Fréttablaðið - 20.04.2020, Qupperneq 4
Nánast allar þær
þjóðir sem við
berum okkur saman við
hafa gert meira fyrir sína
ferðaþjónustu
en við.
Ásberg Jónsson,
framkvæmda-
stjóri Nordic
Visitor
Talið er að iðnaðar-
hampur geti komið í stað
plasts í byggingariðnaði.
Bótúlismi er mjög
sjaldgæf eitrun sem aðeins
hefur greinst hér á landi
þrisvar, fyrst árið 1949 og
svo árin 1981 og 1983.
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI, VARA- OG AUKAHLUTAVERSLUN
Pallbílahús frá ARE á alla USA pallbíla
Varahlutaverslun ÍSBAND býður upp á gott úrval vara- og aukahluta og
íhluta til breytinga. Allir helstu varahlutir í okkar vörumerkjum eru til á
lager. Sérpöntum varahluti í aðra USA bíla.
Úrval af felgum fyrir
Jeep® og RAM
Upphækkunarsett
í Wrangler
Upphækkunarsett
í RAM
Falcon demparar
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN • SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK
SÍMI 534 4433 • THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA KL. 07:45 - 18:00
ALMENNT BÍLAVERKSTÆÐI OG
SMURÞJÓNUSTA FYRIR ALLA BÍLA
ALLIR VINNA - ENDURGREIÐSLA VSK.
FIAT HÚSBÍLAR - ÁBYRGÐAR OG
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI
BREYTINGAR Á JEEP®, RAM
OG ÖÐRUM USA PALLBÍLUM
ALLIR BÍLAR SÓTTHREINSAÐIR
STUTTUR BIÐTÍMI SÍMI 534 4433
UMBOÐSAÐILI
HEILBRIGÐISMÁL Greint er frá því í
fréttabréfi Sóttvarnalæknis sem
gefið var út fyrr í þessum mánuði
að þann 18. janúar síðastliðinn
hafi bótúlismi verið staðfestur hjá
fullorðnum einstaklingi hér á landi.
Þetta er í fyrsta skipti sem slík eitr-
un greinist í einstaklingi hér á landi
síðan árið 1983. Sjúklingurinn náði
bata.
Fram kemur í umfjöllun um
bótúlisma á vef Landlæknis að
bótúlínumsýkilinn hafi einnig
fundist í heimalöguðum súrum
blóðmör. A lgeng ustu orsak ir
bótúlisma eru heimalöguð matvæli
eins og kjöt, fiskur, grænmeti og
ávextir, sem eru oftast niðursoðin,
grafin, súrsuð eða gerjuð og gjarnan
í lofttæmdum umbúðum.
Sýkingar má oft rekja til lítillar
söltunar eða of lítillar sýru í niður-
lögðu grænmeti eða fiski. Niður-
suðudósir sem virðast bunga út
vegna þrýstings innan frá skyldi
ekki opna þar sem sýkillinn getur
stundum myndað gas inni í dós-
unum. Börn geta fengið bótúlisma
og veikst alvarlega af því að borða
hunang. Því eru foreldrar varaðir
við því að gefa börnum yngri en 12
mánaða hunang.
Bótulismi er mjög sjaldgæf eitrun
sem hefur aðeins greinst hér á landi
þrisvar sinnum, fyrst árið 1949
þegar fjórir menn veiktust eftir
neyslu súrsaðs dilkakjöts og einn
þeirra lést. Aftur greindist hún 1981,
þegar fjögurra manna fjölskylda
veiktist, og síðast árið 1983, þegar
móðir og barn veiktust eftir að hafa
borðað súrt slátur sem bakterían
fannst í. Öll lifðu af. – hó
Fyrsta tilfelli bótúlisma greindist á Íslandi í 37 ár
IÐNAÐUR Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra hefur gert
breytingu á reglugerð um ávana-
og fíkniefni sem veitir Lyfjastofnun
undanþáguheimild til innflutnings,
meðferðar og vörslu fræja til rækt-
unar iðnaðarhamps. Heimildin er
háð skilyrðum og takmörkunum
svo tryggt sé að ekki verði f luttar
inn eða ræktaðar plöntur sem inni-
halda vímuefnið THC í nýtanlegu
magni, eða að hámarki 0,2%.
Vaxandi áhugi er fyrir ræktun
iðnaðarhamps hér á landi til að
nota í ýmsum iðnaði, til dæmis
sem byggingarefni en talið er
að iðnaðarhampur geti komið í
staðinn fyrir ýmis efni sem ógna
umhverfinu, eins og plast. Notkun á
iðnaðarhampi eins og þeim sem lýst
var hér að framan er heimil að
uppfylltum tilteknum skilyrðum í
Svíþjóð og Danmörku. Svo er aftur
á móti ekki í Noregi en þar eru þessi
mál til skoðunar um þessar mundir.
Innan Evrópusambandsins hefur
ræktun á iðnaðarhampi verið hluti
af styrkjakerfi ESB frá árinu 2000.
Iðnaðarhampur er ein tegund
kannabis en planta með því heiti
er ýmsum kunn sem vímugjafi.
Vímuvaldurinn í kannabis er virka
innihaldsefnið THC sem auk þess
að valda vímu er ávanabindandi.
Iðnaðarhampur, það er þau yrki
kannabisplöntunnar sem ræktuð
eru til iðnaðarframleiðslu eru aftur
á móti frábrugðin hefðbundnum
yrkjum plöntunnar þar sem þau
innihalda lítið sem ekkert af THC.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra leggur áherslu á að reglu-
gerðarbreytingin sé tímabundin
ráðstöfun: „Ávana- og fíkniefna-
löggjöfin hefur skýr markmið og
tilgang sem fellur augljóslega að
málefnasviðum heilbrigðisráðu-
neytisins. Það gerir sú ræktun sem
hér um ræðir hins vegar ekki, að því
gefnu að hún stangist ekki á við inn-
tak og markmið þessara sömu laga“
segir ráðherra. - hó
Lyfjastofnun
heimilt að flytja
inn hampfræ
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðis-
ráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
FERÐAÞJÓNUSTA „Við getum siglt
okkar lífróður tekjulaus í nokkra
mánuði til viðbótar, en það verður
sífellt erfiðara þegar í ofanálag
koma endurgreiðslur sem og aukin
útgjöld, til dæmis mikil hækkun
trygginga til Ferðamálastofu,“ segir
Scott Drummond, leiðsögumaður
og rekstrarstjóri Hidden Iceland.
„Það þarf meira að koma til ef lítil og
meðalstór fyrirtæki í ferðaþjónustu
eiga ekki að fara í þrot.“
Þórd ís Kolbr ú n Reyk f jörð
Gylfadóttir, ráðherra ferðamála,
gaf út reglugerð í mars sem heimilar
Ferðamálastofu að taka tillit til
aðstæðna tryggingaskyldra aðila
vegna COVID-19 faraldursins
o g á h r i f a h a n s á í s l e n s k
f e r ð a þj ó nu s t u f y r i r t æ k i v i ð
útreikning tryggingafjárhæðar.
Samkvæmt reglugerðinni, sem
hefur þegar tekið gildi, er heimilt að
áætlun tryggingaskylds aðila fyrir
árið 2020 verði lögð til grundvallar
við útreikning í stað ársins 2019.
Samkvæmt upplýsingum frá
Ferðamálastofu stóð aldrei til að
heilt yfir fengju allar ferðaskrif-
stofur verulega lækkun á trygg-
ing ar fjárhæðinni. Útgangs punkt-
urinn er alltaf að tryggingin
dugi fyrir endurgreiðslu að fullu,
komi til gjaldþrots eða rekstrar-
stöðvunar. Þar sem óvissa er um
hven ær ferðaþjónustan tekur
við sér varðandi ferðir erlendra
ferða manna sem og ferðir fólks
erl endis kann að vera að til
þess komi að endurmeta þurfi
tryggingarf járhæðirnar raskist
á æ t l a n i r fe r ð a sk r i f s t of a n n a
verulega.
Scott segir ástandið kalla á
aðgerðir. „Samdrátturinn í ferða-
þjónustu hefur ekki bara verið
um 30 til 40 prósent, heldur er
hann nær 120 prósent vegna
endurgreiðslna ofan á algjöran
tekju missi,“ segir Scott. „Þátttaka
ríkisstjórnarinnar í launakostnaði
hjálpar mjög mikið en laun og
launatengd gjöld eru aðeins hluti
af föstum útgjöldum.“
Ásberg Jónsson, framkvæmda-
stjóri Nordic Visitor, segir að nú
séu gallar núverandi kerfis að
koma bersýnilega í ljós. Íslenskar
ferðaskrifstofur eru með sína eigin
gjaldþrotatryggingu en langflestar
aðrar þjóðir innan Evrópu eru með
einhvers konar tryggingasjóð sem
auðveldar ríkinu að grípa inn í,“
segir Ásberg. „Ljóst er að íslenska
ríkið þarf að stíga inn og heimila
ferðaskrifstofum að endurgreiða
í formi inneignar eins og f lestar
Evrópuþjóðir hafa nú gert.“
Aðspurður segir hann að slík
aðgerð sé á þessum tímapunkti
raunhæf og nauðsynleg. „Ef ríkið
gerir ekkert þá fer mikill meiri-
hluti ferðaþjónustufyrirtækja í
þrot. Það myndi valda gríðarlegu
tjóni á framtíðartekjur landsins og
tjóni fyrir neytendur,“ segir Ásberg.
„Nánast allar þær þjóðir sem við
berum okkur saman við hafa gert
meira fyrir sína ferðaþjónustu en
við, samt er ferðaþjónustan hér á
landi mun stærri hluti af okkar hag-
kerfi en hjá þessum þjóðum.“
Samtök ferðaþjónustunnar hafa
lagt til við stjórnvöld að fari verði í
stofnun slíks sjóðs, er það til skoð-
unar inni í stjórnkerfinu. „Við
bindum vonir við að stjórnvöld
fari þessa leið,“ segir Gunnar Valur
Sveinsson, verkefnastjóri hjá SAF.
„Það verði þá settur á laggirnar sem
geti þá tryggt innistæður neytenda
sem gefnar verða út fyrir þær ferðir
sem hætt hefur verið við.“
arib@frettabladid.is
Fara í þrot ef ekkert er að gert
Ferðaskrifstofur sem að selja ferðir hér á landi stefna margar í þrot. Samtök ferðaþjónustunnar kalla eftir
innistæðusjóði sem hafi það hlutverk að endurgreiða ferðamönnum sem hafa seinkað ferðum til Íslands.
Rútur Kynnisferða standa nú númeralausar þar sem fáir ferðamenn eru hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
2 0 . A P R Í L 2 0 2 0 M Á N U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð