Skessuhorn - 26.06.2019, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 26. JúNÍ 20198
Svikasímtöl
halda áfram
LANDIÐ: Lögreglan á Vest-
urlandi hefur að undanförnu
fengið nokkuð af tilkynning-
um um svokölluð svikasímtöl
úr erlendu númerum. Um er
að ræða fólk sem er að leit-
ast eftir persónulegum upp-
lýsingum eins og kennitölu,
lykilorðum eða kortanúmer-
um hjá fólki. Áréttar lögregl-
an að engin hætta stafi af því
að svara þessum stímtölum
en að mikilvægt sé að hringja
ekki til baka og ekki gefa upp
neinar persónulegar upplýs-
ingar. –arg
Árekstur við
Arkarlæk
HVALFJ.SV: Fólksbíll og
dráttarvél lentu saman við
Arkarlæk rétt við Akrafjall
á fimmtudaginn. Ekki urðu
slys á fólki. –arg
Byggingarefni
fargað
BORGARBYGGÐ: Miklu
af byggingarusli var sturtað
við gáma ætlaða fyrir heim-
ilissorp við Gufuá í Borg-
arbyggð í vikunni sem leið.
Búið er að kæra málið og
er það til rannsóknar. Vitni
sáu til tveggja manna sturta
sorpinu þarna. – arg
Tjón af möl af
vörubíl
VESTURLAND: Tilkynnt
var um skemmdir á fram-
rúðu og á lakki á bíl eftir að
möl af palli vörubíls fór yfir
bíl sem kom úr gagnstæðri
átt rétt fyrir hádegi á mið-
vikudaginn. Málið verður
rannsakað. –arg
Betur fór en á
horfðist
NORÐURÁRD: Bílslys
varð á Vesturlandsvegi, rétt
við Hreimsstaði í Norður-
árdal, seint að kvöldi þriðju-
dagsins 18. júní. Karl og
kona voru í bíl sem fór útaf
og valt. Ekki leit ástandið vel
út í fyrstu en konan var föst
undir bílnum í um 25 mín-
útur. Þyrlan var kölluð út og
flutti fólkið til Reykjavík-
ur. Að sögn lögreglu er með
ólíkindum hversu vel bæði
konan og karlinn sluppu frá
slysinu, betur en á horfðist í
fyrstu. –arg
Dýrt símtal
VESTURLAND: Ökumað-
ur við Seleyri sunnan Borg-
arness var stöðvaður fyrir að
tala í símann undir stýri og
er sektin fyrir það 40 þúsund
krónur. Að sögn lögreglunn-
ar á Vesturlandi er nokkuð
um að fólk sé að nota símana
við akstur og haldi að það sé í
lagi sé símanum ekki haldið á
eyranu. Þá er rétt að minna á
að öll notkun síma án hand-
frjáls búnaðar er bönnuð
þegar setið er undir stýri.
–arg
Ætla að greiða
niður námslánin
LANDIÐ: „Þau voru kát og
brosandi ungu hjónin sem mættu
í höfuðstöðvar Íslenskrar getspá
til þess að vitja vinnings, en þau
voru ein af þremur sem unnu
7-falda Lottópottinn 15. júní sl.
og fengu rúmar 34,5 skattfrjáls-
ar milljónir í vinning. Vinnings-
miðann höfðu þau keypt hjá Olís
í Norðlingaholti. Hjónin eiga tvö
ung börn og eru búsett á höfuð-
borgarsvæðinu, þau ætla að byrja
á að fagna útskrift, greiða nið-
ur námslán og einnig íhuga þau
frekari nám nú þegar áhyggjur
af fjármálunum eru úr sögunni,“
segir í tilkynningu frá Íslenskri
getspá. Hinir tveir heppnu vinn-
ingshafarnir höfðu keypt miðana
sína inn á lotto.is og fengu þeir
því ánægjulegt símtal frá Íslenskri
getspá þar sem þeim var tilkynnt
gleðifréttirnar. Sá fyrri sem fékk
símtalið var karlmaður utan af
landi en hann hafði fylgst með
útdrættinum og var búinn að sjá
tölurnar sínar dregnar út og beið
hann því spenntur eftir símtalinu
góða. Hinn vinningshafinn kona
í Reykjavík vissi ekki enn af vinn-
ingnum svo símtalið kom henni
skemmtilega mikið á óvart og
var hún varla að trúa fréttunum.
-mm
Á rúntinum á
golfbíl
AKRANES: Tilkynning barst
um golfbíl á ferð á götum Akra-
ness að kvöldi laugardagsins.
Lögreglan fann ekki umræddan
bíl en vissulega er ekki leyfilegt
að aka golfbílum úti á götu. – arg
Aflatölur
fyrir Vesturland
15.-21. júní
Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu:
Akranes: 17 bátar.
Heildarlöndun:18.579 kg.
Mestur afli: Stapavík AK: 2.367
kg í þremur löndunum.
Arnarstapi: 19 bátar.
Heildarlöndun: 42.145 kg.
Mestur afli: Bárður SH: 15.777
kg í fjórum löndunum.
Grundarfjörður: 20 bátar.
Heildarlöndun: 239.546 kg.
Mestur afli: Hringur SH: 66.921
kg í einni löndun.
Ólafsvík: 35 bátar.
Heildarlöndun: 121.286 kg.
Mestur afli: Ólafur Bjarnason
SH: 28.830 kg í þremur róðrum.
Rif: 18 bátar.
Heildarlöndun: 68.954 kg.
Mestur afli: Esjar SH: 20.288 kg
fjórum löndunum.
Stykkishólmur: 26 bátar.
Heildarlöndun: 126.803 kg.
Mestur afli: Blíða SH: 11.266 kg
í fimm löndunum.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Hringur SH – GRU: 66.921
kg. 19. júní.
2. Sigurborg SH – GRU: 59.807
kg. 18. júní.
3. Farsæll SH – GRU: 43.900
kg. 19. júní.
4. Helgi SH – GRU: 43.755 kg.
18. júní.
5. Ólafur Bjarnason SH – ÓLA:
16.440 kg. 18. júní.
-arg
Meðal efnis í átjánda bindi Ár-
bókar Akurnesinga eru tveir þætt-
ir sem tengjast Sementverksmiðj-
unni, fyrrum stærsta vinnustað á
Akranesi. Garðar H. Guðjónsson
rifjar upp útgáfusögu Sementspok-
ans, sem Starfsmannafélag Sem-
entsverksmiðjunnar gaf út, og birt-
ar eru ljósmyndir Friðþjófs Helga-
sonar af yfirgefnum salarkynnum
verksmiðjunnar. Í viðtali sem Anna
Lára Steindal tók við Dýrfinnu
Torfadóttur gullsmið, Skagamann
ársins 2016, segir Dýrfinna frá lífs-
hlaupi sínu og hvernig hún festi
rætur á Akranesi. Söguganga þeirra
Guðbjargar Árnadóttur, Hall-
beru Jóhannesdóttur og Halldóru
Jónsdóttur sem nefnist, „Kelling-
ar minnast fullveldis“ sýnir hvernig
sagan birtist við hvert fótmál þegar
gengið er um Skagann með góðri
leiðsögn. Þá rekur Magnús Magn-
ússon ritstjóri Skessuhorns 20
ára sögu útgáfu blaðsins í máli og
myndum. Loks er ljósmyndaþáttur
úr Ljósmyndasafni Akraness sem
nefnist „Verslunarfólk og versl-
anir“. Annálar árbókarinnar eru á
sínum stað sem og æviágrip geng-
inna Akurnesinga. Ritstjóri Árbók-
ar Akurnesinga er Kristján Krist-
jánsson.
-fréttatilkynning
Eldur kom upp í húsbíl sem stóð við
sumarbústað í landi Galtarholts III
í Borgarbyggð síðastliðinn mánu-
dag. Slökkvilið Borgarbyggðar var
kallað út og slökkti í síðustu glæð-
unum, en eins og sjá má á mynd-
inni er ekkert eftir af bílnum nema
járnagrindin. Að sögn Bjarna Krist-
ins Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra
gekk slökkvistarf fljótt og vel og
enginn var í hættu. Lítilsháttar eld-
ur var þó kominn í gróður og nær-
liggjandi grindverk þannig að ekki
mátti miklu muna að eldurinn bær-
ist áfram í hús og gróður á svæð-
inu.
mm/ Ljósm. iss.
Guðni Ágústsson fer árlega í Þing-
vallagöngu og segir í henni frá forn-
um köppum sögualdar. Fimmtu-
dagskvöldið 4. júlí næstkomandi
verður hann ásamt fríðu föruneyti
á Þingvöllum og fjallar að þessu
sinni um Egil Skallagrímsson. „Bú-
ist er við að loksins dreifi Egill silfri
sínu yfir þingheim,“ segir Guðni.
Gangan hefst við Hakið klukkan 20
og gengið þaðan að Lögbergi hinu
forna og svo að Þingvallakirkju. Þar
þiggur fólk veitingar í göngulok.
Karlakór Kjalnesinga stýrir söng á
milli atriða. Ragnar Önundarson
mun í lokin svara spurningunni:
„Var höfundur Eglu platónisti?“
Því má við þetta bæta að um
þessar mundir endursýnir sjón-
varpsstöðin Hringbraut þátt þeirra
Guðna og Óttars Guðmundsson-
ar frá því í fyrra um Gissur Þor-
valdsson Jarl; „Var Gissur gull eða
grjót?“
mm
Á föstudaginn tók Lögreglan á
Vesturlandi í notkun nýjan Volvo
lögreglubíl sem staðsettur verður
í Borgarnesi. Bíllinn sem um ræð-
ir leysir af hólmi bíl sem ekinn er
nærri hálfa milljón kílómetra. arg
Bíll brann við sumarbústað
Guðni Ágústsson stýrir sögugöngu og fjallar um Egil Skallagrímsson.
Loksins dreifir Egill Skallagrímsson
silfri sínu yfir þingheim
Árbók Akurnesinga að koma út
Nýr lögreglubíll í Borgarnes
Nýr Volvo lögreglubíll í Borgarnesi. Ljósm. fengin af Facebooksíðu Lögreglunnar á Vesturlandi.