Skessuhorn - 26.06.2019, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 26. JúNÍ 20196
Kona flutt með
sjúkrabíl
SNÆFELLSBÆR: Kall-
að var eftir aðstoð viðbragðs-
aðila vegna konu sem slasaðist
við Raufeldargjá um tveimur
kílómetrum austan við Arn-
arstapa á sunnudaginn. Kon-
an var sennilega brotin á ökkla
og var hún borin niður og flutt
með sjúkrabíl til Reykjavíkur.
–arg
Árekstrar og
stungið af
VESTURLAND: Tvær til-
kynningar bárust lögreglu í
vikunni um að ekið hefði ver-
ið á bíla og stungið af í vik-
unni sem leið. Bakkað var á bíl
við Arion banka í Borgarnesi
á fimmtudaginn og farið af
vettvangi. Ekki hefur tekist að
hafa uppi á ökumanninum og
málið er í rannsókn. Ekið var á
mannlausan bíl á bílastæði við
Kirkjubraut 54 á Akranesi á
föstudaginn. Afturhorn á bíln-
um var tjónað og er málið til
rannsóknar. –arg
Akstur undir
áhrifum
AKRANES: Ökumaður var
tekinn grunaður fyrir akstur
undir áhrifum ávana- og fíkni-
efna á laugardag. Notaði lög-
reglan strokpróf sem sýndi já-
kvæð merki svo viðkomandi
var handtekinn. Ökumað-
ur heimilaði leit í bílnum og
fannst við hana hvítt duft og
lyfseðilskyld lyf. Málið er til
rannsóknar. –arg
Vélarvana bátur
HVALFJARÐARSVEIT:
Tilkynnt var um vélarvana
gúmmíbát á Hvalfirði, til móts
við Hvalfjarðargöng Akranes-
megin um miðjan dag á föstu-
dag. Félagar í sjóbjörgunar-
flokki Björgunarfélags Akra-
ness fóru til aðstoðar. –arg
Slys í sundi
AKRANES: Slys varð í sund-
lauginni við Jaðarsbakka á
Akranesi þegar tvo börn rák-
ust saman í rennibraut. Sjö
ára drengur fór með andlitið á
hnakka annars barns svo nefið
bólgnaði og blæddi. Sjúkrabíll
var kallaður til og drengurinn
fluttur til aðhlynningar. –arg
Ökumaður án
réttinda
VESTURLAND: Tilkynnt
var um mann á bifhjóli án
ökuréttinda á Vesturlandi á
fimmtudagskvöldið. Reynd-
ist maðurinn hafa vera svipt-
ur ökuréttindum og á óskráðu
og ótryggðu bifhjóli að auki.
–arg
Kappakstur í
göngunum
HVALFJARÐARSVEIT:
Tilkynnt var um kappakstur í
Hvalfjarðargöngum á fimmtu-
dagskvöldið. Lögreglan mætti
bílunum við Akrafjall á 100
km/klst þar sem leyfilegt er
að keyra á 90 km/klst. Málið
verður skoðað nánar þar sem
myndavélar taka upp akstur
um göngin . –arg
Skíðaslys
á jöklinum
SNÆFELLSNES: Skíðaslys
varð á Snæfellsjökli á föstu-
daginn þegar 14 ára dreng-
ur lenti á höfðinu en hann
var með hjálm. Í samráði við
lækni var drengnum ekið nið-
ur af jöklinum og sjúkrabíll
sendur á staðinn. –arg
Sinueldur í
Leirársveit
HVALFJ.SV: Sinueldur
kviknaði á tveimur stöðum við
Leirársveitaveg á sunnudag-
inn um klukkan tvö. Lögregl-
an kom á staðinn og gat slökkt
á öðrum staðnum en bændur á
Leirárgörðum slökktu eldinn
á hinum. –arg
Kindur innan-
bæjar
BORGARNES: Tvær kindur
með þrjú lömb kíktu í Borg-
arnes og fundust á vappi við
Landnámssetrið þegar lög-
reglan var á leið þar um í öðr-
um erindagjörðum. Kind-
urnar hlupu beina leið yfir í
Brákarey þar sem vaskir smal-
ar náðu þeim á endanum og
fluttu þær heim til sín í öruggt
skjól. –arg
Slys við
Snorrastaði
BORGARBYGGÐ: Um-
ferðaslys varð við Snorrastaði
í Kolbeinsstaðarhrepi á mánu-
daginn. Tveir voru í bílnum en
engin slys urðu á fólki. Bíllinn
virðist hafa farið yfir á öfug-
an vegarhelming og ökumað-
ur hefur líklega misst stjórn á
honum þegar hann ætlaði að
koma honum aftur á réttan
vegarhelming. Bíllinn er mik-
ið tjónaður og óökuhæfur eft-
ir slysið.
–arg
Landsnet hefur undanfarið unn-
ið að því að styrkja flutningskerf-
ið á Snæfellsnesi en á svæðinu hafa
á liðnum árum verið tíðar truflan-
ir þar sem loftlínan milli Ólafsvík-
ur og Vegamóta liggur um Fróð-
árheiði sem er mjög erfitt svæði
veðurfarslega. Gekk verkefnið út
á lagningu 2,66 kV jarðstrengs
milli Grundarfjarðar og Ólafsvíkur,
Grundarfjarðarlínu, og byggingu
nýrra tengivirkja í Grundarfirði og
Ólafsvík. Með þessari framkvæmd
verður afhendingaröryggi raforku
á Snæfellsnesi aukið og áreiðanleiki
svæðiskerfisins á Vesturlandi eykst.
Samkvæmt því sem fram kemur
á heimasíðu Landsnets komu tveir
valkostir til greina. Annars vegar
jarðstrengur alla leið eða loftlína
með jarðstreng næst Grundarfirði.
Þar sem loftlínulausnin samræmd-
ist ekki stefnu stjórnvalda um lagn-
ingu 66 kV raflína í jörð, auk þess
sem hún var í ofanálag metin sem
dýrari lausn, varð jarðstrengur fyr-
ir valinu. Kallaði lagning strengsins
á byggingu nýrra tengivirkja í báð-
um bæjarfélögum. Byggingu tengi-
virkis í Grundarfirði er nú lokið
eins og fram hefur komið í fréttum
Skessuhorns og nú á dögunum lauk
byggingu tengivirkisins í Ólafsvík.
Tengivirkið fyrir Ólafsvík er 66 kV
tveggja reita tengivirki og var það
byggt á höfuðborgarsvæðinu og
flutt fullbúið á verkstað.
Hófst ferðalagið með tengivirk-
ið frá Reykjavík að kvöldi 19. júní.
Tók flutningurinn alla nóttina
enda farið á hægum en öruggum
hraða. Fékk Landsnet ET, Orku-
virki og Rarik með sér í verkið og
bíllinn sem flutti tengivirkið ekki af
minni gerðinni, en undir honum og
vagninum voru alls 92 hjól. Þegar
kom að síðustu brekkunni, áður en
komið var á áfangastað, þurfti bíll-
inn þó örlitla aðstoð og kom vél frá
TS Vélaleigu og aðstoðaði við síð-
ustu metrana. Nú þegar tengivirkið
er komið á sinn stað tekur við frá-
gangur og vinna við að koma því í
gagnið. þa
Tengivirki flutt í heilu lagi
Húsið var flutt í heilu lagi frá Reykjavík til Ólafsvíkur.
Hugi Garðarsson hefur á liðn-
um vikum verið á hringferð
um landið til styrktar Krabba-
meinsfélagi Íslands. Ýtir hann
á undan sér hjólbörum þar
sem er að finna allan hans við-
legubúnað. Á ferð sinni hyggst
hann heimsækja 70 sveitarfé-
lög og ganga samtals á fjórða
þúsund kílómetra. Hugi var á
ferðinni í Grundarfirði fyrir
helgina þar sem Kolbrún Ingv-
arsdóttir ljósmyndari Skessu-
horns smellti meðfylgjandi
mynd. Hugi hvetur fólk til að
hringja í söfnunarsíma Krabba-
meinsfélagsins og leggja söfn-
uninni lið.
mm
Með hjólbörurnar við Kirkjufell