Fréttablaðið - 14.12.2019, Blaðsíða 14
Thyssenkrupp Marine
Systems hefur framleitt
freigátur, korvettur, og
kafbáta fyrir þýska sjóher-
inn og aðra sjóheri. Það
fyrirtæki er í samstarfi við
norska hergagnaframleið-
andann Kongsberg um að
framleiða fjóra kafbáta fyrir
norska herinn.
FRÉTTASKÝRING
Hvort það „viðri vel til loftárása“ líkt og Sigur Rós söng um árið skal ósagt látið, en það hefur verið gott gengi á
síðari árum hjá vopnaframleiðend-
um heimsins. Sala vopna og þjón-
ustu til herja heimsins hjá stærstu
100 vopnaframleiðendunum nam
alls 420 milljörðum dala árið 2018.
Það er 4,6 prósenta aukning miðað
við árið á undan. Þetta er sam-
kvæmt nýrri samantekt Alþjóðlegu
friðarrannsóknarstofnunarinnar í
Stokkhólmi (SIPRI).
420 milljarðar dala eða 51 billjón
íslenskra króna er dágóð upphæð,
ríf lega sextánföld þjóðarfram-
leiðsla Íslendinga árið 2018.
Samkvæmt SIPRI er vopnasala
skilgreind sem sala á hernaðar-
vörum og þjónustu til viðskipta-
vina innanlands og erlendis. Í
talnagögnum þeirra sést að sala á
vopnum og herþjónustu hefur auk-
ist um 47 prósent hjá 100 stærstu
fyrirtækjum vopnaiðnaðar heims-
ins frá árinu 2002, þegar stofnunin
hóf að safna upplýsingunum. Hafa
ber í huga að vopnasala Kínverja er
ekki inni í tölum SIPRI vegna skorts
á áreiðanlegum gögnum.
Samruni bandarískra
vopnaframleiðenda
Fimm stærstu vopnaframleiðend-
urnir eru bandarískir: Lockheed
Martin, Boeing, Northrop Grumm-
an, Raytheon og General Dynamics.
Vopnasala þessara fimm fyrirtækja
er samanlögð um 148 milljarðar
dollara eða um 35 prósent af vopna-
sölu hundrað stærstu fyrirtækjanna
árið 2018.
Bandarísk vopnaframleiðsla
hefur á síðari árum notið víðtæks
stuðnings stjórnvalda enda skapar
hún störf og hefur sterk stjórn-
málatengsl. Donald Trump Banda-
ríkjaforseti hefur stutt innlenda
vopnaframleiðslu dyggilega með
kaupum á nýjum búnaði sem og
útrás þessara fyrirtækja. Þannig
studdi Trump síðasta vor umdeilda
22 vopnasölusamninga til Sádi-
Arabíu og Sameinuðu arabísku
furstadæmanna að verðmæti um
8,1 milljarður dala, en ríkin hafa
staðið í stríði í Jemen frá árinu 2015.
Vopnasala rússneskra
fyrirtækja er stöðug
Rússar teljast 8,6 prósent af 100
stærstu vopnaf ramleiðendum
heims. Samanlögð sala tíu stærstu
rússnesku fyrirtækjanna á árinu
2018 var um 36,2 milljarðar dala.
Langstærsti vopnaframleiðandi
Rússlands, Almaz-Antey, hefur 129
þúsund starfsmenn. Fyrirtækið
er í 9. sæti heimslistans og með 27
prósent af heildarvopnasölu rúss-
neskra fyrirtækja. Þetta var gott ár
hjá Almaz-Antey, salan jókst um 18
prósent og nam 9,6 milljörðum dala.
Skýrist það af góðri innlendri eftir-
spurn og miklum vexti í útflutningi,
einkum sölu á S-400 loftvarna-
kerfinu. Tyrkir keyptu slíkt kerfi
þrátt fyrir mótmæli stjórnvalda í
Washington.
Af 100 stærstu á heimslista SIPRI
eru 27 evrópskir vopnaframleið-
endur. Samanlagt jókst salan lítil-
lega á árinu og nam 102 milljörðum
dala. Vopnasala Frakka jókst en
minnkaði hjá breskum og þýskum
fyrirtækjum. Í Bretlandi eru átta
hergagnaframleiðendur á heims-
listanum.
SIPRI segir hið breska BAE Sys-
tems vera stærsta vopnaframleið-
anda heims utan Bandaríkjanna.
Vopnasala fyrirtækisins dróst
aðeins saman árið 2018 og nam
21,2 milljörðum dala. BAE Systems
smíðar flest bresku herskipin, flesta
brynvarða bíla bandaríska hersins
og leggur mikið til tæknibúnaðar í
F-35 herþotur Lockheed Martin.
Rafale bardagaþotur vinsælar
Frakkar gera það gott í hergagna-
iðnaði og samanlögð vopnasala
þeirra nam 23,2 milljörðum dala.
Munar þar mestu um 30 prósenta
söluaukningu á hinum vinsælu
Dassault Rafale bardagaþotum
framleiðandans Dassault Aviation.
Meðal kaupenda eru Indverjar, Kat-
arar og Egyptar.
Þýsk vopnaframleiðsla hefur séð
Viðrar vel
til loftárása
Það er gott gengi hjá vopnaframleiðendum heims-
ins. Sala í alþjóðlegum vopnaiðnaði eykst um 4,6
prósent. Fimm bandarísk fyrirtæki eru þar efst. Nú
eru 27 virk stríð og meiriháttar átök í heiminum.
Framhald á síðu 12
Davíð
Stefánsson
david@frettabladid.is
1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð