Fréttablaðið - 06.04.2020, Blaðsíða 32
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg. ehf
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Láru G.
Sigurðardóttur
BAKÞANKAR
buzzador®
Vegna samkomubanns má búast við því að aðgangur
að verslunum sé verulega takmarkaður. Við höfum
því framlengt opnunartímann en hvetjum þig þó
til að versla frekar á elko.is og fá vöruna senda heim.
Þú finnur allar okkar vörur á elko.is og færð
sömu góðu þjónustuna í netspjallinu.
sjáumst á netinu
spjallaðu við okkur
sendu okkur línu
elko@elko.is
vertu í bandi
544 4000
verslum á elko.is
verum heima og
Til að draga úr heimsóknum í ve
rslanir
höfum við framlengt skilarétt
og ábyrgðir til 30. júní.
lengri skilaréttur
APPELSÍN
SYKURLAUST
330 ML DÓS
129
KR/STK
391 KR/L
Kaffið klárast og ég dríf mig af stað til að sækja meira. Við matvörubúðina sé ég
ekki fyrir endann á halarófu við-
skiptavina sem bíða álútir eftir
að röðin komi að þeim. Ég rúnta
að næstu búð en kem að læstum
dyrum. Þarna stend ég á líf lausri
miðbæjargötunni og í þann mund
sem ég íhuga næstu skref tek ég
eftir skilti sem á stendur coffee
shop og ör sem vísar á dularfulla
slóð. Forvitnin leiðir mig inn í
þröngt húsasund þar sem engin
leið er að mæta manni, hvað þá að
halda tveggja metra fjarlægð.
Við enda sundsins opnast fyrir
mér nýr heimur: róandi niður frá
gosbrunni, falleg listaverk og glað-
legur afgreiðslumaður. Mér finnst
ég hafa fundið falda perlu. Þarna
get ég keypt gott kaffi og kaffi-
baunir sem eru ristaðar á staðnum
– eitthvað sem er vandfundið í
Ameríku.
Í mínum huga er lífið þessa
dagana svolítið eins og uppgötv-
unin á kaffihúsinu. Þegar áreitið
minnkar fer maður að taka eftir
perlunum í nánasta umhverfi.
Áður en veiran umturnaði
lífi okkar horfðum við á jörðina
hlýna á ógnarhraða; við vorum á
góðri leið með að útrýma okkur
sjálfum. Ef ekki með kulnun og
streitu þá með spjöllum á nátt-
úrunni, móður okkar allra. Skrið-
þungi neyslunnar var orðinn svo
gífurlegur að engin bönd fengust
til að hægja þar á. Þangað til hin
smásæja veira greip inn í atburða-
rásina og hægði á okkur.
Í biðstöðunni sem nú hefur
myndast í kapphlaupi lífsins
skapast tækifæri til að skoða eigið
líf, allavega fyrir okkur sem heima
sitjum. Í þessari stöðu getum
við fundið það sem gefur lífinu
gildi og aldrei að vita nema faldar
perlur finnist einmitt helst í hvers-
dagsleikanum.
Faldar perlur