Fréttablaðið - 09.03.2020, Blaðsíða 6
Selið er visst flagg-
skip í sveitarfélag-
inu og íbúar eru nú að taka
höndum saman til að
mótmæla þessu.
Guðmundur Ari Sigurjónsson
Stjórnvöld í Afganistan
hafa mótmælt rannsókninni
og sett á laggirnar eigið
rannsóknarteymi.
SELTJARNARNES Starfsemi félags-
miðstöðvarinnar Selsins er í upp-
námi eftir að fjármunir til starf-
seminnar voru óvænt skornir niður
í janúar. Selið hefur verið einn helsti
miðpunktur æskulýðsstarfs og
flaggskip forvarna í bæjarfélaginu.
Að auki er þar starfsemi fyrir eldri
borgara.
Á miðvikudag var foreldrum til-
kynnt að bæði forstöðumaður og
æskulýðsfulltrúi hefðu sagt upp
störfum. Ekki mátti endurráða
í stöðu forstöðumannsins, Guð-
mundar Ara Sigurjónssonar, og
æskulýðsfulltrúinn og fleiri starfs-
menn sögðu upp störfum vegna
niðurskurðarins.
Er nú Selið aðeins opið tvö kvöld
í viku í stað fimm áður. Mörgum
foreldrum og íbúum er mikið niðri
fyrir vegna stöðunnar og óttast að
starfseminni og því forvarnarstarfi
sem þar hefur verið unnið, sé stefnt
í hættu.
Nýlega var gerð rekstrarúttekt á
sveitarfélaginu vegna tapreksturs
og er nú verið að vinna að hagræð-
ingu í rekstrinum. Voru rekstrar-
gjöld Selsins 43 milljónir á árinu
2018. Niðurskurðurinn í Selinu var
tilkynntur eftir að fjárhagsáætlun
fyrir árið 2020 lá fyrir.
Guðmundur Ari, sem er jafnframt
oddviti Samfylkingarinnar á Sel-
tjarnarnesi, hefur mótmælt niður-
skurðinum harðlega í bæjarstjórn
og hvetur til þess að ákvörðuninni
verði snúið við.
„Selið er visst f laggskip í sveitar-
félaginu og íbúar eru nú að taka
höndum saman til að mótmæla
þessu,“ segir Guðmundur. Meðal
annars hefur verið stofnaður hópur
á samfélagsmiðlum til að ræða stöð-
una sem upp er komin.
„Ég geri athugasemd við að bæjar-
stjóri hafi tekið þessa ákvörðun
einn síns liðs. Þetta var ekki rætt
í fagnefnd, bæjarráði eða bæjar-
stjórn. Mér finnst það mjög alvar-
legt þegar nýbúið er að gera fjár-
hagsáætlun þar sem gert er ráð fyrir
óbreyttri starfsemi. Það er ekki eins
og Selið sé stór, fjárhagslegur baggi á
sveitarfélaginu,“ segir Guðmundur.
Hefur hann nú kallað eftir svörum
við því í bæjarráði hvernig mönnun
verði háttað.
Einna alvarlegast í málinu, að
mati Guðmundar, eru áhrifin á
forvarnastarfið. „Við Seltirningar
vorum Íslandsmeistarar í drykkju
árið 1997. Síðan þá hefur verið sett
átak í gang sem hefur ríkt mjög víð-
tæk sátt um meðal bæjarbúa,“ segir
hann. Sé aðeins litið í budduna þá
skili þessi niðurskurður engu, því
að forvarnir spari til lengri tíma
og minnki útgjöld vegna annarra
úrræða í framtíðinni, ef unglingar
lenda út af sporinu.
Ekki náðist í Ásgerði Halldórs-
dóttur, bæjarstjóra Seltjarnarness,
við vinnslu þessarar fréttar.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Óttast um afdrif Selsins eftir
niðurskurð á fjárframlögum
Starfsemi Selsins, félagsmiðstöðvar á Seltjarnarnesi, er nú í uppnámi eftir niðurskurð í starfsmannahaldi
og hefur starfið þegar dregist saman. Fyrrverandi forstöðumaður segir stöðina flaggskip í sveitarfélaginu
sem skipti lykilmáli í forvörnum ungmenna á Nesinu. Auk þess er rekin þar starfsemi fyrir eldri borgara.
16 milljónir í sóttkví á Norður-Ítalíu
Ítölsk stjórnvöld hafa gripið til stórtækra ráðstafana á Norður-Ítalíu til að hefta útbreiðslu kórónaveirunnar. Allt að 16 milljónir, um fjórðungur
allra Ítala, hafa verið settar í sóttkví og mjög strangt ferðabann. Lokunin gildir til 3. apríl og kveður á um nær algjört ferðabann til og frá tilgreind-
um svæðum. Um alla Ítalíu hefur skólum, söfnum og samkomuhúsum einnig verið lokað. Myndin er frá Markúsartorginu í Feneyjum. MYND/GETTY
Guðmundur Ari hætti í Selinu í janúar. Þar er nú aðeins opið tvö kvöld í viku í stað fimm. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HOLLAND Dómarar við Alþjóðlega
sakamáladómstólinn í Haag í Holl-
andi heimiluðu í síðustu viku sak-
sóknurum að hefja rannsókn sem
beinist að talibönum, afgönsku
herliði og bandarísku her- og leyni-
þjónustufólki, vegna stríðsglæpa og
glæpa gegn mannkyni.
Þar með hefur fyrri úrskurði
dómstólsins frá því í apríl á síðasta
ári verið snúið við og því verður
Fatou Bensouda, saksóknara við
dómstólinn, heimilað að hefja ítar-
lega rannsókn á meintum glæpum
í Afganistan. Bensouda hefur óskað
eftir því í þrjú ár að hefja slíka rann-
sókn en alltaf verið synjað.
Dómstóllinn er milliríkjastofnun
innan Sameinuðu þjóðanna. Hann
hefur lögsögu í málum einstaklinga
sem grunaðir eru um alvarlega
glæpi í alþjóðlegu tilliti og er óháður
samþykki viðkomandi ríkja.
Dómarar við dómstólinn viður-
kenndu í fyrra að glæpir hefðu
verið framdir í Afganistan, en töldu
sakfellingu ólíklega. Mannrétt-
indasamtök víða um heim mót-
mæltu afstöðunni harðlega. Hún
væri hvatning til þeirra ríkja sem
neituðu að viðurkenna og vinna
með dómstólnum.
Bensouda saksóknari segir að
upplýsingar séu um pyntingar og
önnur ódæðisverk meðlima banda-
rískra her- og leyniþjónustustofnana
í átökum í Afganistan, aðallega á
árunum 2003 til 2004. Hún segir
einnig að talibanar og aðrir vígahóp-
ar, sem og afganskar öryggissveitir,
séu grunuð um pyntingar og morð,
sem falli undir lögsögu dómstólsins.
Stjórnvöld í Afganistan, sem eiga
aðild að dómstólnum, hafa mót-
mælt rannsókninni og hafa sett á
laggirnar eigin rannsóknarteymi.
Dómstóllinn lætur einungis til sín
taka mál sem viðkomandi ríkja eru
ófær um, eða ófús til að ákæra.
Bandarísk stjórnvöld viður-
kenna ekki lögsögu dómstólsins
yfir bandarískum ríkisborgurum
og neita að vinna með honum. – ds
Munu rannsaka
ódæðisverkin
COVID-19 Frans páfi f lutti sunnu-
dagsbænir sínar í gær á sjónvarps-
skjá en ekki í eigin persónu á Pét-
urstorgi í Vatíkaninu, eins og hefð
er fyrir. Hann birtist áheyrendum
sínum þannig vegna kórónaveir-
unnar.
Frans páfi sem er 83 ára gamall
dró sig í hlé í síðustu viku vegna
kvefeinkenna og hóstakasta meðan
á bænahaldi stóð. Hann hefur til-
kynnt að hann sæki ekki viðburði
heldur ætli að halda sig heima við
og ná heilsu. Samkomuhald liggur
að mestu niðri á Ítalíu. – ds
Frans páfi bað
bara í beinni
Á skjánum í stað eigin persónu.
Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn.
9 . M A R S 2 0 2 0 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð