Fréttablaðið - 13.03.2020, Síða 20
Hér erum við með
íslenskt lífrænt
bygg frá Vallanesi og það
sem er nokkuð merkilegt
við íslenska byggið er að
það þarf einungis 6,8%
af byggi til þess að ná
þessu öfluga bragði en í
Evrópu er allt að 12 til
17% bygg í drykkjunum.
Karen Jónsdóttir, eigandi, framleiðandi og nýsköp-unaraðili hjá Kaja Organic,
segir að byggmjólkin sé fyrsta
íslenska jurtamjólkin sem fer á
markað. „Þegar ég segi íslensk
þá erum við að tala um íslenskt
bygg en sú jurtamjólk sem var
gerð tilraun með að framleiða
var úr erlendum höfrum blönduð
íslensku vatni. Hér erum við með
íslenskt lífrænt bygg frá Vallanesi
og það sem er nokkuð merkilegt
við íslenska byggið er að það þarf
einungis 6,8% af byggi til þess að
ná þessu öfluga bragði en í Evrópu
er með allt að 12 til 17% bygg í
drykkjunum,“ útskýrir hún.
Karen fékk Öndvegisstyrk frá
Uppbyggingarsjóði Vesturlands
fyrir tveimur árum til að vinna að
þessu verkefni. „Ég hef unnið við
þetta samhliða rekstri á fyrir-
tækinu mínu á Akranesi. Loksins
get ég sagt að ég hafi náð að klára
verkefnið og útkoman er þessi
eðaldrykkur sem byggmjólkin er,“
segir hún.
„Byggmjólkin verður seld í
takmörkuðu upplagi til að byrja
með því næsta skref er að auka
framleiðslugetuna með hentugri
vélbúnaði. Byggið er einstaklega
hollt enda inniheldur það mikið af
beta-glukana sem lækkar kólest-
eról, gott fyrir stress og styrkir
ónæmiskerfið að því ógleymdu að
byggið myndar gel sem fóðrar og
mýkir magann og nærir slímhúð
ristilsins. Næstu skref eru svo
byggmjólkurdrykkir og fleiri
afurðir svo sem jurtajógúrt.“
Kaja organic ehf. er í eigu Kar-
enar Jónsdóttur og var stofnað í
mars 2013. Slagorð fyrirtækisins
Kaja organic ehf. er „lífrænt fyrir
alla“ er þá m.a. verið að vísa í verð-
stefnu fyrirtækisins og þá hugsjón
að heimurinn verði lífrænn eins og
hann var í upphafi síðustu aldar.
Nánari upplýsingar á heimasíð-
unni kajaorganic.com eða í síma
431 1622/ 840 1661. Varan fæst í
Hagkaup (Kringlunni, Smáralind,
Garðabæ, Skeifunni), Melabúðinni
og Matarbúri Kaju á Akranesi.
Íslensk byggmjólk á markað
Fyrirtækið Kaja organic ehf. sem er starfrækt á Akranesi hefur hafið framleiðslu á íslenskri bygg-
mjólk. Varan er unnin úr lífrænu byggi frá Vallanesi en verkefnið hefur verið í þróun í tvö ár.
Nýja byggmjólkin frá Kaja Organic verður seld í takmörkuðu upplagi til að byrja með. Einstaklega holl vara.
Það er vissulega
ákjósanlegra að
grænmeti og
ávextir séu lífræn
en þó er misjafnt
hversu mikilvægt
það er milli ólíkra
tegunda.
Lífræn ræktun á grænmeti og ávöxtum felur meðal annars í sér minna magn skordýra-
eiturs sem gjarnan er notað í
hefðbundinni framleiðslu. Þá eru
aðrir eiginleikar á borð við tegund
og þykkt hýðis sem gera það að
verkum að talið er betra að gæta
þess að vissar afurðir séu lífrænar.
Það versta og það besta
Á hverju ári birta umhverfis-
samtökin EWG, eða Envi-
ronmental Working Group,
lista yfir það grænmeti og
ávexti sem mælst hafa
með mest magn skor-
dýraeiturs en listinn
gengur undir heitinu
„The Dirty Dozen“.
Vörurnar eru keyptar í
matvöruverslunum og
þvegnar áður en þær
eru mældar. Þá birta
samtökin einnig lista
yfir þær vörur sem taldar
eru hvað „hreinastar“ þrátt
fyrir að vera ekki endilega
lífrænt vottaðar.
Efst á listanum yfir þær
vörur sem mælast með mestu
magni skordýraeiturs í ár eru, líkt
og áður, jarðarber. Í rannsókn
EWG kom fram að mælst hefðu
ein eða fleiri tegundir
skordýraeiturs í yfir 90%
jarðarberja. Næst á
listanum var spínat
en þar mældist
mesta magn eitur-
efna miðað við
þyngd. Þá fannst
umtalsvert
magn permetr-
íns í mörgum
sýnum en það
er þekkt tauga-
eitur.
Þriðja sætið
vermir grænkál
og á eftir fylgja
nektarínur, epli,
vínber, ferskjur,
kirsuber, perur, tóm-
atar, sellerí og að lokum
kartöflur.
Í fyrstu þremur sætum á list-
anum yfir þær vörur sem mældust
með minnst magn skordýraeiturs
eru laukur, lárperur og maískorn
en í þeim mældist lítið magn skor-
dýraeiturs. Næst kemur ananas,
sperglar, grænar ertur, kíví, kál,
eggaldin, papaya, vatnsmelóna,
spergilkál, blómkál, kantalópur og
að lokum sveppir.
Samtökin ráðleggja upplýstum
neytendum að fylgjast með
þessum listum og hafa til hlið-
sjónar við matarinn-
kaup.
Afurðir sem betra er að séu lífrænar
Jarðarber hafa
lengi verið í
fyrsta sæti yfir
þær afurðir
innihalda
mest magn
skordýra-
eiturs.
FRÉTTABLAÐIÐ/
STEFÁN
Spínat er í öðru
sæti á listanum yfir
afurðir sem mælast
með mest magn skordýraeiturs.
Laukurinn marglaga er í fyrsta
sæti á lista yfir þær vörur sem
mælast með minnstu magni
skordýraeiturs.
4 KYNNINGARBLAÐ 1 3 . M A R S 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RLÍFRÆN VOTTUN