Skessuhorn - 04.09.2019, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 4. SEpTEMBER 201912
Framkvæmdir við byggingu Húss
íslenskunnar við Arngrímsgötu í
Reykjavík eru hafnar en fyrir helgi
var skrifað undir samning mennta-
og menningarmálaráðuneytis og
Framkvæmdasýslu ríkisins við verk-
takafyrirtækið ÍSTAK um byggingu
hússins.
Hús íslenskunnar mun hýsa fjöl-
breytta starfsemi Stofnunar Árna
Magnússonar í íslenskum fræðum
og Íslensku- og menningardeild
Háskóla Íslands. Þar verða sérhön-
nuð rými svo sem fyrir varðveis-
lu, rannsóknir og sýningu á íslen-
skum skinnhandritum, vinnustofur
kennara og fræðimanna, lesrými
fyrir háskólanema, fyrirlestra- og
kennslusalir sem og skrifstofur og
bókasafn. Á undanförnum árum
hefur ekki verið unnt að sýna þau
handrit sem varðveitt eru hjá Stof-
nun Árna Magnússonar í íslenskum
fræðum en með tilkomu hússins
verður bylting í aðstöðu stofnu-
narinnar til að varðveita, rannsa-
ka og miðla menningararfi þeim
sem handritin geyma. Nemendur
og fræðimenn í íslenskum fræðum
verða með tilkomu hússins í fyrsta
sinn undir sama þaki og helstu
rannsóknargögn um þróun og sögu
tungumálsins. „Þannig myndar
húsið umgjörð utan um þjóðararf
Íslendinga og skapar aðstæður til
að efla þekkingu og þróun á tung-
umálinu. Þá er húsinu ætlað að vera
miðstöð fólks sem miðlar mennin-
gararfinum til komandi kynslóða,“
segir í tilkynningu frá mennta- og
menningarmálaráðuneytinu.
mm
Réttir í gamla Vesturlandskjördæmi:
Arnarhólsrétt í Helgafellssveit sunnudaginn 22. sept.
Bláfeldarrétt í Staðarsveit, Snæf. laugardaginn 28. sept.
Brekkurétt í Norðurárdal, Mýr. sunnudaginn 15. sept.,
seinni réttir sun. 29. sept.
Brekkurétt í Saurbæ, Dal. sunnudaginn 15. sept. kl. 11.00,
seinnir réttir sun. 29. sept. kl. 13.00
Fellsendarétt í Miðdölum, Dal. sunnudaginn 15. sept. kl. 14.00,
seinnir réttir 22. sept. og 29. sept kl. 14.00
Flekkudalsrétt á Fellsströnd, Dal. laugardaginn 14. sept.,
seinni réttir lau. 28. sept.
Fljótstungurétt í Hvítársíðu, Mýr. laugardaginn 14. sept og sun. 15. sept.,
seinni réttir lau. 28. sept.
Fróðárrétt í Fróðárhreppi laugardaginn 21. sept.
Gillastaðarétt í Laxárdal, Dal. sunnudaginn 15. sept. kl. 12.00,
seinni réttir sun. 29. sept. kl. 16.00
Grafarrétt í Breiðuvík, Snæf. laugardaginn 28. sept.
Grímsstaðarétt á Mýrum, Mýr. þriðjudaginn 17. sept. Kl. 10.00,
seinni réttir mán. 30. sept. kl. 14.00
og 7. okt. kl. 14.00
Hellnarétt í Breiðuvík, Snæf. laugardaginn 21. sept.
Hítardalsrétt í Hítardal, Mýr. mánudaginn 16. sept.,
seinni réttir 29. sept. og 7. okt.
Hornsrétt í Skorradal, Borg. sunnudaginn 8. sept. kl. 10.00
Hólmarétt í Hörðudal, Dalabyggð sunnudaginn 22. sept. kl. 10.00.
Seinni réttir sun. 29. sept. kl. 10.00
Hrafnkelsstaðarétt í Grundarfirði laugardaginn 21. sept., um kl. 15.00
Kaldárbakkarétt í Kolb., Hnappadalssýslu sunnudaginn 8. sept.
Kirkjufellsrétt í Haukadal, Dal. laugardaginn 14. sept.,
seinni réttir lau. 28. sept.
Klofningsrétt í Beruvík, Snæf. laugardaginn 28. sept.
Langholtsrétt í Eyja- og Miklaholtshr. mánudaginn 23. sept. kl. 16.00
Ljárskógarétt í Laxárdal, Dal. laugardaginn 7. sept.
Mýrar í Grundarfirði laugardaginn 21. sept. kl. 16.00
Mýrdalsrétt í Hnappadal þriðjudaginn 24. sept.,
seinni réttir sun. 13. okt.
Nesmelsrétt í Hvítársíðu, Mýr. laugardaginn 7. sept.
Núparétt í Melasveit, Borg. sunnudaginn 8. sept. kl. 13.00.
Seinni réttir lau. 21. sept.
Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal, Borg. miðvikudaginn 11. sept. kl. 9.00.
Seinni réttir sun. 6. okt. kl. 10.00
Ólafsvíkurrétt í Ólafsvík, Snæf. laugardaginn 21. sept.
Ósrétt á Skógarströnd, Dal. laugardaginn 5. okt. kl. 10.00
Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, Borg. sunnudaginn 22. sept. kl. 10.00.
Seinni réttir 6. okt. kl. 14.00
Reynisrétt undir Akrafjalli, Borg. laugardaginn 21. sept.,
seinni réttir lau. 28. sept.
Skarðsrétt á Skarðsströnd, Dal. sunnudaginn 15. sept., kl. 11.00.
Seinni réttir sun. 29. sept. kl. 14.00
Skerðingsstaðarétt í Hvammsveit, Dal. sunnudaginn 15. sept. kl. 11.00.
Seinni réttir sun. 29. sept. kl. 13.00
Svarthamarsrétt á Hvalfj.str., Borg. sunnudaginn 8. sept. kl. 10.00,
seinni réttir sun. 29. sept.
Svignaskarðsrétt, Svignaskarði, Mýr. mánudaginn 16. sept.,
seinni réttir mán. 30. sept. og mán. 7. okt.
Tungurétt á Fellsströnd, Dal. laugardaginn 7. sept.,
seinni réttir fös. 13. sept.
Vörðufellsrétt á Skógarströnd, Dal. laugardaginn 21. sept. kl. 13.00.
Seinni réttir sun. 13. okt. kl. 13.00
Þverárrétt Eyja- og Miklaholtshr, Snæf. sunnudaginn 22. sept. kl. 10.30
Þverárrétt í Þverárhlíð, Mýr. mánudaginn 16. sept.
Seinni réttir mán. 23. sept.
og mán. 30. sept.
Þæfusteinsrétt á Hellissandi/Rifi, Snæf. laugardaginn 21. sept.
Ölkeldurétt í Staðarsveit, Snæf. laugardaginn 28. sept.
Réttir í Reykhólsveit:
Eyrarrétt á Eyri í Kollafirði, Reykhólahrepp, A-Barð. laugardaginn 7. sept.
Grundarrétt í Reykhólahreppi, A-Barð. föstudaginn 13. sept.
Kinnarstaðarrétt í Reykhólahr., A-Barð. sunnudaginn 15. sept.
Króksfjarðarnesrétt í Reykhólasv., A-Barð. laugardaginn 14. sept.
Staðarrétt í Reykhólahreppi, A-Barð. föstudaginn 13. sept.
Skrifað var undir samning um byggingu hússins í grunni sem tekinn var fyrir nokkrum árum.
Framkvæmdir hefjast við Hús íslenskunnar
Réttir á Vesturlandi haustið 2019
Líkt og undanfarin ár hefur Bændablaðið tekið saman og birt yfirlit um fjárréttir á landinu. Listinn var unninn með þeim hætti að leitað
er til sveitarfélaga, ráðunauta og bænda um upplýsingar. „Rétt er að minna á að villur geta slæðst inn í listann og eins getur veðrátta orðið
til þess að breyta þarf tímasetningum á smalamennsku og þar með réttarhaldi. Því er gott ráð að hafa samband við heimamenn á hverjum
stað til að staðfesta réttar dag- og tímasetningar,“ segir í frétt Bændablaðsins.
Fyrstu réttir á Vesturlandi verða um næstu helgi, laugardaginn 7. september, þegar réttað verður í Nesmelsrétt í Hvítársíðu, Ljárskógarétt
í Dölum og Tungurétt á Fellsströnd.