Skessuhorn


Skessuhorn - 04.09.2019, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 04.09.2019, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 4. SEpTEMBER 2019 7 Þekking Gæði Þjónusta Grensásvegi 46 - 108 Reykjavík - sími 5113388 Útibússtjóri Verkís á Vesturlandi Við leitum að reyndum verkfræðingi eða tæknifræðingi í stöðu útibússtjóra starfsstöðva Verkís á Vesturlandi með aðsetur í Borgarnesi eða á Akranesi. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf fyrir metnaðarfullan einstakling. Hlutverk og ábyrgð • Almennur rekstur starfsstöðva • Markaðsmál, verkefnaöflun og tilboðsgerð • Starfsmannastjórnun • Áætlanagerð og skipulagning verkefnavinnu • Verkefnastjórnun Menntunar- og hæfniskröfur • Verkfræðingur eða tæknifræðingur • Góðir stjórnunar-, samskipta- og skipulagshæfileikar • Reynsla af verkefnastjórnun Nánari upplýsingar veita Ari Guðmundsson, sviðsstjóri starfsstöðvasviðs, arg@verkis.is Elín Greta Stefánsdóttir, mannauðsstjóri, egs@verkis.is Verkís er öflugt og framsækið ráð- gjafar fyrirtæki sem býður fyrsta flokks þjónustu á öllum sviðum verkfræði. Hjá Verkís starfa yfir 300 manns að fjöl breyttum og krefjandi verkefnum á Íslandi og erlendis. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um á ráðningarvef Verkís (umsokn.verkis.is). Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum um- sóknum verður svarað. Við hvetjum jafnt konur sem karla til að sækja um. Umsóknarfrestur er til og með 10. september 2019. FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ www.frumherji. is Búðardalur 2019 Bifreiðaskoðun verður hjá K.M. þjónustunni ehf. Vesturbraut 20 miðvikudaginn 11. september fimmtudaginn 12. september föstudaginn 13. september Allir gerðir ökutækja skoðaðir Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00 Tímapantanir í síma 570 – 9090 SK ES SU H O R N 2 01 9 Bæjarstjórn Akraness og sveitar- stjórn Hvalfjarðarsveitar sendu í síðustu viku ríkisstjórn Íslands sam- eiginlega áskorun um stefnubreyt- ingu í málefnum orkukræfs iðnað- ar; „vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem upp er komin í atvinnumál- um á Grundartanga og leitt get- ur til verulegs samdráttar í starf- semi orkukræfs iðnaðar og fækkun starfa,“ eins og segir í áskoruninni. Sveitarfélögin lýsa þungum áhyggj- um yfir því að rekstrarumhverfi orkukræfs iðnaðar á Íslandi hefur versnað til muna og það samkeppn- isforskot sem hér var í orkuverði sé algjörlega horfið. Þá er þess krafist að stjórnvöld endurskoði núverandi stefnu í málefnum orkukræfs iðn- aðar á Íslandi og setji Landsvirkjun eigendastefnu án tafar. Lýsa sveit- arfélögin þungum áhyggjum yfir að 1.100 bein störf í 20 fyrirtækjum séu í hættu. Alvarleg breyting á rekstrarumhverfi iðnaðar Í greinargerð með áskoruninni seg- ir: „Núverandi atvinnustarfsemi á Grundartangasvæðinu hefur byggst upp á löngum tíma og er gríðarlega mikilvæg fyrir sveitarfélögin á Vest- urlandi; Akranes, Hvalfjarðarsveit og í vaxandi mæli Borgarbyggð. Nærri lætur að um 1.100 bein störf séu í þeim 20 atvinnufyrirtækjum sem þar reka starfsemi og annar eins fjöldi starfa tengist þjónustu við þessi fyrirtæki og þá sérstaklega stærstu fyrirtækin Elkem og Norð- urál. Ötullega hefur verið unn- ið að því undanfarin ár á vettvangi samstarfs Þróunarfélags Grundar- tanga, Norðuráls, Elkem og Faxa- flóahafna að finna, greina og nýta þau tækifæri sem svæðið býr yfir til vaxtar og aukinnar verðmætasköp- unar. Þar hefur sérstök áhersla ver- ið lögð á umhverfismál, nýsköp- un og fullnýtingu efnis- og auð- lindastrauma á sviði orkuvinnslu og orkuendurvinnslu sem nýtt verði til uppbyggingar nýrra fyrirtækja með tilheyrandi fjölgun starfa. Því mið- ur er nú margt sem bendir til þess að sú mikla vinna sé unnin fyrir gíg vegna breytinga á rekstrarumhverfi orkukræfs iðnaðar á Íslandi. Afleið- ingar þessa má m.a. sjá í niðurstöðu gerðardóms um orkuverð til Elkem á Grundartanga.“ Samkeppnisforskot er horfið Þá segir í áskorun sveitarfélaganna að stjórnvöld á Íslandi hafi skapað orkukræfum iðnaði góð skilyrði til rekstrar með sanngjörnu raforku- verði og fengu með því til sín öflug fyrirtæki sem mörg hver hafa verið í rekstri um áratugaskeið, þau hafa greitt há laun og haft mjög jákvæð áhrif á uppbyggingu sinna nær- samfélaga. „Jafnframt hafa þau lagt mikið af mörkum til uppbyggingar raforkuinnviða samfélagsins í heild. Að auki er rétt að benda á mikilvægi framleiðsluvara fyrirtækja á Grund- artanga sem eru lykilframleiðendur ýmissa sérvara sem leitað er eftir til lausnar í þeim orkuskiptum sem nú eru að eiga sér stað og kallað er eft- ir á heimsvísu. Nú er hins vegar svo komið að rekstrarumhverfi orku- kræfs iðnaðar á Íslandi hefur versn- að til muna og það samkeppnisfor- skot sem hér var í orkuverði er al- gjörlega horfið. Kjörnir fulltrúar á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit kalla eftir svörum um hver tók ákvörð- Krefjast þess að stjórnvöld setji eigendastefnu fyrir Landsvirkjun un um þessa stefnubreytingu og á hvaða vettvangi hún var tekin.“ Landsvirkjun er sökudólgurinn Í áskorun sveitarstjórnanna segir að birtingarmynd þessarar ákvörðun- ar stjórnvalda sé framganga Lands- virkjunar, fyrirtækis sem er að öllu leyti er í eigu ríkisins og hefur í krafti einokunarstöðu í raforkusölu á stórnotendamarkaði knúið fram mjög miklar verðhækkanir á raf- orku til orkukræfs iðnaðar. „For- stjóri fyrirtækisins hefur endurtek- ið lýst því yfir að hlutverk þess sé meðal annars verðmætasköpun en fram til þessa hefur sú verðmæta- sköpun eingöngu snúist um að há- marka arðsemi Landsvirkjunar en ekki að horfa til heildarhagsmuna þjóðarinnar.“ Því vilja kjörnir full- trúar sveitarfélaganna minna á að í fyrirhugaðri orkustefnu megi finna eftirfarandi leiðarljós: Að hámarka samfélagslegan ávinning af nýtingu orku, stuðningur stefnunnar við at- vinnustefnu og samspil við lykilat- vinnugreinar og stuðningur stefn- unnar við byggðastefnu og jákvæða byggðaþróun til lengri tíma. „Með hliðsjón af framansögðu skora bæjarstjórn Akraness og sveit- arstjórn Hvalfjarðarsveitar á íslensk stjórnvöld að endurskoða núver- andi stefnu í málefnum orkukræfs iðnaðar á Íslandi og setja Lands- virkjun eigendastefnu án tafar sem tekur m.a. mið af ofangreindum leiðarljósum í framtíðarorkustefnu Íslands.“ mm Frá athafnasvæði Norðuráls á Grundartanga. Ljósm. kgk.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.