Skessuhorn


Skessuhorn - 04.09.2019, Qupperneq 24

Skessuhorn - 04.09.2019, Qupperneq 24
MIÐVIKUDAGUR 4. SEpTEMBER 201924 Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com SK ES SU H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Pennagrein AUGLÝST EFTIR UMSÓKNUM Í UPPBYGGINGARSJÓÐ VESTURLANDS VEITTIR VERÐA STYRKIR TIL ATVINNUÞRÓUNAR OG NÝSKÖPUNAR Á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, er að finna reglur og viðmið varðandi styrkveitingar. Umsóknarformið er á heimasíðu ssv.is: http://ssv.is/uppbyggingarsjodur-vesturlands/ Nánari upplýsingar í síma 433-2310 eða senda fyrirspurnir á netfang: uppbyggingarsjodur@ssv.is Frestur til að skila inn umsóknum rennur út á miðnætti mánudaginn 23. september 2019 Föstudaginn 6. sept- ember klukkan 16:00 mun Þórunn Bára Björnsdóttir listmál- ari opna málverkasýn- ingu með yfirskrift- inni Mosató, í Bóka- safni Akraness. Þór- unn Bára fæst við nátt- úruskynjun og samspil manns og umhverfis í verkum sínum og tel- ur hún að list í sam- vinnu við náttúruvís- indi geti aukið skiln- ing á mikilvægi bættrar umgengni við náttúruna og það verði einnig fólki til góðs. Þórunn Bára vinnur verk sín með tilvísun til þróunar lífs í Surtsey og beinir sjónum að flétt- um á hraunhellu, landnámi mosa í eldfjallajarðvegi, frumgróðri í fjöru og bólfestu plantna á hrjóstrugu undirlagi. Hún vekur þannig at- hygli á hinu smáa en mikilvæga í vistkerfi jarðar sem nú stend- ur mikil ógn af hlýn- un jarðar. Þórunn Bára lauk myndlistarnámi frá Edinborgar Collage of Art, BAhons, og Wesleyan háskóla í Bandaríkjunum, MALS. Sýningin Mosató stendur í þrjár vikur á opn- unartíma safnsins. glh Húsnæðismál hafa verið ofarlega á baugi síðastliðin ár enda rík- ir skortur á íbúðarhúsnæði víða um land. Ríkisstjórnin hefur langt mikla áherslu á að efla húsnæðis- markaðinn og stuðla að auknu jafn- vægi á honum óháð efnahag og bú- setu. Fjölmörgum aðgerðum hef- ur nú þegar verið hrundið í fram- kvæmd til að bregðast við og eru aðrar í bígerð. Landsbyggðin hef- ur löngum þótt sitja eftir í þessum efnum. Uppbygging íbúðarhús- næðis víða um land hefur ekki fylgt auknum íbúafjölda, frekar en á höfuðborgarsvæðinu og eru dæmi um að skortur á íbúðarhúsnæði hafi staðið atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni fyrir þrifum. Tillögur unnar í sam- starfi við sveitarfélög Á haustmánuðum setti ég af stað tilraunaverkefni um húsnæðismál á landsbyggðinni með Íbúðalána- sjóði, Byggðastofnun og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Var það gert í því skyni að leita leiða til þess að bregðast við langvarandi stöðnun á húsnæðismarkaði víða um land. Þrjátíu og þrjú sveitarfélög af öllu landinu sóttu um þátttöku. Sjö urðu fyrir valinu og tók val- ið mið af því að áskoranirnar sem þau stæðu frammi fyrir væru mis- munandi og á ólíkum landsvæðum. Þannig yrði til breiðara framboð lausna í húsnæðismálum sem nýst geti sem flestum sveitarfélögum sem á þurfa að halda. Íbúðalána- sjóður hefur undanfarna mánuði unnið náið með tilraunasveitar- félögunum að því að greina þann vanda sem þau standa frammi fyrir og undirbúa tillögur að aðgerðum. Tólf tillögur að aðgerðum Á grundvelli þeirrar vinnu voru lagðar fram tólf tillögur að lausn- um sem kynntar voru fyrir ríkis- stjórn í maí og birtar í samráðs- gátt stjórnvalda í lok júlí. Þær um- sagnir sem bárust voru allar já- kvæðar og var í kjölfarið ákveðið að tillögurnar yrðu innleiddar. Í byrjun vikunnar skrifaði ég undir breytingar á reglugerð um lánaflokka Íbúðalánasjóðs sem gerir það að verkum að sveitar- félög, einstaklingar og óhagnað- ardrifin félög á landsbyggðinni muni geta tekið lán hjá Íbúðal- ánasjóði til húsnæðisuppbygg- ingar á stöðum þar sem opinber húsnæðisáætlun, staðfest af Íbú- ðalánasjóði, sýnir að skortur sé á húsnæði af því tagi sem byggja á. Þá verður brugðist við skorti á hagkvæmu leiguhúsnæði með því að gera sveitarfélögum á lands- byggðinni kleift að byggja íbúðir í almenna leigukerfinu með auknu stofnframlagi ríkisins og verður frumvarp þess efnis lagt fram á haustþingi. Öflug byggðastefna er hagsmunamál okkar allra Það er mikilvægt að atvinnutæki- færi séu nýtt allt í kringum land- ið en dæmi eru um að skortur á íbúðarhúsnæði hamli frekari upp- byggingu. Sá skortur er tilkominn vegna þess að misvægi er á milli byggingarkostnaðar og markaðs- verðs. Mikilvægt er að húsnæð- isskortur standi ekki í vegi fyrir því og geri það að verkum að fólk fáist ekki til starfa. Sé það raun- in ber stjórnvöldum að mínu viti skylda til þess að grípa til aðgerða og eftir því hefur ítrekað verið kallað. Með þeim aðgerðum sem ákveðið hefur verið að ráðast í til að bregðast við húsnæðisvanda á landsbyggðinni erum við að und- irstrika vilja ríkisvaldsins til að standa við bakið á heimamönnum í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Ásmundur Einar Daðason Höf. er félags- og barnamálaráð- herra. Opnar málverkasýningu á Bókasafni Akraness Þórunn Bára Björnsdóttir er listakonan á bakvið Mosató. Atvinnuuppbygging á landsbyggðinni strandar á íbúðaskorti

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.