Skessuhorn


Skessuhorn - 26.06.2019, Side 18

Skessuhorn - 26.06.2019, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 26. JúNÍ 201918 Síðastliðinn sunnudag var hald- in kveðjumessa í Stafholtskirkju í Borgarfirði. Hjónin sr. Jón Ás- geir Sigurvinsson og sr. Elínborg Sturludóttir predikuðu og þjón- uðu fyrir altari um leið og þau kvöddu söfnuð sinn. Séra Jón Ás- geir hefur þjónað söfnuðum Staf- holts, Hvamms og Norðtungu síðasta árið og leysti auk þess séra Þorbjörn Hlyn Árnason af síðasta hálfa árið í Borgarprestakalli. Séra Elínborg þjónaði Stafholtspresta- kalli til tíu ára en fór þaðan til starfa sem dómkirkjuprestur. Kirkjan var þétt setin í Stafholti á sunnudaginn og í framhaldi messu fóru kirkjugestir í kaffisam- sæti í Munaðarnes. Eins og fram kom í síðasta Skessuhorni hefur séra Brynhildur Óla Elínardót- tir verið ráðin sóknarprestur í Stafholtsprestakalli og tók hún við embætti til eins árs 1. júní síðastliðinn. mm Hjónin Jón Ásgeir og Elínborg í sam- sæti sem haldið var þeim til heiðurs í Munaðarnesi. Ljósm. hbj. Héldu kveðjumessu í Stafholtskirkju Við lok kveðjumessu. Brynjólfur Guðmundsson í Hlöðutúni, formaður sóknarnefndar, prestshjónin Jón Ásgeir og Elínborg og Jónína Erna Ar- nardóttir sem einnig kvaddi söfnuðinn við þetta tækifæri. Hún hefur eins og kunnugt er tekið við starfi skólastjóra Tónlistarskólans á Akranesi. Ljósm. sb. Í lok síðustu viku kom vaskur hóp- ur Varmalandsmeyja saman á nýju Hótel Varmalandi í Stafholtstung- um. Þetta var hópur 29 kvenna sem útskrifuðust frá Húsmæðra- skólanum á Varmalandi vorið 1959 en með þeim í för voru 17 makar. Hópurinn gisti í tvær nætur og fór auk þess skoðunarferð um Borgar- fjörð. Glatt var á hjalla hjá hópnum eins og einatt þegar gamlir skóla- félagar koma saman. Ekki er búið Varmalandsmeyjar fyrstar til að nýta Hótel Varmaland að opna hótelið formlega fyrir gest- um, en undantekning var gerð til að hægt væri að taka á móti fyrr- um nemendum sem dvöldu í sama skólahúsi fyrir sextíu árum. Lítils- háttar frágangur er enn eftir við húsnæðið og lóð áður en Hótel Varmaland verður formlega opnað á næstunni. Nánar verður sagt frá því þegar líður að opnun. „Við gistum hér í tvær nætur og fengum góðan morgunverð og veis- lukvöldverð í glæsilegum matsal á efstu hæðinni. Það var dekrað við okkur og öll þjónusta til fyrirmyn- dar. Við vorum öll mjög ánægð og sendum Helenu hótelstjóra og starfsfólki hennar bestu þakkir fyrir þessa frábæru daga. Gefum þjónus- tunni fimm stjörnur,“ segir Sigur- björg Viggósdóttir frá Rauðanesi sem var í undirbúningsnefnd um skipulag og hitting þeirra skólasys- tra, Varmalandsmeyja 1959 mm Útsýni frá matsal á fjórðu hæð hótelsins er stórbrotið til allra átta. Varmalandsmey- jarnar og makar í anddyri Hótels Varmalands. Hefð var fyrir því að Varmalands- meyjar saumuðu sér skólakjól, eins konar einkennisfatnað. Ein þeirra, Fjóla Gísladóttir frá Vík, smellpassar enn í sinn og klæddist honum við hátíðarkvöldverð. Hún kveðst stunda hreyfingu reglulega og gengur meðal annars á Reynisfjall flesta daga. Hópurinn í tröppum í nýja anddyrinu.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.