að
hafa auga með þessu.
-kgk
Viskukýrin
framundan
HVANNEYRI: Viskukýrin
2019 verður haldin á Hvann-
eyri fimmtudaginn 7. febrú-
ar næstkomandi. Húsið opn-
ar klukkan 19:30 en í hinni
árlegu keppni munu nem-
endur, starfsfólk og heima-
menn etja kappi í stór-
skemmtilegum spurninga-
leik. Spyrill kvöldsins verð-
ur að vanda Logi Bergmann
Eiðsson. Viska fimmtánda
verður á sínum stað í anddyri
skólans og býður gesti vel-
komna. Aðgangseyrir verður
1000 krónur en frítt fyrir 12
ára og yngri.
-mm
Bæjarráð Akraneskaupstaðar fjallaði
á síðasta fundi sínum um starfsemi
embættis Sýslumanns Vesturlands
á Akranesi. Ítrekaði ráðið athuga-
semdir sínar við þjónustustig sýslu-
skrifstofunnar á Akranesi. Telur ráð-
ið viðveru löglærðs fulltrúa sýslu-
manns of litla og skorar á Sigríði Á.
Andersen dómsmálaráðherra að taf-
arlaust verði ráðin bót í máli. „Bæj-
arráð telur óásættanlegt með öllu að
íbúar á Akranesi, sem telja nær helm-
ing allra íbúa á Vesturlandi, þurfi að
sæta því að eiga einungis aðgang að
löglærðum fulltrúa á sýsluskrifstof-
unni einn dag í viku hverri og ef sá
dagur fellur niður þurfa íbúar jafnvel
að bíða í tvær vikur eftir að eiga kost
á að hitta löglærðan fulltrúa. Bæjar-
ráð krefst tafarlausra úrbóta,“ segir í
bókun ráðsins.
Í bréfi til dómsmálaráðherra, sem
lagt var fram á fundinum, minnir
bæjarráð jafnframt á að Akurnes-
ingar hafi frá árinu 2014 mótmælt
því harðlega að hvorki sýslumað-
ur né lögreglustjóri séu staðsettir
á Akranesi „og þeirri staðreynd að
gengið var framhjá stærsta byggða-
kjarna umdæmisins við val á stað-
setningu umræddra embætta. Nú
síðast í bréfi dagsettu 1. mars 2018
sem sent var ráðherra í tilefni upp-
sagna starfsfólks á starfsstöð sýslu-
mannsins á Akranesi og fólu það
m.a. í sér að ekki yrði lengur föst
starfsstöð löglærðs fulltrúa á Akra-
nesi með tilheyrandi þjónustu-
skerðingu við íbúa og lögaðila,“
segir í bréfi ráðsins. „Yfirlýsingar
um að þjónustuþörf yrði mætt með
fastri viðveru löglærðs fulltrúa hafa
ekki gengið eftir þrátt fyrir að bæj-
aryfirvöld hafi vakið athygli sýslu-
manns á vanefndum loforða þar
um.“ kgk
Segja viðveru löglærðra fulltrúa ekki nógu mikla
Bæjarráð gerir athugasemdir við þjónustustig sýsluskrifstofunnar á Akranesi
Skrifstofa Sýslumannsins á Vesturlandi á Akranesi er að Stillholti 16-18.
Ljósm. úr safni.
Ný styttist í að keppni í Vestur-
landsdeildinni í hestaíþróttum
2019 hefjist. Ný lið taka þátt að
þessu sinni með fullt af nýjum þátt-
takendum. Hefur deildin aldrei
verið sterkari, að sögn mótshald-
ara. Byrjað er að kynna liðin inn á
Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum hefst í febrúar
Snjónum kyngdi niður í
Grundarfirði í síðustu viku,
nóg til þess að hægt var að
troða hann í skíðabrekkun-
um og kveikja á lyftunum.
Rut Rúnarsdóttir, formað-
ur Skíðasvæðis Snæfells-
ness sagði mikla eftirvænt-
ingu hafa búið um sig enda
voru margir sem nýttu sér
það að spenna á sig skíðin
um helgina. Tómas Freyr
Kristjánsson fréttaritari
Skessuhorns tók meðfylgj-
andi myndir í brekkunni á
mánudaginn.
arg
Skíðabrekkan í Grundarfirði opnuð