Fréttablaðið - 06.04.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —8 2 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R M Á N U D A G U R 6 . A P R Í L 2 0 2 0
Sæktu í Nova Lágmúla og við hlaupum með dótið út
í bíl til þín. Þú getur svo græjað allt hitt í Nova appinu.
Græjaðu þig upp á nova.is!
DÓMSMÁL „Ég get áfrýjað til æðra
dómstigs," segir Jóhann Helgason
sem um helgina fékk þau tíðindi frá
Los Angeles að dómari í lagastuldar-
máli hans hefði orðið við kröfu tón-
listarrisanna Warner og Universal
og vísað málinu frá.
Að mati dómarans, André Birotte
Jr., eru ekki slík líkindi milli lags
Jóhanns, Söknuðar, og lagsins You
Raise Me Up eftir Rolf Løvland,
að þau jafngildi lagastuldi. Tekur
Birotte þar undir með tónlistarsér-
fræðingnum Lawrence Ferrara sem
vann sérfræðiálit fyrir Universal
og Warner. Dómarinn segir skýrslu
sérfræðings Jóhanns, Judith Finell,
að sama skapi gallaða og þar með
ómarktæka.
Jóhann segir að nú geti mála-
reksturinn tekið nýja stefnu. Þrátt
fyrir að hann geti áfrýjað til æðra
dómstigs verði erfiðara að sækja
málið. „Með þessari frávísun er
verið að taka frá mér tækifæri því
þá er bara verið að hlusta á þá og
þeirra málstað. Þá er algerlega verið
að hunsa mat þungavigtar tónlistar-
fræðings sem vann fyrir mig," segir
hann. Svo virðist sem dómarinn
hafi ekki skoðað öll gögnin því
vissar rangfærslur séu í niðurstöðu
hans.
Að sögn Jóhanns hefur alltaf
ver ið óv issuþát t u r va rðand i
afstöðu dómara burtséð frá því
hversu gott mál menn hafi í hönd-
unum. Það sé umhugsunarefni
að dómarinn hafi beðið í f jóra
mánuði frá því málið var síðast
tekið fyrir þar til hann birti niður-
stöðu sína. Engu líkara væri en að
hann hefði verið að bíða eftir dómi
í svokölluðu Led Zeppelin-máli sem
féll fyrir nokkrum vikum til að geta
vitnað til þess dóms. Í því máli var
áðurnefndur Ferrara einnig sér-
fræðingur fyrir annan málsaðilann.
„Dómarinn virðist leggja afar
þröngan skilning í málið. Hann
segir að lögin séu ekkert lík og heng-
ir sig í þrönga skilgreiningu sem
tónlistarfræðingur fyrirtækjanna
setur fram. Þá er öllu hent út sem
tengist aðgengi Løvland að Sökn-
uði, til dæmis því að hann var hér á
Íslandi. Þetta er mjög einkennilegt,“
segir Jóhann. – gar
Máli Jóhanns vísað frá í LA
Vatnaskil urðu á föstudag í lagastuldarmáli Jóhanns Helgasonar er dómari í Los Angeles varð við kröfu
tónlistarfyrirtækjanna sem hann stefnir um að vísa málinu frá. Jóhann segist geta áfrýjað niðurstöðunni.
Með þessari frá-
vísun er verið að
taka frá mér tækifæri því þá
er bara verið að hlusta á þá
og þeirra málstað.
Jóhann Helgason
Vetur konungur ætlar ekki að kveðja Ísland þrátt fyrir að lóan sé komin. Það var líf og fjör á Klambratúni síðdegis í gær þrátt fyrir samkomubannið. Þessar stúlkur skemmtu sér konung-
lega við að renna sér á sleða, en það er ekki alltaf hægt í apríl. Forráðamenn ungviðisins reyndu að hlýða Víði og halda sig í tveggja metra fjarlægð frá öðrum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
COVID-19 Karlmaður á sjötugsaldri
lést í gær af völdum COVID-19. Þetta
staðfesta heimildir Fréttablaðsins.
Maðurinn hafði dvalið á Land-
spítalanum um hríð.
Nú hafa fimm einstaklingar látist
hér á landi vegna COVID-19. Ástr-
alskur ferðamaður á fertugsaldri
lést á sjúkrahúsinu á Húsavík, hjón
úr Hveragerði á áttræðisaldri og átt-
ræð kona frá Ísafirði.
Samkomubann á norðanverðum
Vestfjörðum verður hert til muna
eftir að fimm ný COVID-19 smit
komu upp sem tengjast öll svæðinu.
Á Suðureyri, Flateyri, Þingeyri og
Súðavík verður leik- og grunnskól-
um lokað . Þá verður samkomu bann
miðað við fimm manns. Samko-
mubann á landsvísu verður í gildi
út mánuðinn. - ilk
Fimm látnir úr
COVID-19