Fréttablaðið - 09.03.2020, Blaðsíða 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
ÞAÐ ER ALVEG
ÓUMDEILANLEGT AÐ
ÞETTA ÍSLENSKA VATN ER
ÓTRÚLEGA MERKILEGT OG
HEFUR ÓTRÚLEGA MÖGNUÐ
ÁHRIF Á ÁFENGIÐ SEM ER FRAM-
LEITT HÉRNA.
9 . M A R S 2 0 2 0 M Á N U D A G U R18 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
magnifique
york
ligne
classico
magnifique
york
ligne
classico
magnifique
york
ligne
lassico
magnifique
york
ligne
classi o
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
SERTA ER OPINBER SAMSTARFSAÐILI
HILTON WORLDWIDE HÓTELKEÐJUNNAR
Nótt fyrir tvo á Hilton Reykjavik Nordica,
ásamt morgunverði og aðgangi að
Hilton Reykjavik Spa, fylgir kaupum
á Serta fimm stjörnu hótelrúmi.
Verðmæti: 36.000 kr.
Kynningarverð: 296.650 kr
Verð frá: Classico 160 x 200 cm (botn, fætur, dýna, yfirdýna og gafl)
Fullt verð: 349.000 kr. (með Hilton Reykjavik Nordica kaupauka 385.000 kr.)
5 STJÖRNU HÓTELRÚMIN frá Serta eru framleidd til að fullnægja
ýtrustu kröfum. Fjaðrandi botn gefur 5 svæða heilsudýnunni
óvið jafnanlega fjöðrun og stuðning, lúxus yfirdýnan lagast
að þér og þér líður eins og þú svífir. Velkomin í þitt 5 stjörnu
heilsurúm, heima hjá þér – allar nætur – alltaf.
CLASSICO, YORK OG LIGNE eru með Serta Splendid Royal
heilsu dýnu frá Serta. Hún er fimm svæðaskipt pokagormadýna
með góðum stuðningi við bak en mýkra gormakerfi á axla- og
mjaðma svæði. Hægt er að velja um tvo stífleika á dýnunni eftir
því hvað hentar hverjum og einum. Yfirdýnan er millistíf, úr
kaldpressuðum svampi og vinnur vel á móti fjöðruninni í botni
og dýnu.
MAGNIFIQUE rúmið er með Serta Royalty Superior heilsudýnu
sem sker sig frá Splendid Royal m.a. með því að vera með
tvískiptu gorma kerfi og aukinni kantstyrkingu.
Áklæðið á rúmunum er slitsterkt bómullaráklæði, ofnæmisfrítt
og andar einstaklega vel. Það er fáanlegt í nokkrum litum sem
eru mismunandi eftir rúmgerðum. Hægt er að velja mismunandi
fætur og einnig eru fáanleg náttborð í stíl.
FIMM STJÖRNU
LÚXUS HÓTELRÚM
– HEIM TIL ÞÍN –
Fimm stjörnu Hótel -rúmalínan frá Serta er
nú á kynningarverði í Betra Baki auk þess að
nótt á Reykjavik Nordica ásamt morgunverði
fyrir tvo og aðgangi að Hilton Reykjavik Spa
fylgir kaupum á Serta fimm stjörnu hótelrúmi. Við ákváðum að fara þá leið að heiðra þann góða mann Eg ger t Óla f s son, segir Arnar Jón Agn-arsson, um íslenska
ginið Olafsson, sem hann vonast til
að geta veitt í stríðum straumi inn á
alþjóðlegan áfengismarkað.
Arnar Jón segir að þar sem íslensk
náttúra; vatnið og jurtir séu mikil-
vægasta hráefnið í hinu nýja gini
hafi þótt tilvalið að beintengja
áfengan vökvann fósturmoldinni,
með því að nefna hann eftir einum
ákafasta boðbera upplýsingarinnar
hér á landi.
Áfeng náttúra
Skáldið, rithöfundurinn og nátt-
úrufræðingurinn Eggert Ólafsson
er þekktastur fyrir að hafa fært í
letur Ferðabókina, um ferðir sínar
og Bjarna Pálssonar um Ísland, á
árunum 1752-1757.
Arnar Jón telur Eggert til þeirra
Íslendinga sem mætti fjalla meira
um og fannst, eftir nokkra yfirlegu,
tilvalið að lyfta nafni hans með
vísun á miðanum á ginflöskunni.
„Náttúra Íslands er í raun notuð í
vökvann sjálfan og Eggert er í Ferða-
bókinni í raun og veru að lýsa öllum
jurtum sem finnast á Íslandi.“ Að
vatninu ógleymdu. „Hann lýsir líka
nánast hverju einasta vatnsbóli og
það er alveg óumdeilanlegt að þetta
íslenska vatn er ótrúlega merkilegt
og hefur ótrúlega mögnuð áhrif á
áfengið sem er framleitt hérna,“
segir Arnar Jón sem telur galdur-
inn liggja í háu sýrustigi vatnsins.
„Það virðist hjálpa til við að gera
vökvann mjög mjúkan, eða „smo-
oth“ eins og það kallast á vondri
íslensku.“
Slett úr klaufunum
Arnar Jón segir að þegar kom að
því að finna gininu nafn, hafi verið
lagt upp með að ná dýpri og sterkari
tengingu við náttúruna en til dæmis
einfaldlega að finna gott örnefni.
„Við fórum að skoða söguna og
duttum niður á Ferðabókina og
miðinn á f löskunni er eiginlega
tekinn úr henni þar sem Eggert
Ólafsson lýsir náttúru Íslands og
þjóð,“ segir Arnar Jón, en hið gamal-
kunna slagorð: „Við skulum sletta úr
klaufunum“ prýðir einnig flöskuna.
„Við ætlum að reyna eins og
við getum að komast með þetta á
alþjóðlegan markað. Við gerum
okkur vel grein fyrir að samkeppn-
in þar er gríðarlega hörð, en Ísland
vekur alltaf áhuga og þess vegna
lögðum við mikinn metnað í að
hanna bæði miðann og vökvann
og ætlum að reyna að nota íslenska
metnaðinn til að koma þessu út,“
segir Arnar Jón sem þó heldur ró
sinni. „Þetta er bara skemmtilegt
verkefni og vantar ekki alltaf eitt-
hvað til að flytja út? Við getum ekki
bara flutt út fisk endalaust.“
Ginnkeypt veröld
Íslenskir áfengisfrumkvöðlar virð-
ast mikið fyrir ginið þessi misserin.
Þannig hefur nú þegar verið gerður
góður rómur að íslensku gintegund-
unum Himbrima og Glacier Gin. Og
Arnar Jón telur sig síður en svo vera
að bera í ginfullan lækinn.
„Þetta er bara mjög einfalt mál.
Heimurinn er bara óður í gin í dag.
Bara á síðustu tíu árum hefur verið
gríðarlegur vöxtur í ginneyslu í
heiminum,“ segir Arnar Jón og
bendir á fjóra meginpóstana á vin-
sældahringekju brenndra vína;
vodka, gin, romm og tekíla.
„Þetta er einhver hringur sem
áfengið fer í og það var komið að
gininu. Bombay byrjaði þetta á
sínum tíma með svona léttu gini og
það áhugaverðasta sem er að gerast
í þessum heimi núna er að ginin eru
alltaf að verða léttari og léttari.“
Hann segir ginið stöðugt verða
„auðdrekkanlegra“ ef svo má að orði
komast. „Þetta er ekki jafnþungt og
Gordon´s, til dæmis, sem margir
alveg elska. Þetta er samt að verða
léttara og fínlegra og þótt búið sé að
spá því undanfarin ár að það fari að
hægja á þessu, er það bara ekkert að
gerast.“
Arnar Jón segir gintilraunirnar
því síður en svo bundnar við Ísland
heldur sé þetta eins um allan heim.
„Allir sem eru að byrja í áfengi byrja
á gini og fara svo út í eitthvað annað
í framhaldinu.“
toti@frettabladid.is
Ginmosinn glóir í
Ferðabókarflöskum
Íslenska ginið Olafsson er kennt við náttúrufræðinginn Eggert
Ólafsson þar sem íslenskar jurtir, vatn og bjartsýni eru leynivopn
framleiðandans sem ætlar sér stóra hluti í ginnkeyptum heimi.
„Þetta er mjúkt og það kemur smá jörð í þetta. Ekki alveg mosi kannski, en pínu jurtabragð, þótt ég ætli nú ekki að
segja að þetta sé eins og að drekka íslenska náttúru,” segir Arnar Jón um Olafsson. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Flöskumiðinn tengir ginið við
náttúrufræðinginn úr Svefneyjum.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI