Fréttablaðið - 06.04.2020, Blaðsíða 30
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
ÉG ER ENN SVOLÍTIÐ
AÐ NÁ TÖKUM Á
FJARKENNSLU EN ÉG ER MJÖG
ÞAKKLÁTUR FYRIR HVAÐ FÓLK
SÝNIR MIKINN SKILNING OG
ÞOLINMÆÐI Á ÞESSUM TÍMUM.
LICATA
sófar og stólar
Ný og glæsileg lína í DORMA.
Sófar, stólar og skammel úr
fallegu og slitsterku áklæði.
Aðeins 187.493 kr.
LICATA
hornsófi
Hornsófi í Kentucky koníak áklæði. Hægri eða vinstri
tunga. Svartir nettir járnfætur. Stærð: 262 x 226 x 82 cm
Fullt verð: 249.990 kr.
25%
AFSLÁTTUR
HEIMA ER BEST
TILBOÐ
Heima er best
verslaðu á dorma.is og
við sendum þér það frítt
Breyttur afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 12–18
Laugardaga kl. 12–18
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
KLIKKAÐU Á VÖRU
OG ÞÚ FERÐ BEINT
INN Í VEFVERSLUN
DORMA.IS
HEIMA ER BEST
tilboðin
Heima er best
verslaðu á dorma.is og
við sendum þér það frítt
STYTTU ÞÉR LEIÐ GEGN
UM BÆKLINGINN OKKA
R
RÚM 2–13 | Mjúkvara og d
únn 14–17 | Stólar 18–19 | S
ófar 20–29 | Hillur, borð o
g skápar 30–33 | Affari og
smávara 34-42
Hv
er
ni
g
frí
se
nd
in
g h
já
D
OR
M
A
vi
rk
ar
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
ALLTAF
OPIN
Þú finnur
nýjan
bækling
á dorma.is
Hv
er
ni
g
frí
se
nd
in
g h
já
D
OR
M
A
vi
rk
ar
á
do
rm
a.i
s
LICATA
2ja og 3ja sæta sófar
Aðeins 89.993 kr.
Sófarnir eru í tvennskonar litum af Kentucky áklæði. Annarsvegar
koniak og hinsvegar steingráu. Svartir nettir járnfætur.
Stærð 2ja sæta: 159 x 94 x 82 cm. Stærð 3ja sæta: 199 x 94 x 82 cm
2ja sæta fullt verð: 119.990 kr. 3ja sæta fullt verð: 149.990 kr.
112.493 kr.
Ég hef alltaf haft mikla þörf til þess að skapa, auk þess sem f lestir í f jölsk yldunni minni starfa í tónlist. Þau hafa öll verið mér mikill
innblástur og þegar ég rataði inn
í tónlistarnám sem krakki þá var
ekki hreinlega ekki aftur snúið,
segir Sævar Helgi Jóhannsson, sem
gengur alla jafna undir listamanns-
nafninu S.hel. Hann gaf út plötuna
Disconnect núna í lok mars.
Víðtæk reynsla
Hann segist hafa nokkuð fjöl-
breytta reynslu þegar það kemur
að tónlistinni.
„Ég hef til að mynda verið í
hljómsveitum, spilað inn á tónlist
annarra, útsett óperu fyrir rokk-
hljómsveit, samið tónlist fyrir ýmis
verkefni á borð við stuttmyndir,
dansverk, leikhús og spilað með kór.
Draumurinn væri að semja tónlist
fyrir kvikmyndir, þætti eða leikhús
í framtíðinni,“ segir hann.
Sævar segist vera frekar róleg
týpa almennt.
„Ég er að klára BA-gráðu í tón-
smíðum við Listaháskólann í vor og
er ásamt því að kenna á píanó við
Tónlistarskóla Sandgerðis. Ég nýt
þess að fara á tónleika eða í leik-
hús og finnst einstaklega gaman að
dansa Lindy hop eða fara á Mánu-
djass.“
Smellpassaði
En hvernig kom samstarf hans með
Whitelabrecs til?
„Tónlistarmaðurinn Mikael Lind
benti mér á plötuútgáfuna og ég
sendi þeim fyrirspurn með ákveð-
inn útgáfudag í huga, 28. mars.
Það er alþjóðlegi píanódagurinn.
Útgáfan sagðist aðeins gefa út á
laugardögum og væri með langt
plan fram í tímann. En svo bættu
þau við að annar listamaður hefði
forfallast einmitt á þessum degi og
28. mars væri einmitt laugardagur
svo þetta smellpassaði,“ segir Sævar.
Sævar leitaði inn á við þegar hann
samdi plötuna.
„Þessi plata endurspeglar vanga-
veltur um einmanaleika og hvernig
við upplifum sjálfið í tengslum við
staði. Skiptir staðsetning uppruna
yfirhöfuð máli? Einnig fjallar tón-
listin um einmanaleikann sem að
myndast í samfélagi sem er búið að
týna sér í amstri dagsins.“
Plötuhönnun var í höndum
þeirra Söruh Mariu Yasdani og Rak-
elar Ýrar Stefánsdóttur.
„Þær framleiddu einnig og leik-
stýrðu tónlistarmyndböndum sem
munu fylgja plötunni. Konseptið
þeirra vinnur hönd í hönd við mús-
íkina og þemað.“
Útskrift í vændum
Sævar er nú búinn að færa sig yfir í
fjarkennsluna í Tónlistarskólanum
í Sandgerði, þar sem hann kennir.
„Ég er enn svolítið að ná tökum á
fjarkennslu en ég er mjög þakklátur
fyrir hvað fólk sýnir mikinn skiln-
ing og þolinmæði á þessum tímum.
Annars er ég bara á fullu að klára
lokaritgerð og svoleiðis fyrir LHÍ
og held mér að mestu leyti heima á
meðan á þessu stendur,“ segir hann.
Sævar hefur í nógu að snúast
„Ég er að einbeita mér að því að
útskrifast úr LHÍ og svo tekur við
samstarfsverkefni með tónlistar-
manninum Mikael Lind. Síðast
en ekki síst mun ég spila á Iceland
Airwaves hátíðinni í nóvember.
Plötuna Disconnect eftir S.hel
er hægt að nálgast á öllum helstu
streymiveitum.
steingerdur@frettabladid.is
Vangaveltur um
einmanaleika
Tónlistarmaðurinn Sævar Helgi Jóhannsson gengur undir lista-
mannsnafninu S.hel. Hann gaf út plötu núna í lok mars í samstarfi
við bresku útgáfuna Whelabrecs á alþjóðlega píanódeginum.
Sævar Helgi hefur áður gefið út EP-plötuna Lucid, en hún kom út árið 2018. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
6 . A P R Í L 2 0 2 0 M Á N U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð