Fréttablaðið - 13.03.2020, Blaðsíða 24
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Listinn af þeim
aukefnum sem bæta
má út í lífrænt ræktuð
vín er þó mun styttri en
listi leyfilegra aukefna í
vínum sem ekki hafa
lífræna vottun.
8 KYNNINGARBLAÐ 1 3 . M A R S 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RLÍFRÆN VOTTUN
NESBÚ
EGG
Lífrænu eggin okkar
eru með vottun frá TÚN
www.nesbu.is
Margir gætu haldið að nátt-úrulegt vín og lífrænt vín sé einn og sami hluturinn
en svo er ekki. Það er samt ýmis-
legt sameiginlegt með þessum
vínum. Sérstaklega hvað varðar
sjálf bærni og umhverfisvæna
framleiðslu. En það er þó margt
sem aðgreinir þau.
Lífrænt vín hefur verið skilgreint
samkvæmt lögum þó ekki séu
öll lönd sammála um nákvæmar
skilgreiningar. Evrópusambandið
og Bandaríkin eru til dæmis ekki
sammála um hvort leyfilegt sé að
bæta súlfötum í lífræn vín. Það eru
aftur á móti ekki til neinar laga-
skilgreiningar á náttúrulegu víni
enn sem komið er.
Náttúruleg vín eru framleidd
án þess að nokkru sé bætt við þau
og ekkert er heldur fjarlægt úr
vökvanum í framleiðsluferlinu.
Náttúruleg vín innihalda því
engin aukefni og inngrip við fram-
leiðsluna eru í lágmarki.
Í grunninn eru náttúruleg vín
gerjaður vínberjasafi án nokkurra
aukefna. Þrátt fyrir skort á laga-
bókstaf um náttúruleg vín segir
Náttúruleg eða lífræn vín
Öll náttúruleg vín eru lífræn en ekki eru öll lífræn vín náttúruleg. Munurinn liggur aðallega í nátt-
úrulegum aukefnum sem bæta má út í lífræn vín í framleiðsluferlinu. Þetta er því ekki það sama.
Lífræn og náttúruleg vín eru gerð úr lífrænt ræktuðum þrúgum. MYND/GETTY
Almennt er
engum auk
efnum bætt út
í náttúruleg vín
í framleiðslu
ferlinu.
Isabelle Legeron, stofnandi RAW
vínkaupstefnunnar, að almennt
séu þeir sem aðhyllast náttúruleg
vín sammála um hvað sé ásættan-
legt og hvað ekki til að vín teljist
náttúrulegt.
Lífræn vín geta innihaldið
náttúruleg aukefni
Almennt er talið skilyrði að vín-
berin sem notuð eru til að búa til
náttúrulegt vín séu lífrænt ræktuð.
Við ræktun vínberjanna er ekki
notaður tilbúinn áburður, skor-
dýraeitur eða önnur eiturefni til
að vernda vínviðinn fyrir sníkju-
dýrum. Legeron segir að lífræn
ræktun vínþrúgunnar sé helsta
ástæða þess að öll náttúruleg vín
eru lífræn. Þrátt fyrir það eru alls
ekki öll lífræn vín náttúruleg.
Legeron segir að aðskilnaður
náttúrulegra og lífrænna vína
hefjist í vínkjallaranum. Reglur
um meðhöndlun lífrænna vína
í vínkjöllurum leyfa notkun á
aukefnum eins og til dæmis geri og
sykri. Einnig leyfa margar stofn-
anir sem votta lífræna vínfram-
leiðslu aukefni eins sítrussýru,
tannín, eikarspæni, ýmiss konar
súlföt og fleiri náttúruleg aukefni.
Slík efni eru ekki leyfileg í náttúru-
legum vínum.
Listinn af þeim aukefnum sem
bæta má út í lífrænt ræktuð vín er
þó mun styttri en listi leyfilegra
aukefna í víni sem ekki hefur líf-
ræna vottun.
Náttúruleg vín að sögn Legeron
eiga strangt til tekið ekki að inni-
halda nein súlföt en sumir eru þó
á þeirri skoðun að þau séu í lagi
í mjög litlu magni, en þó í mun
minna magni en leyfilegt er í líf-
rænum vínum samkvæmt reglum
Evrópusambandsins.
Á RAW vínkaupstefnunni sem
Legeron er í forsvari fyrir er gerður
greinarmunur á náttúrulegum
vínum og lífrænum og vistvænum
vínum sem framleidd eru með
lágmarksinngripi. En báðir f lokkar
eru leyfilegir á kaupstefnunni
enda segir Legeron að þessi vín séu
mun náttúrulegri en ólífræn vín.