Fréttablaðið - 09.03.2020, Side 8
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is,
Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Í ljósi þess er
ótrúlegt að
fátækt skuli
vera jafnút-
breidd og
þessar tölur
gefa til
kynna.
Standa meðal
annars vonir
til að auka
hlut barna í
öllum lands-
fjórðungum á
næstu árum.
Jón
Þórisson
jon@frettabladid.is
Í dag hefst heimsókn embættis umboðsmanns barna til Fljótsdalshéraðs, en allir starfsmenn embættisins munu dvelja þar þessa viku. Heim-
sóknin er liður í að efla tengsl embættisins við sveitar-
félög á landsbyggðinni, kynna starfsemi embættisins,
hitta þá sem vinna að málefnum barna og heimsækja
skóla. Þó starfsaðstaða embættisins verði á Egils-
stöðum munu starfsmenn embættisins einnig leggja
leið sína til Seyðisfjarðar, Djúpavogs og Borgarfjarðar
eystri.
Umboðsmaður barna hefur það hlutverk að efla
þátttöku barna í samfélaginu og vinna að því að tekið
sé fullt tillit til réttinda, þarfa og hagsmuna þeirra
á öllum sviðum. Með heimsókninni mun umboðs-
maður barna efla tengsl embættisins við börn á
landsbyggðinni og hitta meðal annars fulltrúa úr ung-
mennaráði Fljótsdalshéraðs.
Umboðsmaður barna hefur á síðustu tíu árum
starfrækt ráðgjafarhóp ungmenna á aldrinum 12-17
ára við embættið og með breytingum á lögum um
umboðsmann barna í árslok 2018 var starfsemi ráð-
gjafarhópsins lögfest. Rík áhersla hefur verið lögð á að
auka fjölbreytni innan hópsins og fjölga börnum af
landsbyggðinni. Vonir standa til að auka hlut barna í
öllum landsfjórðungum á næstu árum.
Á fyrsta barnaþingi umboðsmanns barna í nóvem-
ber var lögð áhersla á þátttöku barna af öllu landinu,
en börnin voru valin með slembivali úr þjóðskrá. Það
sama verður uppi á teningnum við skipulag næsta
barnaþings í nóvember 2021. Ætlunin er að styrkja enn
frekar það hlutverk embættisins að vera talsmaður
barna af öllu landinu og tryggja að sjónarmið þeirra
skili sér í stefnumótun stjórnvalda og ákvarðanatöku.
Heimsóknin til Egilsstaða er skipulögð í góðri sam-
vinnu við forsvarsmenn Fljótsdalshéraðs en sveitar-
félagið útvegar embættinu starfsaðstöðu og hefur
skipulagt veglega dagskrá fyrir starfsmenn embættis-
ins þessa viku. Tengslin munu því vafalaust styrkjast
og verður gaman að kynnast því öfluga starfi sem
þarna er unnið í þágu barna, hitta börn á öllum aldri
og fulltrúa úr ungmennaráði sveitarfélagsins.
Aukin tengsl við börn
Salvör Nordal
umboðsmaður
barna
Fréttaþátturinn Kveikur skýrði frá því í liðinni viku að á bilinu átján til þrjátíu og fimm þúsund manns byggju við fátækt hér á landi, eða fimm til tíu prósent lands-manna, þar af allt að tíu þúsund börn undir sextán ára aldri. Það eru ótrúlegar tölur í
landi allsnægta.
Jafnframt kom fram að um sjö til tíu þúsund úr
þessum hópi væru í mikilli neyð og byggju við sára
fátækt. Stærstur hluti þeirra væru einstæðir foreldrar,
öryrkjar og innflytjendur.
Það eru grimm örlög að búa við fátækt og fátæktin
er eyðandi og sundrandi. En það sem vakti hvað
mesta athygli í nefndum þætti var hve tengslin milli
fátæktar foreldra og fátæktar barna þeirra síðar, þegar
þau vaxa úr grasi, eru sterk. Það er ógnvænlegt og
bendir eindregið til þess að börn fátækra hafi ekki
sömu möguleika á að mennta sig. Enda sýna rann-
sóknir að börn sem alast upp við fátækt fara fyrr á
vinnumarkað í stað þess að mennta sig. Oft eru þá í
boði störf þar sem ekki er krafist sérþekkingar og þau
eru þá jafnan verr launuð.
Hin félagslega hlið málsins er ekki síður athyglis-
verð því börnum sem búa við fátækt hættir til að
einangra sig, sem gerir vanda þeirra enn snúnari og
flóknari að leysa.
Enginn velur sér fátækt að hlutskipti. Ýmsir þættir
geta komið fólki í þá stöðu, veikindi, líkamleg eða and-
leg, slys, fíkn og svo má áfram telja. Að ógleymdu því að
fátækt virðist erfast og hneppa kynslóðir í gildru sína.
Auk fjölmargra siðferðilegra raka liggja þjóðhagsleg
rök að baki því að vinna eigi bug á fátækt, þó henni
verði sennilega aldrei útrýmt með öllu.
Hið opinbera leggur gríðarlegar fjárhæðir í mennta-
kerfið árlega. Sveitarfélögin á leik- og grunnskólastigi
og ríkið á framhalds- og háskólastigi. Þetta er vegna
þess að við höfum komist að því að það er þjóðhags-
lega hagkvæmt að fólk mennti sig og auki þannig
færni sína til að vinna verðmæt störf í samfélaginu.
Ef það er rétt að allt að tíu þúsund börn búi við
fátækt hér á landi og hafi minni möguleika á að sækja
sér menntun, blasir tjón samfélagsins við.
Þekkt er að fólk sem býr við fátækt, neitar sér
um það sem öðrum þykir sjálfsögð þjónusta á borð
við læknisþjónustu. Það þarf ekki að hugleiða það
lengi að það mun skila sér síðar í lakara heilsufari og
umfangsmeiri inngripum síðar þegar árin færast yfir.
Ísland er land allsnægta af náttúrunnar hendi. Hér
njótum við endurnýjanlegrar orku úr fallvötnum og
jörðu og innan landhelginnar eru ein gjöfulustu fiski-
mið heims og afurðir dregnar úr sjónum við landið
eru eftirsótt munaðarvara í fjölda landa. Heilbrigðis-
þjónusta er á meðal þeirrar bestu sem þekkist.
Ísland er sannarlega í hópi auðugustu ríkja heims. Í
ljósi þess er ótrúlegt að fátækt skuli vera jafnútbreidd
og þessar tölur gefa til kynna. Auðvitað má alltaf deila
um við hvað skuli miðað, en engu að síður er fátæktin
alvarlegt samfélagsmein sem vinna þarf gegn með
tiltækum ráðum. Aðhafast þarf í þessum efnum, orð
duga ekki.
Fátæktin
Fordómalaust
Ekki verður með nokkru móti
séð að aldursfordómar séu
til staðar í Bandaríkjunum ef
marka má aldur frambjóðenda
Demókrata til forsetaframboðs.
Þeir sem uppi standa þegar
allir aðrir eru hættir eru hátt á
áttræðisaldri. Annar 77 ára og
hinn 78 ára. Þeir eru um það
bil tíu árum eldri en almennt
er miðað við að menn hætti
þátttöku á vinnumarkaði hér
heima. Þetta er til fyrirmyndar
hjá Demókrötum. Sitjandi
forseti er heldur ekki neitt
unglamb. Trump verður 74
ára þegar kosningar fara fram
vestur þar. Er þetta ekki okkur
einhvers konar umhugsunar-
efni?
Má nú sem ekki mátti
Sérkennilegur hringlandi varð
um helgina eftir að Kári Stefáns-
son ákvað að bjóða fram aðstoð
Íslenskrar erfðagreiningar
við veiruvarnir. Vísindasiða-
nefnd og persónuvernd töldu
þá að þetta þyrfti nú að skoða
sérstaklega og ef þetta teldist
vísindarannsókn yrði að fá
leyfi fyrir henni. Kári var
ekki hrifinn af því og f lautaði
aðstoðina af. Í gærmorgun
föttuðu svo nefndirnar að ekki
þyrfti leyfi og þetta væri allt í
lagi. Hvað gerðist í millitíðinni
er óljóst nema ef vera skyldi
að sólin skein í gær og kannski
hefur það hjálpað nefndunum
að sjá til lands.
9 . M A R S 2 0 2 0 M Á N U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN