Fréttablaðið - 14.12.2019, Síða 34

Fréttablaðið - 14.12.2019, Síða 34
hesti, Prinsi frá Hlíðarendakoti. Þegar við fórum með hana til hans sagði mamma: „Mér er alveg sama hvaða litur kemur, nema ég vil ekki fá moldótt, en svo er Snerpa jafnvel draugmoldótt á sumrin!“ Harpa Rún er í hlutastarfi í Bóka- kaffinu á Selfossi og hjá útgáfunni Sæmundi. Segir ekkert ósvipað að vinna í bókaútgáfu og vera bóndi. „Menn verða bara að ganga í allt sem þarf, og læra það í leiðinni. Ég tók aldrei neinn inngangskúrs í því sem ég er að gera.“ Eftir nám í grunnskólanum á Hellu og Fjöl- braut á Selfossi kveðst hún hafa farið í bókmenntafræði í Háskóla Íslands og líkað vel í höfuðborginni. „Ég hef ekkert á móti Reykjavík þó mig langi ekki að búa þar. Ég held að Reykvíkinga langi ekkert að búa hér heldur – en háskólaárin voru dásamleg. Ég skil ótrúlega vel Reykvíkinga sem fara aldrei út fyrir 101, það er bara þeirra heimur. Ég tengi vel við það af því ég mundi svo gjarnan vilja vera alltaf hér og aldrei þurfa að f lytja. Þetta er það sama, bara átthagabönd.“ Hún kveðst vilja verða bóndi í framtíðinni, að minnsta kosti með. „Það er víst ekkert „bara bóndi“ lengur. En við erum þrjú systkinin sem viljum öll vera hér og mamma og pabbi eru auðvitað bændur enn þá. Við erum öll að gera eitthvað annað líka og getum raðað þeim verkefnum kringum þessa sam- vinnu. Þannig gengur þetta. Stóri bróðir er búinn að byggja hús hér við heimreiðina og fjölskyldan flutti inn í mars á þessu ári. Hann á litla Kolbrá Eddu og líka einn lítinn son. Þau lífga upp hér.“ Skáldleg stund og falleg Edda heitir einmitt ljóðabókin hennar Hörpu Rúnar sem hún fékk verðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir. Þar má í ljóðum greina unga Eddu og aldna Eddu – aðra að koma, hina að fara. Sú eldri lést vorið 2018 og hennar er sárt saknað, að sögn Hörpu Rúnar. „Hún var systir mömmu, hét Erla en við kölluðum hana Eddu. Bjó á Selfossi en var mikið hér á sumrin og alltaf í hug- anum. Fylgdist með hvað var í gangi og þær mamma heyrðust í símanum á hverjum degi. Hún var 58 árum eldri en ég en mikil vinkona mín og fylgdi mér dálítið menntaveg- inn. Þegar ég var í Fjölbraut á Sel- fossi bjó hún þar rétt hjá og ég fór oft til hennar í hádeginu. Stoppaði líka alltaf hjá henni þegar ég var á leiðinni heim úr Reykjavík. Hún var svona fastur punktur. Ég byrjaði að skrifa þessa bók þegar hún fór á spítala og upp úr því á hjúkrunar- heimili. Þegar ég fór að skrifa um gamla konu sem var að hætta að skilja heiminn þá fattaði ég samhengið við barnið sem var að byrja að skilja heiminn. Það varð kveikjan. Þegar Erla dó, þá varð þetta uppgjörsferli og þannig spratt bókin fram.“ Þetta hefur ekki verið skólaverk- efni, segi ég. „Nei, ég var að skrifa um dystópíu í meistaranáminu og útskrifaðist einmitt sama dag og duftkerið hennar Erlu kom hingað austur. Hún var auðvitað dálítið farin að gleyma undir það síðasta en var klár kona og hafði áhuga á fólk- inu sínu. „Hvað ertu að skrifa um, segirðu? Dystópíu? hvað er það?“ Stundum var ég á leiðinni heim af fundum hjá leiðbeinanda, alveg upptendruð og fannst þetta allt svo merkilegt. Hún hlustaði alltaf. „Já, sagði hann það? Góður!“ Skildi þetta auðvitað ekki en setti sig samt inn í það þá stundina. Flestir ættingjarnir sögðu bara: „Já, já,“ og nenntu ekkert að kynna sér þetta.“ Harpa Rún kveðst hafa orðið steinhissa þegar hún frétti að hún hefði fengið verðlaun fyrir hand- ritið sem hún sendi nafnlaust inn í júní og var hætt að hugsa um, enda kominn september. „Ég varð alveg himinglöð. Við vorum inni í Veiði- vötnum, öll saman fjölskyldan, það hittist svo fallega á. Ég sat og horfði út yfir vatn þegar síminn hringdi, reyndar inni í bíl og þar var vont símasamband. Kona kynnti sig og sagðist vera formaður Tómasar Guðmundssonar nefndarinnar, en ég öskraði á kærastann: „Snúðu bílnum, snúðu bílnum, ég heyri ekk- ert hvað hún er að segja!“ Eftir á var þetta samt skáldleg stund og falleg.“ Búskapur og textavinna Kærasti Höpur Rúnar heitir Sig- urður Rúnar Rúnarsson og hún segir þau örugglega hafa hist fyrst í Fjölbraut á Selfossi. „Sigurður er Selfyssingur en ég fór samt til Reykjavíkur að finna hann. Við kynntumst 2012, þegar hann var í Söngkeppni framhaldsskólanna með Sjómannaskólakórnum sem vann keppnina það árið. Það má segja að ég hafi verið grúpppía með karlakór! Svo vatt þetta upp á sig. Sigurður er vélfræðingur og rafvirki og vinnur uppi á Hellis- heiði. Hann á íbúð á Selfossi og við erum því líka með aðsetur þar en við ætlum að byggja hérna, það er komið í ferli. Svo höfum við verið að mennta okkur og stefnum á að reyna að vinna héðan að einhverju leyti. Hann er í námi núna sem gefur honum meiri tök á því. Við reynum að vera praktísk.“ Þú afgreiðir samt ekki í Bóka- kaffi gegnum tölvuna – bendi ég á. „Nei, það er æ sjaldnar sem ég fæst við það. Ég vinn samt í Bóka- kaffinu, annars er ég mest að rit- stýra og prófarkarlesa, aðallega hjá Sæmundi en hef líka tekið að mér önnur verkefni, það er bolti sem rúllar. Get gert það hvar sem er og búskapur passar vel með texta- vinnu. Vakna og lesa til tíu, fara þá í fjósið og gefa og f leira, koma inn og lesa fram að kaffi, þá eru seinni gjafir. Maður þarf alltaf að standa upp frá lestrinum hvort sem er. Til dæmis er sauðburður oft góður í prófarkarlestur. Það er jólabóka- tíminn. Kannski er ekkert að gerast klukkan tíu á kvöldin í húsinu, en samt verður að fara aftur klukkan tólf og það tekur því ekki að leggja sig. Ég las einmitt Björn og Svein eftir Megas í sauðburðinum í vor, rúmlega 500 síðna bók.“ Er gott netsamband? „Já, við fengum ljósleiðara fyrir nokkrum árum. Allt í einu var tekin skyn- samleg ákvörðun og byrjað efst í sveitinni, öfugt við það sem tíðkast við vegagerð, þar sem er byrjað að malbika neðst en aldrei klárað alla leið upp úr. Svo þarf ég ekki einu sinni netsamband, bara blað og blýant. Mér finnst ég verða að lesa prófarkir á pappír. Nýti arkirnar í innpökkun og allt mögulegt. Þegar ég sýndi pabba og mömmu hand- ritið að bókinni minni í fyrsta skipti þá prentaði ég hana út á bakhlið prófarkar og pabbi sagði: „Ég skil nú bara ekkert í þessu.“ Þá var hann að lesa próförkina!“ Hófsemin í heiðri höfð Nú langar mig að vita eitthvað um jólahaldið í Hólum og Harpa Rún verður eitt bros. „Það kemur jóla- klukka inni í mér þegar snjóar í kyrrðinni. Við höfum það mjög gott um jólin. Reynum alltaf að ljúka vinnunni í fjárhúsunum snemma á aðfangadag. Það gengur þó sjaldn- ast eftir. Það er svolítið misjafnt hversu mörg við erum hér á jól- unum, eftir því hvar tengdabörnin eru, hingað til höfum við flest verið átta, það var ansi skemmtilegt, svo- lítið þröngt en gaman – voða jóla- legt. Ég er rosa mikið jólabarn. Vil alltaf gera allt eins og áður, baka það sama, hafa sama skraut á sama stað og halda í hefðir. Við systkinin og strákarnir í Næfurholti – ég hef þá alltaf með í huganum, við erum jafngömul og vorum einhvern veg- inn alltaf saman – og ég vil líka fara að Næfurholti og sjá sama skraut á sama stað þar! Þetta ákall núna um að reyna að minnka neyslu, meðal annars um jólin, kallast ágætlega á við stílinn okkar, hér hefur aldrei verið mikil neysla og miklar gjafir, við erum meira bara í að vera saman. Jóla- tréð er, ég veit ekki hvað gamalt, jólaskrautið er líka gamalt og ef það eru bakaðar gyðingakökur og hálfmánar þá er ég bara góð. Við borðum kótelettur. Það hefur svo- lítið með það að gera að jólin eru klukkan sex og fjósatíminn líka. Það er svo f ljótlegt að gera kóte- lettur í ofni. Um það bil passlegt að setja þær í ofn þegar farið er í fjós og vera þá búin að leggja á borð, þá er hægt að byrja að borða fljótlega eftir að búið er að mjólka. Þetta er þægilegt, þetta virkar og okkur finnst þetta gott. Við erum mikið bókafólk á þess- um bæ og þannig er það í Næfur- holti líka, það fá allir bók og það er mikið lesið og spjallað og spilað. En við erum lítið jólaboðafólk, sem helgast líklega af því að hér var oft snjór og ófærð. Ekki erum við kirkjurækin heldur en dveljum dálítið í fjárhúsum um jólin eins og frelsarinn forðum.“ Bókaútgáfan Sæmundur gaf Eddu út. ÞETTA ÁKALL NÚNA UM AÐ REYNA AÐ MINNKA NEYSLU, MEÐAL ANN- ARS UM JÓLIN, KALLAST ÁGÆTLEGA Á VIÐ STÍLINN OKKAR, HÉR HEFUR ALDREI VERIÐ MIKIL NEYSLA OG MIKLAR GJAFIR Framhald af síðu 28 Harpa segir ekki vandalaust að finna nöfn á kindurnar, enda verði þau að passa karakterunum. Nú er það verkefni fram undan að skíra allar lambgimbrarnar en þar hjálpast fjölskyldan að. Skjól Sama sól og sama tungl sjá ykkur rísa og hníga í skjóli sama fjallahrings líður líf ykkar prýtt hláturblómum skelfingarsköf lum táraf lóðum líf ykkar allt ekki nema andartak hvíslar eldfjallið að jökulleifunum. 1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.