Skessuhorn


Skessuhorn - 26.06.2019, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 26.06.2019, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 26. JúNÍ 2019 13 Hönnun • Prentun • Merkingar • Fatnaður • Gjafavörur • Leikföng • Smávörur OPNAR Á DALBRAUT 16 F IMMTUDAGINN 4. JÚLÍ KL. 14 Fylgstu með okkur á Instagram og FacebookVELKOMIN Í OPNUN SMÁPRENTS Á DALBRAUT 16FRÁ KL. 14:00-18:00 Elsku yndislega mamma okkar, tengdamamma og amma, Emilía Petrea Árnadóttir Andaðist á Heilbrigiðsstofnun Vesturlands Akranesi 7. júní eftir stutta en snapra baráttu við krabbamein. Útförin fer fram frá Akraneskirkju miðvikudaginn 3. júlí kl. 13.00 Ást, kærleikur og þakklæti Helena Guttormsdóttir, Lárus Bjarni Guttormsson, Hildur Jónína Þórisdóttir SKE SS U H O R N 2 01 9 Arið 2005 voru Hollvinasamtök Þórðar Halldórssonar frá Dag- verðará stofnuð en það ár voru lið- in 100 ár frá fæðingu hans. Mark- miðið var að halda á lofti minningu þessa merka sagnamanns og vísna- manns, refaskyttu, málara, sjóara, Jöklara og lífskúnsters. Með því að drekka ölkelduvatn daglega, varð hann næstum 100 ára. Meðal verkefna Hollvinasamtak- anna var að láta gera heimildamynd um Þórð sem Kári G. Schram, kvikmyndaleikstjóri gerði og kall- aðist: Jöklarinn. Myndin er einstök heimild um Þórð sem auk margs annars, var einstakur náttúruunn- andi og í reynd samofinn umhverfi Snæfellsjökuls að ekki sé talað um Jölkulinn sjálfan. Á aðalfundi Hollvinasamtaka Þórðar 14. júní síðastliðinn var svo samþykkt að leggja samtökin niður og nýlega stofnað félag – Sagna- seiður á Snæfellsnesi, taki við að halda minningu Þórðar á lofti og kynna frekar heimildamyndina um hann. Einnig munu Svæðisgarð- ur Snæfellsness og Samkomuhúsið á Arnarstapa, koma að þessu hlut- verki. Nú stendur yfir listsýningin Nr. 3 Umhverfing, þar sem yfir sjötíu listamenn sýna verk sín víðsvegar á Snæfellsnesi m.a í bæjarrústunum á Dagverðará. Þar eru á veggjum ljós- myndir af nokkrum málverka Þórð- ar og eitt þeirra heitir: Snæfellsjök- ull eftir byl og málað 8. desember 1995 þegar Þórður var 90 ára. Snæfellsnes hefur alið marga snjalla sagnamenn og sagnaritara og þar er þekktastur Árni prófastur Þórarinsson frá Stóra – Hrauni, en Þórbergur Þórðarson skráði ævi- sögu hans í sex bindum. Minningar Þórðar Halldórssonar hafa líka ver- ið skráðar og þar er að finna marga góða söguna. Félagið Sagnaseiður á Snæfellsnesi þarf ekki að kvíða verkefnaskorti. Reynir Ingibjartsson Hollvinasamtök Þórðar Halldórssonar lögð niður Gróðrarstöðin Grenigerði við Borgarnes Við eigum mikið af fallegu birki í limgerði og einnig stök tré. Ríta og Páll 437-1664 849-4836

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.