Fréttablaðið - 06.04.2020, Blaðsíða 28
Líklega er Magnús Þór Jónsson, Megas sjálfur, eini núlifandi Íslend-ingurinn sem almenn þjóðarsátt ríkir um að verðskuldi nafnbótina
meistari.
Hann verður 75 ára á morgun,
fæddur 7. apríl 1945, og hefur á um
hálfrar aldar tónlistarferli markað
mörg og djúp spor í íslenska menn-
ingarsögu eins og auðheyrt er á
safnplötunni Syngdu eitthvað
gamalt!
Alda Music gefur plötuna út
Megasi til heiðurs á afmælisdaginn
og eðli mannsins og málsins sam-
kvæmt er ekki um neina smáskífu
að ræða, 42 laga tvöfaldan geisla-
disk eða þriggja platna vínylsafn.
„Safnplatan inniheldur hans
þekktustu lög á tæplega 50 ára tón-
listarferli en fyrsta platan hans kom
út 1972,“ segir Halldór Baldvinsson
útgáfustjóri sem átti völina og kvöl-
ina.
„Það var af nógu að taka og auð-
vitað mjög erfitt að velja lögin á
plötuna og mörg góð lög urðu því
að víkja,“ segir Halldór sem átti þó
því láni að fagna að Megas greip inn
í þegar verið var að reyna að velja
safninu nafn.
„Þegar verið var að spá í hvað
platan ætti að heita, þá kom Megas
með hugmyndina um að nefna hana
Syngdu eitthvað gamalt! en þar
verður fólk bara að lesa í meiningu
hans, eins og í textunum hans.“
Halldór segir að auk geisla-
diskanna hafi verið ákveðið að
gefa Syngdu eitthvað gamalt! út á
þreföldum vínyl til þess að halda
svipuðum lagafjölda óháð útgáfu-
forminu en auk þess verður afmæl-
isveislan aðgengileg á Spotify frá og
með morgundeginum.
toti@frettaladid.is
50 ára skammtur af Megasi
Meistari Megas verður 75 ára á morgun og þá kemur út honum til heiðurs platan Syngdu
eitthvað gamalt! þar sem mörgum þekktustu lögum hans hefur verið safnað saman.
Plata 1
1 Heilræðavísur
2 Gamla gasstöðin við Hlemm
3 Björg
4 Ef þú smælar framan í heiminn
5 Fríða fríða
6 (Borðið þér) Orma frú Norma
7 Sút fló í brjóstið inn
8 Börn í borg
9 Svo skal böl bæta
(ásamt Íkarus)
10 Vatnsrennibrautin
11 Fatlafól
(ásamt Bubba Morthens)
12 Rósa ég kyssi
13 Gamli sorrí Gráni
14 Reykjavíkurnætur
15 Lóa Lóa
16 Krókódílamaðurinn
17 Paradísarfuglinn
(ásamt Spilverki þjóðanna)
18 Skiptimynt í buddunni þinni
19 Saga úr sveitinni
(ásamt Spilverki þjóðanna)
20 Freyjufár
(ásamt Senuþjófunum)
21 Jólanáttburður
Plata 2
1 Skutullinn
2 Ragnheiður biskupsdóttir
3 Mæja Mæja
4 Kölski og ýsan
5 Spáðu í mig
6 Lengi skal manninn reyna
(ásamt Ágústu Evu Erlends
dóttur og Senuþjófunum)
7 Tvær stjörnur
8 Við Birkiland
9 Fílahirðirinn frá Súrín
10 Þóra
11 Þú bíður (allavegana) eftir mér
12 Útumholtoghólablús
(ásamt Spilverki þjóðanna)
13 Aðeins eina nótt
14 Bráðum kemur?
(ásamt Senuþjófunum)
15 Orfeus og Evridís
(ásamt Spilverki þjóðanna)
16 Gamansemi guðanna
17 Vertu mér samferða inn í
blómalandið amma
18 Best og banvænst
19 Komdu og skoðaðu í
kistuna mína
20 Ég á mig sjálf
(söngurinn hennar Diddu)
21 Þóttú gleymir guði
Lagalisti á
CD útgáfu:
Ekki dauður! Þessi mynd birtist í Vísi 1978 þegar margir trúðu kjaftasögu um að Megas væri farinn yfir móðuna miklu. MYND/JA
Megas átti hugmyndina að titlinum, Syngdu eitthvað gamalt!, á afmælis safnplötunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Megas og Bubbi 17. júní 1985.
Megas á tónleikum 1985. MYND/VHV
6 . A P R Í L 2 0 2 0 M Á N U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ