Skessuhorn - 26.06.2019, Síða 30
MIÐVIKUDAGUR 26. JúNÍ 201930
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Hvernig myndir þú lýsa þér í
þremur orðum?
Spurni g
vikunnar
(Spurt í Borgarnesi)
Þórunn Sara Arnarsdóttir
„Þrjósk, ákveðin og metnaðar-
full.“
Ágúst Marteinn Haraldsson
„Traustur vinur, heiðarlegur og
skapmikill.“
Páll Lind Egilsson
„Rólegur, hef létta lund og vinur
vina minna.“
Nína Dagrún Hermannsdóttir
„Skapandi, skilningsrík og um-
hyggjusöm.“
Þorsteinn Guðmundur
Erlendsson
„Fallegur, stór og sterkur.“
Bandaríski bakvörðurinn og leik-
stjórnandinn Isaiah Coddon hefur
samið við Skallagrím til tveggja ára
um að leika með liðinu í fyrstu deild
á komandi tímabili. Isaiah er frá St.
Paul í Minnesota og er 23 ára gam-
all. Hann spilaði í háskólaboltanum
vestanhafs en er nú nýfluttur til Ís-
lands í Borgarfjörðinn ásamt kær-
ustu sinni. „Ánægja er að fá Isaiah
í Borgarnes og er hann boðinn vel-
kominn í Skallagrím,“ segir í til-
kynningu frá félaginu.
Nýverð skrifaði svo deildin undir
samning við Borgnesinginn Arnar
Smára Bjarnason um að spila með
liðinu í 1. deild karla næsta vetur.
Arnar Smári er 19 ára og uppal-
inn Skallagrímsmaður og spilar
stöðu bakvarðar. Hann hefur ver-
ið með félaginu undanfarin tíma-
bil en fór til ÍR á miðri síðustu leik-
tíð í Reykjavík þar sem hann spilaði
með unglingaflokki félagsins. Að
auki spilaði hann allt síðasta tímabil
með liði ÍA í 2. deildinni á vensla-
samningi og var lykilmaður í liðinu.
„Ánægja er að fá Arnar Smára aftur
heim í Borgarnes og munu kraftar
hans nýtast vel í 1. deildinni næsta
vetur,“ segir í tilkynningu frá fé-
laginu. Samningur Arnars Smára er
til tveggja ára.
glh/ Ljósm. Skallagrímur.
Um liðna helgi var Aldursflokka-
meistaramót Íslands í sundi haldið í
Reykjanesbæ. Mótið er bæði keppni
á milli liða þar sem átta fyrstu sund-
menn í hverri grein og hverjum
aldursflokki gefa stig og einnig eru
stigahæstu sundmenn hvers aldurs-
flokks krýndir. Sundfélags Akraness
mætti til leiks með 19 keppendur
og endaði í 5. sæti eftir æsispenn-
andi keppni við Sundfélagið Óð-
inn, en þau úrslit fengust með einu
stigi í lokasundinu.
Meðal helstu afreka sundfólks
af Akranesi má nefna að Guðbjörg
Bjartey Guðmundsdóttir varð ald-
ursflokkameistari í aldurshópnum
13-14 ára í 100m baksundi á tím-
anum 1.10,01 sem er góð bæting
og náði hún með þessu sundi inn í
framtíðarhóp SSÍ. Hún varð í öðru
sæti í 100m bringusundi, 200m
baksundi og 100m flugsundi með
góðum bætingum. Kristján Magn-
ússon vann silfur í 100m baksundi
og brons í 800m skriðsundi í flokki
13-14 ára með glæsilegum bæting-
um. Ragnheiður Karen Ólafsdóttir
stóð sig vel og vann til bronsverð-
launa í 100m bringusundi í flokki
15-17 ára.
Verðlaunasæti
Á mótinu eru veitt verðlaun fyrir
efstu sex sætin og hlutu eftirtald-
ir verðlaun: Í flokki 15-17 ára varð
Enrique Snær Llorens Sigurðsson í
4. sæti í 200 flugsundi, 5. sæti i 100
flugsundi og 6. sæti í 400 fjórsundi.
Ragnheiður Karen Ólafsdóttir varð
í 3. sæti i 100 bringusundi og 6. sæti
í 200 bringusundi. Í flokki 13-14
ára varð Guðbjörg Bjartey Guð-
mundsdóttir aldursflokkameistari
í 100m baksundi, hafnaði í 2. sæti
í 100m flugsundi, 200 baksundi og
100m bringusundi. Loks varð hún í
5. sæti í 100m skriðsundi. Ingibjörg
Svava Magnúsardóttir varð í 4. sæti
í 100m flugsundi, 5. sæti í 400 skrið-
sundi og 800 skriðsundi og í 6. sæti
í 100m skriðsundi. Kristján Magn-
ússon varð í 2. sæti i 100 baksundi,
3. sæti i 800m skriðsundi, 4. sæti i
100m skriðsundi, 200m skriðsundi
og 400m skriðsundi. Hún varð í 5.
sæti i 100m flugsundi. Guðbjarni
Sigþórsson varð í 5. sæti í 100m
baksundi. Einar Margeir Ágústsson
varð í 5. sæti í 100m bringusundi.
Prúðust
Loks vann Sundfélag Akraness tit-
ilinn prúðasta liðið á mótinu sem
sannarlega er jákvæður árangur.
Liðið var með 86 bætingar og all-
ir að standa sig mjög vel. Á mótinu
kepptu: Enrique Snær Llorens Sig-
urðsson, Lara Jakobína Rings-
ted, Ragnheiður Karen Ólafs-
dóttir, Erna Þórarinsdóttir, Rafael
Andri Williamsson, Alex Benjamín
Bjarnason, Kristján Magnússon,
Einar Margeir Ágústsson, Guð-
björg Bjartey Guðmunsdóttir, Ingi-
björg Svava Magnusardóittir, Guð-
bjarni Sigþórsson, Karen Karadótt-
ir, Aldís Thea Danielsdóttir Glad,
Helga Rós Ingimarsdóttir, Freyja
Hrönn Jónsdótir, Auður Maria
Larusdóttir Mateusz Kuptel, Vik-
ingur Geirdal og Íris Arna Ingvars-
dóttir.
mm/SA
Skallagrímsmenn þurftu að sætta sig
við tap gegn Hetti/Hugin í botn-
baráttu liðanna þegar þau mætt-
ust fyrir austan í 8. umferð þriðju
deildar í fótbolta á laugardag. Leik-
urinn var fjörugur í alla staða og
leikmenn á skotskónum.
Fyrsta mark leiksins kom frá
heimamönnum á 32. mínútu þeg-
ar Petar Mudresa kom sínum
mönnum yfir. Borgnesingar létu
sér ekki segjast og voru snöggir að
jafna metin þegar Cristofer Rol-
in kom boltanum í netið. Höttur/
Huginn náði þó að koma sér aft-
ur í bílstjórasætið þegar Ivan Bu-
balo laumaði inn marki til viðbót-
ar á uppbótartíma fyrri hálfleiks og
leiddu heimamenn þegar flautað
var til hálfleiks, 2-1.
Borgnesingar komu ferskir til
leiks í síðari hálfleik og skoruðu
tvö mörk á þriggja mínútna kafla.
Cristofer Rolin skoraði annað mark
sitt á 51. mínútu fyrir Skallagrím og
jafnaði metin enn og aftur. Þremur
mínútum seinna var Sigurjón Logi
Bergþórsson á ferðinni og kom
Borgnesingum yfir í fyrsta skipti í
leiknum. Hart var barist alveg fram
á loka mínúturnar og virtist sem að
Skallagrímsmenn ætluðu að sigla
sigrinum heim. Ivan Bubalo náði
að koma í veg fyrir það og jafnað
metin fyrir heimamenn á 86. mín-
útu. Það var svo Heiðar Logi Jóns-
son sem gulltryggði sigur Hattar/
Hugin á uppbótartíma rétt und-
ir lokin. Ekki var nægur tími fyrir
Skallagrím að svara og sigur heima-
manna staðreynd.
Höttur/Huginn færir sig upp um
eitt sæti í það níunda og er með
níu stig á meðan Skallagrímur sitja
enn í því tíunda með sex stig. Næsti
leikur Skallagrímsmanna fer fram
í Borgarnesi á morgun þegar þeir
taka á móti Kórdrengjum. Leikur-
inn hefst klukkan 20.00.
glh
Víkingur Ó. þurfti að sætta sig við
tap þegar liðið tók á móti Fram í
8. umferð fyrstu deildar á laugar-
daginn á Ólafsvíkurvelli. Strax á
sjöttu mínútu fengu Víkingsmenn
á sig víti. Michael Newberry missti
boltann klaufalega frá sér rétt fyr-
ir utan eigin teig. Tiagi Fernandes
hjá liði Fram, lét sér ekki segjast,
náði í knöttinn og inn í teig heima-
manna þar sem hann var felldur og
víti dæmt. Helgi Guðjónsson fór á
punktinn og setti boltann örugg-
lega í vinstra hornið. 0-1 fyrir gest-
ina. Það var svo á 36. mínútu sem
heimamenn fengu víti og tækifæri
til að jafna leikinn. Markmaður
gestanna náði að verja vítaspyrn-
una frá Harley Willard og Fram-
arar með eins marks forskot sitt í
hálfleik. Síðari hálfleikur var ekki
eins fjörugur og sá fyrri. Engin al-
vöru marktækifæri litu dagsins ljós
og þrjú stig fóru því öll í Safamýr-
ina til Fram.
Þetta er annar tapleikur Ólafs-
víkinga á heimavelli í röð. Við þessi
úrslit fer Víkingur úr fjórða sæti
niður í það sjötta eftir átta umferðir
en mjótt er á munum milli liðanna
sem skipa næstu þrjú sæti fyrir ofan,
hafa einungis eins stigs forskot.
Næsti leikur Víkings Ó. verður á
laugardaginn gegn Magna. Leik-
urinn fer fram á Grenivíkurvelli og
hefst klukkan 14:00.
glh/ Ljósm. af.
Víkingur tapaði á
heimavelli
Arnar Smári handsalar samning við
Birgi Andrésson hjá meistaraflokks-
ráði karla.
Skallagrímur bætir
við sig mönnum
Isaiah handsalar hér samning sinn
við Birgi Andrésson hjá meistaraflokki
karla.
Súrt tap hjá Skallagrími
Sundfólk frá SA var prúðasta liðið og
hafnaði í fimmta sæti
Hópurinn frá Sundfélagi Akraness.Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir
varð aldursflokkameistari 13-14 ára.