Fréttablaðið - 14.12.2019, Blaðsíða 114
Fréttablaðið fékk tísku-spekúlantana Stefán Svan, Tinnu Bergmann og Arnór Leó til að tala um tískuárið sem er að líða.
„Mér finnst Henrik Vibskov hafa
sýnt það í ár hversu mikill meistari
hann er á sviði fatahönnunar. Hann
er í stöðugri þróun og með höfuð og
herðar yfir trend-hönnuði dagsins í
dag,“ segir Stefán Svan fatahönnuð-
ur, og annar eigandi Stefánsbúðar/
P3, spurður um þann fatahönnuð
sem hreif hann mest á árinu.
Maison Margiela SS20 tísku-
sýningin stóð uppúr og þá sér í lagi
þegar Leon Dame lokaði sýningunni
með mjög svo ákveðnu og áköfu
göngulagi sínu.“
Persónulegur stíll
Roisin Murphy
„Ég heillast af Roisin Murphy þar
sem hún hefur mjög persónulegan
stíl og þorir að prufa sig áfram með
nýja hluti. Hún kemur auga á flotta
hönnuði sem eru alls ekki að gera
það sama og hinir og útkoman er
þar af leiðandi einstakur stíll.
Björk Guðmundsdóttir er nátt-
úrulega í sérflokki hvað varðar stíl
og það er búið að vera ævintýra-
legt að fylgjast með henni á hennar
nýjasta tónleikaferðalagi. Hún hefur
einstakt lag á að vinna með flottu
fólki þegar kemur að heildarútliti og
verða því tónleikarnir ekki aðeins
flottir fyrir eyru heldur líka augu,“
segir Stefán.
Spennandi og metnaðarfullt
„Mér finnst mjög gaman að fylgj-
ast með Arnari Má Jónssyni sem
starfar í London. Hann er metnaðar-
fullur hönnuður sem er að gera mjög
spennandi hluti
Ég er líka alltaf mjög hrifinn af
því sem Eygló gerir, hún var að
frumsýna línuna sína AMEN. Hún
blandar saman húmor og glæsileika
sem er akkúrat það sem ég elska,“
segir Stefán.
Sjálfbærni og mannúð
Hvað er á útleið?
„Skynditíska og trendhyggja er
vonandi á útleið. Hefur ekki góð
áhrif á jörðina og lífríkið.
Ég held að sjálf bærni, lífræn og
mannúðleg framleiðsla verði leið-
andi í tískubransanum. Þeir sem
eru ekki með það að leiðarljósi eru
hreinlega ekki með.
Þegar að stíl kemur, verður
mikið um liti og munstur á næsta
ári í bland við heila liti, það er það
skemmtilega við þetta allt saman,
það má hreinlega allt sem manni
dettur í hug, “ segir Stefán.
Kúrekar, unisex skart,
klassík og pönk
„Unisex lína skartgripahönnuðarins
Alan Crocetti er öflug,“ segir Tinna
Bergmann innkaupastjóri GK.
Tískuannáll 2019 Tinnu fannst Rotate vera með flottustu kjólana í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Stefán var hrifinn af jólalínu Eyglóar, Amen. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Arnari fannst Luka Sabbat bera af í persónulegum stíl á árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Silfurlitaður Kanye West, Maison Margiel
2020, sjálfbærni og mannúð eru á meðal
þess sem álitsgjafar Fréttablaðsins mátu að
hefði einkennt árið sem er að líða.
„Rotate er spennandi merki sem
framleiðir kjóla fyrir allan aldur
og tilefni. Eins Tonsure fyrir herra
en þeir voru tilnefndir til virtra
verðlauna á árinu, The Interna-
tional Woolmark Prize in Europe.
Þeir eru taldir vera vonarstjörn-
urnar í herratískunni í Danmörku
um þessar myndir. Þeir hanna
klassískar f líkur með smá tvisti og
skemmtilegum smáatriðum. Aðal-
hönnuðurinn og stofnandi Ton-
sure, Malte Flagstad hannaði fyrir
Maison Margiela áður en hann
stofnaði Tonsure, og er algjörlega
hönnuður sem fólk ætti að fylgjast
með,“ segir Tinna.
Hvað verður heitt á næsta ári í
þínum bókum?
„Árið 2020 verður það sitt hvað
af öllu. Klassísk plíseruð pils, helst
hnésíð í anda sjöunda áratugarins,
eru að koma sterk inn, með bla-
zer-jökkum. Brúntóna litir, beige,
camel, gulir og appelsínugulir.
Það verður líka smá áttundaára-
tugs pönkfílingur með göddum
og grófum skóm. En svo gætir líka
villta vesturs áhrifa, kúrekastíg-
vél og skyrtur. Stórar slaufur sjást á
tískupöllunum og plíseraðar buxur,
háar í mittið. Isabel Marant er mjög
þekkt fyrir það snið. Í mynstri er
það sebramynstrið gamla góða
og það sést mikið af afrískum
mynstrum. Fjölbreytileikinn er
ráðandi og núna finnst mér tími til
að ýta undir persónulegan stíl, láta
hann skína. Hafa svolítið gaman af
þessu.“
Hvað er á óskalistanum þínum,
Tinna?
„Mig langar í Alan Crocetti skart-
gripi og dreymir um klassísku Saks
Pot kápurnar, mig langar í annað
hvort rauða eða græna. Þær eru svo
tímalausar. Ég er líka með auga á
nokkrum Rotate kjólum.“
Ragga Gísla sjúklega töff
„Að mínu mati stendur valið á milli
Anine Bing og Victoriu Beckham.
Og Victoria fyrir sinn klassíska stíl,
en heldur samt alltaf þægindunum.
Ég fíla að blanda þessu tvennu svo-
lítið saman,“ segir Tinna.
„Ragga Gísla. Hún er alltaf sjúk-
lega töff, svo f lott en áreynslulaus
og með sinn eigin stíl, mjög sjálf-
stæð í fatavali. Gerir allt að sínu.“
Fátt toppar silfurlitaðan
Kanye West
„Ég hef mjög gaman af því að fylgj-
ast með Julius Juul, sem er hönnuð-
ur og stofnandi Heliot Emil ásamt
bróður sínum Victor Juul,“ segir
Arnar Leó Ágústsson um það hvaða
erlendi hönnuður greip athygli
hans á árinu.
Hvert var tískumóment ársins?
„Fátt mun toppa silfurlitaðan
Kanye West fyrir mér, annars var
cat-walkið hjá Casablanca f/w í
janúar 2019 sturlað og þegar Asap
Rocky mætti á LACMA gala með
Gucci klút sem „Babushka“.
Luka Sabbat best klæddur
„Luka Sabbat hefur lengi verið mjög
áberandi þegar kemur að klæða-
burði þar sem að hann hefur upp á
margt að bjóða. Flakkar á milli stíla,
klæðist hælaskóm, notar naglalakk
og svo framvegis til þess að krydda
upp á stílinn,“ segir Arnar Leó.
Hvaða tískutrend risu hæst að
þínu mati?
„Hjólabuxur við blazera, bucket-
hattar, of stórar og víðar buxur,
mini-bags og oversized pufferar/
parka, vintage tíska.“
Er eitthvað sem þér finnst vera á
útleið?
„Neon.“
Hvað verður heitt á næsta ári í
þínum bókum?
„Tæknilegur fatnaður, blazer-
jakkar, kósýbuxur, mittissniðinn
fatnaður og margt f leira,“ segir
hann.
steingerdur@frettabladid.is
SKYNDITÍSKA
OG TREND-
HYGGJA ER
VONANDI Á
ÚTLEIÐ.
HEFUR EKKI
GÓÐ ÁHRIF Á
JÖRÐINA OG
LÍFRÍKIÐ.
Stefán Svan
1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R74 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð