Fréttablaðið - 09.03.2020, Síða 10
9 . M A R S 2 0 2 0 M Á N U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
FÓTBOLTI Þeir voru undrandi sér-
fræðingarnir í Vellinum, uppgjörs-
þætti Símans um enska boltann,
þegar talað var um Anthony Marti-
al. Eiður Smári Guðjohnsen benti á
að það hefði verið kveikt á perunni
og það hefði jafnvel sést í bros.
Arnar Gunnlaugsson tók undir.
Það geta allir verið sammála um að
Anthony Martial er frábær í fótbolta
og þegar það er kveikt á perunni
standast honum fáir snúning. Og
það skein svo sannarlega skært, ljós-
ið af kappanum, nánast frá upphafs-
f lauti í nágrannaslagnum. Hann
var virkur í spilinu, hreyfanlegur
og stöðug ógn. Eftir um hálftíma
leik skoraði hann fallegt mark eftir
magnaða aukaspyrnu frá Bruno
Fernandes. Þó City hafi verið meira
með boltann skapaði liðið sér fá
færi og framlína þess virkaði frekar
bitlaus. Scott McTominay tryggði
sigurinn með marki á síðustu sek-
úndunni eftir mistök frá Ederson í
rammanum hjá City.
City er þó áfram í öðru sæti, en
þessi úrslit þýða að Liverpool þarf
aðeins tvo sigra til að landa Eng-
landsmeistaratitlinum í fyrsta
sinn í 30 ár. Liverpool spilar næst
gegn Everton eftir slétta viku en í
millitíðinni spilar City gegn Arse-
nal á miðvikudag og svo Burnley á
laugardag. Fari svo að þeir hendi inn
hvíta handklæðinu og gefist hrein-
lega upp, getur Liverpool fagnað
titlinum án þess að spila. Lallað inn
á Goodison Park sem meistarar. Það
yrði saga til næsta bæjar.
Anthony Martial er fæddur
fimmta desember árið 1995 og á
tvo eldri bræður sem eru einnig
að sparka í bolta. Elsti bróðirinn
er varnarjaxl en sá í miðjunni er
miðjumaður. Foreldrar hans, Joran
og Audrey, gáfu engan afslátt af
náminu eða trúnni, en Martial
er kaþólikki og fer reglulega með
bænir fyrir hvern leik. Þegar hann
var sex ára gekk hann í raðir CO
Les Ulis akademíunnar þar sem
Thierry Henry og Patrice Evra
stigu sín fyrstu skref. Foreldrar
Henry og Martial eru einmitt fínir
vinir og lítur Martial mjög upp til
Henry. Þegar hann var 12 ára fór
hann að skoða aðstæður hjá Manc-
hester City, en ákvað að vera áfram
í Frakklandi. Njósnarar Lyon komu
auga á guttann og fengu hann til
liðsins þegar hann var 14 ára. Árið
2012 kynnti hann sig inn á alþjóða-
sviðið þegar EM U-17 ára fór fram í
Slóveníu. Þar sást að hann var einn
efnilegasti leikmaður mótsins.
Í desember það ár kom hann inn
á, í sínum fyrsta leik fyrir Lyon í Evr-
ópudeildarleik gegn Hapoel Ironi
Kiryat Shmona og fyrsti leikur hans
með aðalliðinu var í febrúar 2013.
Monaco kom kallandi og keypti
óharðnaðan unglinginn það sumar
á fimm milljónir evra. Í nóvember
spilaði hann sinn fyrsta leik fyrir
félagið þegar hann kom inn á fyrir
Radamel Flacao. Hann kom aðeins
við sögu í sigurmarki Monaco
með smáspretti. Annað tímabilið
sitt endaði hann með níu mörk í
36 leikjum og skoraði sitt fyrsta
mark í Meistaradeildinni um versl-
unarmannahelgina 2015. Jafnaldrar
hans á Íslandi hafa væntanlega
verið að gera eitthvað allt annað.
Það vissu fáir hvað var í gangi
þegar þær fréttir fóru að berast að
Manchester United ætlaði að gera
hann að dýrasta unglingi allra tíma
en þá fór fótbolti.net að flytja fréttir
af fyrirhuguðum kaupum. Frétta-
leitin á þeirri síðu sýnir að miðill-
inn hafði aðeins einu sinni skrifað
um hann. Wayne Rooney, sem þá
var fyrirliði liðsins, hafði ekki hug-
mynd um hver þessi gutti var. Louis
van Gaal, sem stýrði félaginu, sagði
að það hefði verið búið að fylgjast
með honum í langan tíma. Arsene
Wenger, sem hafði þokkalegustu
tengingar til Frakklands og sér-
staklega til Mónakó, viðurkenndi
að hann hefði ekki haft hugmynd
um að guttinn væri til sölu.
Og ferillinn gæti ekki hafa byrjað
betur því Martial skoraði í fyrsta
leik sínum gegn Liverpool. Þá sáu
stuðningsmenn ungan, glaðan
dreng skora og fagna með tilþrifum.
Síðan eru liðin fimm ár og Martial
virkar oft á mjög marga eins og
hann sé hreinlega í fýlu og mjög
vondu skapi. Hann er allavega ekki
mikill gleðipinni innan vallar. En í
gær var, eins og Eiður sagði, kveikt á
perunni og þá standast fáir honum
snúning. Það var líka svolítið hjarta
í honum og sál. Hann fagnaði mark-
inu sínu vel og innilega og þegar
myndavélin beindist að honum og
Bruno Fernandes upp í stúku, var
hann í alvörunni glaður og kátur
og faðmaði alla sem vildu faðmlag.
Þannig er hann bestur. Vonandi,
fyrir liðið, verður hann eitthvað
áfram í góðu skapi.
benediktboas@frettabladid.is
Loksins sást
glitta í bros
hjá Martial
Anthony Martial skoraði fyrra mark Manchester
United í nágrannaslagnum í gær. Það þýðir að
Liverpool getur orðið meistari án þess að spila
og gæti lyft bikarnum á Goodison Park. Martial
hefur ekki beint verið þekktur fyrir gleði sína
innan vallar en það var létt yfir Frakkanum í gær.
11
mörk hefur Martial skorað
á timabilinu. Hann skoraði
einnig 11 mörk á sínu fyrsta
tímabili.
45
mörk hefur Martial skorað í
búningi Manchester United
og gefið 20 stoðsendingar.
SPORT
HETJA HELGARINNAR
Anthony Martial
Martial var 19 ára þegar hann var keyptur til
Manchester United fyrir svimandi upphæð.
Alls gætu félagaskiptin kostað félagið um
70 milljónir punda. Hann sló snemma í gegn
hjá Lyon og var keyptur til Monaco. Hann
var þó ekki mjög þekktur utan Frakklands
og þegar hann var keyptur greindi Morgan
Schneiderlin frá að Wayne Rooney hefði
ekki hugmynd um hver þessi gutti væri.
Þú átt að vera
klár þegar
boltinn kemur í teiginn
og ég er alltaf að setja
pressu á hann. Ég vil sjá
meira frá honum.
Ole Gunnar Solskjær um
Martial
Hann spilar í
stöðum þar
sem við erum með
leikmenn eins og Alex
Oxlade-Chamberlain,
Alexis Sanchez og Joel
Campbell.
Arsene Wenger - þáverandi
stjóri Arsenal