Fréttablaðið - 09.03.2020, Page 32
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Við ætlum bara að vera með
smá kaffiboð fyrir börn okkar
og barnabörn.
Móðir okkar, tengdamamma og amma,
Agnes Pálsdóttir
hárgreiðslumeistari og
Öræfingur með meiru,
lést á Landspítalanum Fossvogi,
4. mars. Útför hennar fer fram frá
Áskirkju, fimmtudaginn 12. mars kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem
vildu minnast hennar er bent á hjartaheill.is.
Ingibjörg Gréta Gísladóttir
Jóna Kristín Jónsdóttir
Guðmundur Sigurbjörnsson Pilvi Routasalo
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir
Mario Ingi, Jóhanna Alba og Birta Mjöll
Þetta leggst bara ágætlega í mig, segir Guðjón Friðriks-son, sagnfræðingur og rit-höfundur sem segist hvergi nærri sestur í helgan stein. „Ég vinn á fullu enn þá svo
mér finnst þetta engin sérstök breyting.
Afmælisdaginn ber bara að eins og þeir
hafa alltaf gert. Ég er enn þá heilsu-
hraustur þótt maður sé náttúrulega
orðinn aðeins stirðari með aldrinum.“
Síðasta bók Guðjóns var ævisaga Hall-
dórs Ásgrímssonar en á þessu ári kemur
út heljarmikið verk eftir hann sem ber
heitið Samvinna á Suðurlandi. „Það er
reyndar svolítið síðan ég lauk við það,
en þetta er fjögurra binda verk sem er
saga allra samvinnufélaga í þremur
sýslum og Vestmannaeyjum að auki,“
segir Guðjón.
Þar verða ekki einungis tekin fyrir
kaupfélögin heldur mörg samvinnufélög
undir ýmsum pólitískum merkjum.
„Þetta er eiginlega héraðssaga Suður-
lands lengst af á tuttugustu öld, þar sem
félögin stóðu fyrir f lestu sem til fram-
fara horfði.“ Guðjón á sjálfur ættir að
rekja til Eyrarbakka, en móðir hans var
fædd í svokölluðu Hraunshverfi á Eyrar-
bakka. „Hverfið er nú að mestu horfið en
ég á enn þá frændfólk á Eyrarbakka og
Stokkseyri.“
Áhugamálin tvinnast þægilega við
störf Guðjóns. „Ég er svo heppinn að geta
unnið við helstu áhugamál mín“ , segir
hann en bætir við að þau hjónin hafi
f leiri áhugamál, sem einkum tengjast
listum. „Við förum meðal annars mikið
á tónleika, fórum t.d. á sjötíu ára afmæl-
istónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands
fyrir helgi og vorum alveg bergnumin.
Hljómsveitin er afbragðsgóð og sinfónía
Mahlers stóð upp úr að þessu sinni“.
En leiðir hjónanna liggja einnig lengra
en niður í Hörpu, þau hafa gaman af að
ferðast og voru nú síðast á Norður-Ind-
landi „Við vorum lengst af í Varanasí
sem er helgasta borg Hindúa. Hún er
alveg þrælmögnuð, eiginlega hryllileg
og heillandi í senn. Indland er ótrúlegur
hrærigrautur af margs konar menningu,
trúarbrögðum og tungumálum, auk
hins mikla mannhafs,“ segir Guðjón og
bætir við að þetta sé einhver eftirminni-
legasta og skemmtilegasta ferð sem þau
hafa farið.
Guðjón fagnar afmælisdeginum í
rólegum faðmi fjölskyldunnar. „Við
ætlum bara að vera með smá kaffiboð
fyrir börn okkar og barnabörn.
arnartomas@frettabladid.is
Engin sérstök breyting
Guðjón Friðriksson fagnar 75 ára afmæli sínu í dag. Hann er enn við störf, á átt-
ræðisaldri skrifar hann um suðurhluta Íslands og ferðast til norðurhluta Indlands.
1309 Klemens 5. páfi flytur aðsetur páfa til Avignon í
Frakklandi.
1562 Kossar á almannafæri bannaðir í Napólí á Ítalíu að
viðlagðri dauðarefsingu.
1573 Sautján fiskibátar með
53 mönnum farast undan
Hálsahöfn í Suðursveit í
Austur-Skaftafellssýslu.
1776 Auðlegð þjóðanna,
hið áhrifaríka rit Adams
Smith, kemur út.
1796 Napóleon Bonaparte
giftist fyrstu konu sinni,
Josephine de Beauharnais.
1833 Sigurður Guðmunds-
son málari fæðist.
1945 Japanar leggja allt
Indókína undir sig.
1953 Útför Jósefs Stalín gerð í Moskvu eftir fjögurra
daga sorg.
1962 Nasser forseti Egyptalands lýsir því yfir að Gaza til-
heyri Palestínumönnum.
1986 Kafarar úr flota Bandaríkjamanna finna stjórnklefa
geimskutlunnar Challenger með líkum allra geimfaranna
sjö sem fórust með skutlunni.
1987 The Joshua Tree, plata hljómsveitarinnar U2
kemur út.
1991 Tugþúsundir mótmæla stjórn Slobodans Milosevic
í Belgrad.
1997 Bandaríski rapparinn The Notorious B.I.G. myrtur í
Los Angeles.
2007 Byggingu nýja Wembley-leikvangsins í Lundúnum
lýkur.
Merkisatburðir
Tónlistarmaðurinn Elvis Aaron Presley
fæddist í Tupelo, í Mississippí-fylki í
Bandaríkjunum 8. janúar 1935. Þennan
dag, 9. mars 1975 hóf hann upptökur
á hljómplötu sem reyndist vera sú
síðasta á hans ferli. Elvis lést í ágúst-
mánuði tveimur árum síðar, þá fjöru-
tíu og tveggja ára að aldri.
Enn um þessar mundir er Elvis einn
þekktasti tónlistarmaður heims og
áhrif hans á tónlist á síðustu öld eru
óumdeild.
Tónlistarferill hans hófst í Memphis
árið 1954 og stóð með miklum blóma
þar til hann lést. Elvis var goðsögn í
lifanda lífi og fjölmiðlar fylgdust með
nær hverju fótmáli hans.
Á sinni tíð vann hann til þrennra
Grammy-verðlauna og heiðursverð-
launa Grammy og hann er sá tónlistar-
maður sem hefur selt flestar hljóm-
plötur. Hann var ekki einhamur þegar
kom að tónlistarstefnum því hann
lagði fyrir sig popptónlist, sveitatón-
list, blús, gospel og margt fleira. Talið
er að hann hafi sungið um sjö hundruð
lög inn á hljómplötur á sinni tíð.
Undir það síðasta átti Elvis við fíkni-
vanda að stríða, sem líklegt er talið að
hafi átt sinn þátt í því að hann féll frá
svona ungur. Árið 2018, rúmum fjórum
áratugum eftir andlátið, var hann
sæmdur bandarísku frelsisorðunni,
sem er æðsta orða sem óbreyttum
borgurum er veitt þar vestra.
Þ E T T TA G E R Ð I S T 9. M A R S 1975
Síðasta hljóðritun Elvis
Guðjón Friðriksson sagnfræðingur og rithöfundur á heimili sínu í gær. Hann er ekki sestur í helgan stein. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
9 . M A R S 2 0 2 0 M Á N U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT