Fréttablaðið - 13.03.2020, Page 12

Fréttablaðið - 13.03.2020, Page 12
Fólk yfirgefur félögin og á hverju ári er enn erfiðara að fá fólk til að sinna sjálfboðaliða- störfum til að reka félögin. Úr bréfinu til borgaryfirvalda ÓLYMPÍULEIK AR Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, minntist á möguleikann á að Ólympíuleik- unum í Tókýó yrði frestað um eitt ár þegar hann sat fyrir svörum á blaðamannafundi í gær. Þegar fjórir mánuðir eru í að leikarnir hefjist í Tókýó er mikil óvissa um hvort aflýsa þurfi leikunum vegna útbreiðslu kórónaveirunnar. Liðin eru 76 ár síðan aflýsa þurfti Ólymp- íuleikunum í þriðja sinn í sögunni, þá vegna heimsstyrjaldar. Trump var spurður hvort honum fyndist það rökrétt skref að aflýsa leikunum og sagðist forsetinn von- ast til þess að þeim yrði frestað. „Það er raunhæfur möguleiki þó að það sé skrýtin hugmynd að hafa enga áhorfendur. Ég veit ekki hvort það sé hægt en það væri góð hug- mynd að fresta Ólympíuleikunum um eitt ár. Það yrði synd en það er betri hugmynd en að hafa tómar stúkur að mínu mati.“ – kpt Trump leggur til að fresta ÓL Trump er farinn að blanda sér í um- ræðuna um ÓL. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP 1 3 . M A R S 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT FÓTBOLTI Evrópska knattspyrnu- sambandið, UEFA, mun funda með aðildar félögum sínum á þriðjudaginn þar sem ákvörðun verður tekin um framhaldið í ljósi útbreiðslu kórónaveirunnar í Evr- ópu. Þar verður meðal annars rætt um framhaldið í Meistaradeild Evr- ópu, Evrópudeildinni og hvort Evr- ópumótið fari fram í sumar. Stuttu eftir að UEFA boðaði til fundarins sagðist franska blaðið L'Équipe hafa heimildir fyrir því að búið væri að ákveða að fresta Evrópumótinu um eitt ár og að útsláttarkeppnin í Evr- ópukeppnunum yrði með minna sniði en áður. Útbreiðsla kórónaveirunnar gerði það að verkum að ítölsk stjórnvöld bönnuðu alla íþróttaviðburði í þrjár vikur á dögunum. Spænsk knattspyrnuyfirvöld og hollensk knattspyrnuyfirvöld gripu til sömu úrræða í gær, degi eftir að NBA- deildin var sett í hlé. Í gær bárust fréttir af því að Real Madrid væri komið í sóttkví, degi eftir að Daniel Rugani, leikmaður Juventus, greindist með veiruna og er því ljóst að hvorki Real Madrid né Juventus eru að fara að spila í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í næstu viku. Þegar blaðið fór í prentun voru enn áform um að leikir í ensku úrvalsdeildinni færu fram um helg- ina en þrír leikmenn Leicester voru með einkenni veirunnar og virðist því aðeins tímaspursmál hvenær deildin verður stöðvuð. – kpt Krísufundur hjá UEFA eftir helgi Forseti UEFA þarf að taka stóra ákvörðun. MYND/GETTY ÍSHOKKÍ „Alþjóðaíshokkísamband- ið er með stjórnarfund eftir helgi þar sem tekin verður ákvörðun um framhaldið. Við erum með allt til- búið en ég viðurkenni að ég er ekki bjartsýnn á að þetta fari fram,“ sagði Konráð Gylfason, framkvæmda- stjóri ÍSÍ, aðspurður hvort búið væri að fresta riðli Íslands á HM sem á að fara fram í næsta mánuði í Skauta- höllinni í Laugardal. Ísland leikur í B-riðli annarrar deildar og var von á landsliðum frá Belgíu, Nýja-Sjálandi, Georgíu, Mexíkó og Búlgaríu til Íslands í apríl. Búið er að fresta keppninni í 4. deildinni. „Ég hef enn þá leyfi til að halda mótið. Það er búið að skipuleggja ferðamáta fyrir öll lið og taka frá hótel og það er mikil vinna að baki við að skipuleggja þetta mót. Lík- legast verður þessu frestað um eitt ár og mótið fer fram hér á landi á næsta ári frekar en að það fari fram síðar á árinu.“ Ferðabann bandarískra stjórn- valda gæti hafa gert útslagið. „Bæði þau frá Mexíkó og Nýja- Sjálandi áttu að koma í gegnum Bandaríkin ásamt einum af leik- mönnum okkar, Robbie Sigurðs- son. Það er óvíst hvort það gangi eftir. Markvörður okkar býr í Dan- mörku og það er óvíst hvort hann kemst. Svo er búið að aflýsa öllum íþróttaviðburðum í Búlgaríu sem er með okkur í riðli og ég efast um að þeir myndu fá að koma hingað,“ sagði Konráð og tók undir að útlitið væri svart. „Ég tel nánast víst að þessu móti verði frestað. Það er allt sem bendir til þess.“ – kpt Bendir allt til þess að mótinu verði frestað Frá æfingu landsliðsins í Skautahöllinni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI KEILA Á síðasta ári fór ÍTR-styrkur upp á 32 milljónir í Keiluhöllina í Egilshöll. Upphæðin er trúlega litlu minni á þessu ári. Keilusambandi Íslands finnst gáfulegra að eyða þessum peningum í aðstöðu sem er á forsendum íþróttarinnar og tekjur renni þangað en ekki til einkaaðila. Keilusamband Íslands hefur sent Reykjavíkurborg bréf til að þrýsta á borgina um að fá betri aðstöðu þar sem þetta kemur fram. Allir aðilar, sem stunda og keppa í keilu, skrifa undir bréfið. Óska aðilarnir, sem eru keiludeildir KR, ÍR og Aspar sem og Keilufélag Reykjavíkur og Keilusamband Íslands, eftir að koma upp aðstöðu í fyrirhugaðri uppbyggingu á ÍR-svæðinu. Er aðal- stjórn ÍR fylgjandi þeirri hugmynd. Segir í bréfinu að þátttakendum í félögunum fari fækkandi þar sem komin sé afskaplega mikil þreyta í þá sem stunda íþróttina vegna aðstöðuleysis. „Fólk yfirgefur félög- in og á hverju ári er enn erfiðara að fá fólk til að sinna sjálf boðaliða- störfum til að reka félögin,“ stendur í bréfinu Benda bréfritarar á að íþróttinni sé útvegaður takmarkaður tími í einkahúsi. Í eigin aðstöðu geta félögin sótt á og náð í iðkendur sem hefur ekki verið hugað að eins og eldri borgara, skóla og f leiri innan raða Asparinnar svo dæmi séu tekin. Í núverandi aðstöðu er ekki hægt að búa til afreksfólk og benda bréf- ritarar á þá staðreynd að Arnar Davíð Jónsson flutti af landi brott sökum aðstöðuleysis en hann varð fimmti í kjöri íþróttamanns ársins eftir stórkostlegt ár í fyrra þar sem hann vann Evrópumótaröð keil- unnar meðal annars. Jóhann Ágúst Jóhannsson, for- maður Keilusambands Íslands, segir að staðan sé sú að aðeins séu til tveir keilusalir á Íslandi. Annar í Egilshöll og hinn á Akranesi. Þegar mest var, voru brautir líka í Öskju- hlíð og á Akureyri. „Þetta er engin gagnrýni á reksturinn í Egilshöll – við viljum hafa salinn þar alltaf fullan því þetta er svo skemmtileg íþrótt, en það segir sig sjálft að þegar afreksíþróttamenn þurfa að deila tíma með almenningi þá verður erfitt að bæta sig. Í keilu þarf að laga hin ýmsu smáatriði og það gengur erfiðlega ef það er bara hægt að kasta á 10 mínútna fresti.“ Jóhann bendir á til einföldunar að fótboltinn ætti ekki sinn Gylfa Sig, sinn Jóhann Berg og f leiri góða ef þeir hefðu bara fengið að æfa á hálfum velli – því það væri bumbubolti á hinum helmingnum. „Það verður enginn góður í golfi með því að spila alltaf áttundu braut í GKG. Sama er með keil- una. Enginn salur er eins og engar brautir í sama salnum eru eins. Það er mikil tækni á bak við hvert skot.“ Hann segir að tilgangurinn með bréfinu sé að hugsa fram í tímann. Það sé hægt að setja upp sal á ÍR- svæðinu og sjá íþróttina vaxa og dafna án þess að setja peninginn í vitlausa átt. „Okkur vantar okkar rými og okkar stað.“ benediktboas@frettabladid.is Keilarar vilja upp í Breiðholt Þeir sem æfa og keppa í keilu vilja losna úr Egilshöllinni og komast í fyrirhugaða aðstöðu ÍR. ÍTR greiddi eigendum Egilshallar 32 milljónir í styrk á síðasta ári. Sá besti þurfti að flytja út vegna aðstöðuleysis. Arnar D. Jónsson, besti keilumaður landsins, þurfti að flytja af landi brott vegna aðstöðuleysis. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.