Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.04.2020, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 20.04.2020, Qupperneq 6
Eitt af fyrstu verkum Starmer var að biðja sam- félag gyðinga afsökunar. FRÍTT KAKÓ OG KAFFI Í EINUM GRÆNUM Renndu við í næstu verslun okkar og gríptu með þér rjúkandi bolla af kakó eða kaffi í okkar boði. Hlökkum til að sjá þig. FANGELSISMÁL Alls hefur 58 föngum verið veitt reynslulausn eftir helm- ing refsitíma þrátt fyrir að hafa afplánað refsingu fyrir alvarlegt brot frá því að ný lög um fullnustu refsinga tóku gildi í mars 2016. Af þessum hópi eru 47 erlendir ríkis- borgarar en ellefu Íslendingar. Þetta kemur fram í svari Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmála- ráðherra við skrif legri fyrirspurn Helga Hrafns Gunnarssonar, þing- manns Pírata. Samkvæmt ákvæði laganna þurfa mjög sérstakar persónulegar ástæð- ur að mæla með slíkri reynslulausn. Þar að auki þarf framkoma og hegð- un viðkomandi fanga að hafa verið með ágætum. „Hér þarf að meta hvert mál sjálf- stætt og því erfiðleikum bundið að setja reglu eða viðmið sem gildir um alla. Undir þessa undantekningar- reglu hafa þó fallið ákveðin tilvik eins og alvarleg veikindi fanga,“ segir í svari ráðherra. Helgi Hrafn spyr ráðherra einn- ig hvort reglur eða viðmið megi vera skýrari og aðgengilegri. Í svari ráðherra kemur fram að mikilvægt sé að þeir sem hags- muna hafi að gæta geti áttað sig betur á réttarstöðu og beitingu reglnanna. Því muni ráðuneytið taka þetta til skoðunar. – sar Viðmið reynslulausnar verði skoðuð Litla Hraun. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR BRETLAND Liðnar eru rúmar tvær vikur frá því að Keir Starmer tók við sem leiðtogi Verkamannaflokksins í Bretlandi. Hlaut hann 56,2 pró- sent atkvæða, mun f leiri atkvæði en Rebecca Long-Bailey sem fékk næst flest, eða tæp 28 prósent.Star- mer tekur við af Jeremy Corbyn sem sagði af sér eftir að flokk urinn galt afhroð í þingkosn ingunum í des- ember síðastliðnum. Corbyn færði flokkinn mun lengra til vinstri, varð flokkurinn nánast óþekkjanlegur frá Verkamannaflokki Tony Blair og Gordon Brown sem stýrði Bret landi í meira en áratug. En hver er þessi maður sem leiðir nú stjórnarandstöðuna og gera má ráð fyrir að verði forsætis- ráðherraefni f lokksins í næstu kosn ingum? Starmer er 57 ára lög- fræð ingur, giftur og faðir tveggja barna. Sonur hjúkrunarfræðings og smiðs, á hann ársmiða á leiki Arsenal í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur verið þingmaður Verka manna- f lokksins frá árinu 2015. Hefur verið hlegið að því meðal f lokks- manna að hann virðist vera svo gallalaus stjórnmálamaður á blaði að það mætti halda að hann væri uppskáldaður. Fyrir helgi sagði Starmer við BBC að hann væri fyrst og fremst feginn að vera orðinn leiðtogi því hann þoldi ekki að vera í samkeppni við samflokksmenn. „Ég hataði að þurfa að selja sjálfan mig til flokksmanna,“ sagði hann. „Þetta er miklu þægi- legra en að vera í leiðtogaslag.“ Hann lenti upp á kant við Cor- byn síðasta haust eftir að upptaka af honum rataði í fjölmiðla þar sem hann sagði marga telja að flokknum myndi ganga betur án Corbyn. Hann var skuggaráðherra Verka- mannaflokksins í Brexit málum og var ekki á sömu línu og forystan. Vildi Starmer að kosið yrði að nýju og það yrði opinber stefna flokksins í málaf lokknum. Hefur hann nú sætt sig við að Brexit verði að veru- leika. Eitt fyrsta sem hann gerði sem nýr leiðtogi var að biðja samfélag gyðinga afsökunar, en Corbyn var sakaður um að leyfa gyðingahatri að grassera innan flokksins. Starmer hyggst afmá þann stimpil en það mun reynast erfitt verkefni þar sem málið er viðkvæmt og snertir marga úr innsta hring flokksins. Áður en hann sneri sér að stjórn- málum var Starmer um tíma æðsti sak sóknari Bretlands, féll það meðal annars í hans hlut að biðja fórn ar- lömb Jimmy Savile afsökunar á að Savile sat ekki í fangelsi. Þar á undan starfaði hann sem mannréttindalög- fræðingur en hann var meðal verj- enda í Mc Libel-málinu, 10 ára löngu meið yrða máli McDonalds gegn höf - und um dreifimiða með ýms um full- yrðingum um BigMac. Athygli vekur að hann er í raun Sir Keir Starmer, en hann var aðlaðaður árið 2014 fyrir störf sín í lögmennsku. Starmer vill ekki nota þann titil. Starmer kemur á furðulegum tímum inn sem leiðtogi enda eru fáir að hugsa um f lokkspólitíska bar áttu núna þegar COVID-19 far- ald urinn gengur yfir. Boris Johnson forsætisráðherra er vinsæll í skoð- ana könnunum en ef fylgi hans fer að dala, hvort sem það verður vegna viðbragða vegna faraldursins eða annars, mun Starmer verða áber- andi sem hans mögulegi eftirmaður í Downing-stræti. Hann lýsir sjálfum sér sem sós- í a lista. Vill hann halda í mörg af stefnu málum Corbyn, til að mynda að þjóðnýta járnbrautir landsins og hækka skatta á þá sem þéna mest. Vinstri stefna Corbyns hefur ekki náð miklum árangri fyrir flokkinn sem þarf að ná meirihluta atkvæða í meirihluta allra einmennings- kjör dæma landsins til að komast í ríkisstjórn. Má því búast við að flokk ur inn undir Starmer komi til með að höfða meira inn á miðj una en þó ekki á sama hátt og flokk ur- inn gerði undir stjórn Blair. Stóra málið í Bretlandi þessa stund ina, að mati Starmer, er það að opnun landsins eftir að kóróna- veiran gengur yf ir bitni ekki mest á þeim sem minnst mega sín. „Því lengur sem skólarnir eru lokaðir, því meira bil myndast á milli þeirra sem fá góða kennslu heima fyrir og þeirra sem eru ekki í aðstöðu til þess,“ sagði Starmer við BBC. Hann ætli sér þó ekki að stilla sér upp sem beinum and- stæðingi rík is stjórnarinnar heldur sé hans hlutverk að veita aðhald. arib@frettabladid.is Nýr leiðtogi í brúna á afar erfiðum tímum Arsenal-aðdáandinn Keir Starmer leiðir nú stjórnarandstöðuna á Bretlandi. Hann kemur inn sem nýtt andlit á tímum þar sem lítil eftirspurn er eftir flokkspólitískri baráttu þar í landi. Starmer lýsir sjálfum sér sem sósíalista. Starmer lýsir sjálfum sér sem sósíalista og hyggst hann halda mörgum stefnumálum forvera síns. MYND/EPA 2 0 . A P R Í L 2 0 2 0 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.