Fréttablaðið - 14.12.2019, Blaðsíða 116
Lífið í
vikunni
08.12.19-
14.12.19
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Affari Clementine jólakúlur
Fullt verð: 350 kr.
NÚ AÐEINS: 210 kr.
Affari Edith jólakúlur
tvær stærðir
Fullt verð frá: 350 kr.
NÚ AÐEINS FRÁ: 210 kr.
SMÁRATORG HOLTAGARÐAR
AKUREYRI ÍSAFJÖRÐUR
Afgreiðslutími Rvk
Mán. til fös. kl. 11–18.30
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
40%
AFSLÁTTUR
AF ALLRI
JÓLAVÖRU
www.dorma.is
VEFVERSLUN
ALLTAF
OPIN
Fyrir þínar
bestu stundir
Nelle dádýr frá Boltze.
15 cm svart, 2 gerðir
Fullt verð: 290 kr.
NÚ AÐEINS: 174 kr.
Boltze jólastjarna úr hvítum pappir.
Fullt verð: 990 kr.
NÚ AÐEINS: 594 kr.
Tulipop heimurinn er búinn að vera til í rúm níu ár og hefur eignast stóran hóp aðdáenda á öllum aldri víða um heim, sem margir
hverjir hafa verið að bíða lengi eftir
Tulipop-bók sem fengist bæði á
ensku og íslensku,“ segir Signý Kol-
beinsdóttir sem skrifaði og mynd-
skreytti Leyniskóginn, f yrstu
barnabókina í f lokknum Sögur frá
Tulipop.
Signý, sem er annar stofnenda
hönnunarfyrirtækisins Tulipop,
segir að í ljósi vinsælda Tulipop víða
um heim hafi þótt tilvalið að láta
reyna á fjármögnun útgáfunnar á
Kickstarter. „Og gefa dyggum aðdá-
endum kost á að tryggja sér eintak
fyrstir allra og fá um leið alls konar
skemmtilegan Tulipop-varning,“
segir Signý sem meðal annars gerði
sérstakar Tulipop-teikningar fyrir
þá rausnarlegustu.
Alls konar aðdáendur
Óhætt er að segja að fjármögnunin
hafi gengið vonum framar þar sem
þeir 10.000 dollarar sem lagt var
upp með söfnuðust hratt og örugg-
lega og þar með náðist takmarkið
um að koma bókinni út fyrir jólin.
Signý segir um helming upp-
hæðarinnar hafa komið frá útlönd-
um og ánægjulegt hafi verið að sjá
hversu fjölbreyttur hópurinn var
sem vildi leggja sitt af mörkum
og hversu margir
þekktu greinilega vel
til Tulipop fyrir.
„En síðan var einn-
ig nokkur fjöldi fólks
sem tók þátt eftir að
hafa uppgötvað Tuli-
pop í gegnum herferð-
ina á Kickstarter, enda
var eitt markmiðið
líka að kynna Tulipop
fyrir f leira fólki um
allan heim.“
Litið um öxl
Þeg a r lok si n s va r
komið að barnabóka-
útgáfunni, eftir tæplega tíu farsæl
ár, ákvað Signý að hverfa aftur til
upprunans þannig að í Leyniskóg-
inum fá lesendur að slást í för með
sveppasystkinunum Gló og Búa
þegar þau hitta þriðju aðalpersónu
Tulipop, skógarskrímslið Fredda, í
fyrsta sinn.
Signý heldur sig einnig við
meginþemu Tulipop frá upphafi;
náttúruna, vináttuna og fjölbreyti-
leikann. „Tulipoppararnir eru allir
innblásnir af f jöl-
sk yldu meðlimu m
mínum og vinum,“
segir Signý um per-
s ónu r n a r. „ M é r
finnst mjög mikil-
vægt að krakkar
lesi um persónur
sem þau geti tengt
við og eru ekki
f ullkomnar. Öll
höfum við okkar
bresti en erum
f lest góð inn við
beinið og þannig
eru persónurnar
í Tulipop.“
Þetta er fyrsta bókin í
bókaseríunni Sögur frá Tulipop
vegna þess að mig langar að gera
fleiri bækur,“ segir Signý sem telur
að þau hjá Tulipop hafi fundið rétta
formið utan um boðskapinn sem
felst í ævintýrum Tulipopparana.
„Okkur fannst þessi stærð og lengd
fullkomin fyrir krakka á aldrinum
fjögurra til átta ára,“ segir Signý.
„Ég hef alltaf haft það markmið
að búa til heim og persónur sem
höfða til krakka á öllum aldri og
við lögðum því áherslu á að bókin
væri líka skemmtileg aflestrar fyrir
foreldrana og eldri systkini.“
Eyja elds og sveppa
Tulipop-eyjan sjálf er um margt
mjög lík Íslandi „Fyrir utan kannski
alla sveppina sem ég held að ég hafi
tekið með mér frá Þýskalandi þar
sem ég ólst upp til níu ára aldurs.
Ég áttaði mig ekkert á því í fyrstu
hvað náttúran spilaði stórt hlut-
verk í Tulipop-heiminum þar sem
við Íslendingar höfum tekið henni
sem sjálfsögðum hlut.
Á Tulipop-eyjunni eru eldfjöll,
heitir hverir og ísjakar. Eyjan er
síbreytileg og lifandi, næstum ein
af persónunum og hugmyndin er að
segja sögur þar sem náttúran skipar
stórt hlutverk. Að miðla þannig með
ævintýralegum sögum jákvæðum
skilaboðum til krakka og full-
orðinna um að bera virðingu fyrir
landinu og náttúrunni.“
toti@frettabladid.is
Tulipopparabók frá
eyju elds og sveppa
Fyrsta bókin í Sögum frá Tulipop segir frá kynnum Búa og Glóar
af skógarskrímslinu Fredda. Hópfjármögnun úgáfunnar sannfærði
höfundinn um að margt er enn ósagt um Tulipopparana.
Signý Kolbeinsdóttir á enn margt ósagt frá eyjunni Tulipop og ævintýrum
íbúa hennar þannig að Leyniskógurinn markar aðeins upphafið.
GRÁTT GAGN
OG GAMAN
Pétur Yngvi í Nexus
segir reynsluna af
fyrsta ári útgáfu
sérvalinna mynda-
sagna um Leður-
blökumanninn
lofa góðu enda
þykir hinn myrki
riddari Gotham-
borgar duga vel
til þess að auka
lestraráhuga
ungra drengja.
GUÐHRÆDDUM GELDINGUM
Í HEL KOMIÐ
Óskar Guðmundsson hefur ærna
ástæðu til þess að siga morðingj-
anum í glæpasögunni Boðorðin
á geistlega barnaníðinga þar sem
þeir eiga sér raunverulega fyrir-
mynd úr æsku hans.
JÓLAKÓSÍ Í MOSÓ
Söngkonan
dáða Diddú
heldur í
hefðirnar og
keyrði jóla-
stemninguna
í gang í sinni
Mosfells-
heimasveit á
föstudaginn
með heimilis-
legum jóla-
tónleikum
tuttugasta og
annað árið í
röð.
MYRK ÚTRÁS
Harpa Einarsdóttir kynnti jólalínu
Myrka, Kabukimono, sem hverfist
um silkikímonóa enda samdi hún
nýlega um að hanna fyrir Asíu-
markað.
1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R76 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð