Fréttablaðið - 13.03.2020, Blaðsíða 21
Biobú var stofnað af Krist-jáni Oddssyni og Dóru Ruf á Neðri-Hálsi í Kjós. Biobú fær
mjólk frá tveimur bæjum, Neðri-
Hálsi í Kjós og Búlandi í Austur-
Landeyjum. „Skortur á lífrænni
mjólk hefur verið viðvarandi
síðustu ár og hefur Biobú ekki
getað þróað nýjar vörur til að setja
á markað, það stendur til bóta og
unnið er að undirbúningi að því
að stórauka framleiðslugetuna
því fyrirséð er að mjólkurmagnið
aukist til muna á næstu misserum
með tilkomu nýs framleiðanda,“
segir Helgi Rafn Gunnarsson,
framkvæmdastjóri hjá Biobú.
Hann segir að það séu þrjár
góðar ástæður fyrir fólk til að velja
lífræna vöru.
1 Af heilbrigðisástæðum
Með því að velja vottuð lífræn
matvæli forðast fólk sjálfkrafa
mörg hættuleg aukefni í mat-
vælum, eins og gervisætuefni
(aspartam, súkralósa) og gervi
matvælafitur, rotvarnarefni og
fleira sem er bannað að nota í
lífrænni matvinnslu. Öll aukefni
notuð í matvinnslu verða að
vera af lífrænum uppruna. Allt
sem er genabreytt er einnig
bannað.
2 Af umhverfisástæðum
Lífrænn landbúnaður bindur
meira en hann losar af gróður-
húsalofttegundum. Í lífrænni
framleiðslu er bannað að nota
Lífrænar mjólkurvörur frá Biobú
Biobú er sjálfstætt fjölskyldufyrirtæki, mjólkurbú, sem framleiðir og selur lífrænar, bragðgóðar
mjólkurvörur. Fyrstu vörur Biobú komu á markað í júní 2003 og fagna því 17 ára afmæli.
Biobú býður
upp á lífrænar
mjólkurvörur
en úrvalið mun
aukast á næstu
mánuðum.
auðleystan tilbúinn áburð og
kemísk varnarefni gegn skordýr-
um og illgresi. Kemískur áburður
er ábyrgur fyrir losun á stórum
hluta gróðurhúsalofttegunda
(GHL) vegna landbúnaðar. Við
lífræna ræktun snýst dæmið við.
Við bindum gróðurhúsaloftteg-
undir í jarðvegi (allt að 3,5 tonn
á hektara á ári) sem tekið er úr
andrúmsloftinu og hjálpum
þannig til við að vernda jörðina
frá of mikilli hlýnun. Við lífræna
ræktun verður engin mengun
í jarðvegi vegna kemískra efna
auk þess sem útskolun á nær-
ingarefnum er haldið í lágmarki.
Lífræn ræktun byggist á því að
viðhalda lokaðri hringrás nær-
ingarefna, þar sem notuð eru öll
þau lífrænu næringarefni sem til
falla á búinu sjálfu.
3 Af mannúðarástæðum
Í lífrænum búskap er dýrum
ætlaður betri aðbúnaður en al-
mennar reglur segja til um. Það
er gert til að dýrin geti hreyft sig
meira og betur notið eðlislægr-
ar hegðunar. Betri aðbúnaður
og lífrænt ræktað fóður þar sem
ekki er fóðrað með tilliti til há-
marksafurða, er okkar leið til að
skapa heilbrigðan bústofn, þar
sem lyfjanotkun er að mestu
óþörf.
Nánari upplýsingar um vörur
Biobú má finna á www.biobu.is
Frá upphafi hefur starf-semi Sólheima einkennst af mikilvægu frumkvöðlastarfi.
„Sólheimar í Grímsnesi voru fyrsti
staðurinn á Norðurlöndum til að
hefja lífeflda ræktun, sem þá hét
(orðatiltækið lífrænt varð ekki
til fyrr en seinna), árið 1930 og
eru því brautryðjendur í lífrænni
ræktun hér á landi,“ skýrir Jónas
Hallgrímsson, sölu- og markaðs-
stjóri, frá.
Mikið úrval lífrænna vara
Starfsemin er afar fjölbreytt. „Það
sem er lífrænt Tún vottað hjá
okkur er Garðyrkjustöðin Sunna
og þar undir er meðal annars Skóg-
ræktarstöðin Ölur. Svo erum við
með lífrænt vottaða kaffibrennslu,
jurtastofu sem framleiðir líf-
rænar sápur, baðsölt og krem og
að lokum erum við með lífrænt
vottað hænsnabú þar sem við
fáum lífræn egg, sem við notum
að mestu í okkar mötuneyti en
seljum einnig í búðinni okkar á
Sólheimum,“ segir Jónas. „Í hugum
margra eru Sólheimar heimili fyrir
fólk með fötlun, sem það vissulega
er, og svo man fólk eftir lífrænum
tómötum, en Sólheimar eru svo
miklu meira en það, eins og sjá má
á umfangi framleiðslu og vöruúr-
vali.“
Aukin dreifing gerir það verkum
að nú gefst fólki frekari kostur á að
nálgast lífrænt ræktað grænmeti
frá Sólheimum í sínu nærum-
hverfi. „Garðyrkjustöðin Sunna
er stærsta lífrænt Tún vottaða
gróðurhús landsins. Við erum ekki
með heilsárslýsingu þannig að
uppskerutímabilið hjá okkur er frá
apríl til nóvember. Bónus kaupir
alla framleiðsluna af okkur og
selur í sínum verslunum. Það sam-
starf hófst síðastliðið vor og verður
því framhaldið í sumar. Í vor
munum við einnig byrja að nota
nýjar endurvinnanlegar umbúðir.
Litlu Sólheimatómatarnir eru
vinsælasta varan okkar, en einnig
erum við með hefðbundna tómata,
agúrku, papriku og einstaklega
glæsileg eggaldin, svo dæmi sé
tekið,“ segir Jónas.
„Svo erum við með Skógræktina
Ölur, sem einnig er lífrænt vottuð
sem hluti af garðyrkjustöðinni.
Eitt stærsta verkefnið þar um
þessar mundir er ræktun á öspum
fyrir Skógræktina og svo eru líka
ræktuð þar jarðarber. Einnig
erum við með Kolefnisjöfnun
Sólheima þar sem einstaklingum
og fyrirtækjum gefst kostur á að
kolefnisjafna í Sólheimaskógi, sem
er lífrænt vottaður.“
Kröftug kaffibrennsla
Þá er mikill metnaður í kaffi-
brennslu Sólheima. „Við erum
einnig með lífrænt vottaða kaffi-
brennslu. Flytjum inn óristaðar
lífrænar kaffibaunir og ristum
eftir ákveðnum aðferðum sem við
höfum þróað og gerum okkar eigin
Sólheimablöndu úr þremur mis-
munandi tegundum af kaffibaun-
um sem koma frá frá Eþíópíu, El
Salvador og Hondúras. Við notum
einungis lífrænt vottað og „fair
trade“ hráefni,“ upplýsir Jónas.
„Við seljum bæði til einstaklinga
og fyrirtækja, erum með kaffið í
250 gr og 1 kg endurvinnanlegum
umbúðum, bæði baunir og malað.
Svo seljum við líka eftir vigt til
stærri notanda. Við notum kaffið
að sjálfsögðu á kaffihúsinu okkar,
Grænu könnunni. Okkur finnst
frábært að geta boðið gestum
okkar upp á hágæða lífrænt kaffi
og þó ég sé nú ekki hlutlaus þá get
ég staðfest að kaffið okkar er mjög
gott.“
Undanfarna mánuði hefur
aukinn kraftur færst í kaffi-
brennsluna. „Við byrjuðum með
kaffibrennsluna fyrir um fimm
árum, með kaffibrennsluofn sem
afkastaði ekki miklu og var ekki
mjög tæknilega fullkomin, en í
nóvember síðastliðnum tókum við
í notkun öflugan ofn sem er bæði
mjög tæknilega fullkominn og
afkastar miklu. Stöðugleiki skiptir
öllu máli í kaffibrennslu og það
er eitt af því sem nýi ofninn gefur
okkur.“
Snyrtivörur og veisluhöld
Það eru ekki aðeins lífrænt vottuð
matvæli sem framleidd eru á
Sólheimum. „Svo erum við með
Jurtastofu sem framleiðir nokkrar
tegundir af lífrænt vottaðri sápu
(bæði fljótandi og sápustykki),
baðsölt, krem, varasalva og jurta-
nudd. Af f ljótandi sápunum eru
Sítrónugras og Lofnarblóm líklega
vinsælastar. Við seljum mest í
250 ml umbúðum til einstaklinga
og seljum einnig í eins lítra
brúsum sem er hugsað til áfyll-
ingar. Svo seljum við sápuna í 20
lítra umbúðum til stærri notenda
til dæmis til veitingastaða og gisti-
heimila, auk þess sem við notum
sápurnar að sjálfsögðu á okkar
eigin gistiheimili,“ segir Jónas.
„Að lokum erum við með lífrænt
vottað hænsnabú, sem gefur okkur
lífræn egg sem við notum bæði til
eigin nota og seljum í versluninni
okkar á Sólheimum.“
Það er nóg fram undan hjá Sól-
heimum á næstu mánuðum. „Í til-
efni stórafmælis Sólheima verður
svo efnt til veglegrar afmælishá-
tíðar og menningarveislu í allt
sumar. Það verða tónleikar alla
laugardaga yfir sumarið auk þess
sem fjórar sýningar verða settar
upp. Þá er unnið að opnun nýrrar
heimasíðu með vefverslun sem
gerir fólki enn frekar kleift að
kaupa lífrænt vottaðar Sólheima-
vörur.“
Sólheimar – 90 ár í lífrænni ræktun
Sólheimar, sem fagna 90 ára afmæli í ár, eru elsta starfandi sjálfbæra samfélagið í heiminum og
hafa alla tíð lagt áherslu á lífræna ræktun og framleiðslu. Úrval afurða hefur aldrei verið meira.
Í Sólheimum í Grímsnesi er framleitt mikið úrval lífrænt vottaðra afurða.
Jónas Hallgrímsson, sölu- og
markaðsstjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
KYNNINGARBLAÐ 5 F Ö S T U DAG U R 1 3 . M A R S 2 0 2 0 LÍFRÆN VOTTUN