Fréttablaðið - 20.04.2020, Side 6
Eitt af fyrstu verkum
Starmer var að biðja sam-
félag gyðinga afsökunar.
FRÍTT
KAKÓ
OG
KAFFI
Í EINUM GRÆNUM
Renndu við í næstu verslun okkar
og gríptu með þér rjúkandi bolla
af kakó eða kaffi í okkar boði.
Hlökkum til að sjá þig.
FANGELSISMÁL Alls hefur 58 föngum
verið veitt reynslulausn eftir helm-
ing refsitíma þrátt fyrir að hafa
afplánað refsingu fyrir alvarlegt
brot frá því að ný lög um fullnustu
refsinga tóku gildi í mars 2016. Af
þessum hópi eru 47 erlendir ríkis-
borgarar en ellefu Íslendingar.
Þetta kemur fram í svari Áslaugar
Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmála-
ráðherra við skrif legri fyrirspurn
Helga Hrafns Gunnarssonar, þing-
manns Pírata.
Samkvæmt ákvæði laganna þurfa
mjög sérstakar persónulegar ástæð-
ur að mæla með slíkri reynslulausn.
Þar að auki þarf framkoma og hegð-
un viðkomandi fanga að hafa verið
með ágætum.
„Hér þarf að meta hvert mál sjálf-
stætt og því erfiðleikum bundið að
setja reglu eða viðmið sem gildir um
alla. Undir þessa undantekningar-
reglu hafa þó fallið ákveðin tilvik
eins og alvarleg veikindi fanga,“
segir í svari ráðherra.
Helgi Hrafn spyr ráðherra einn-
ig hvort reglur eða viðmið megi
vera skýrari og aðgengilegri. Í
svari ráðherra kemur fram að
mikilvægt sé að þeir sem hags-
muna hafi að gæta geti áttað sig
betur á réttarstöðu og beitingu
reglnanna. Því muni ráðuneytið
taka þetta til skoðunar.
– sar
Viðmið reynslulausnar verði skoðuð
Litla Hraun. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
BRETLAND Liðnar eru rúmar tvær
vikur frá því að Keir Starmer tók við
sem leiðtogi Verkamannaflokksins
í Bretlandi. Hlaut hann 56,2 pró-
sent atkvæða, mun f leiri atkvæði
en Rebecca Long-Bailey sem fékk
næst flest, eða tæp 28 prósent.Star-
mer tekur við af Jeremy Corbyn sem
sagði af sér eftir að flokk urinn galt
afhroð í þingkosn ingunum í des-
ember síðastliðnum. Corbyn færði
flokkinn mun lengra til vinstri, varð
flokkurinn nánast óþekkjanlegur
frá Verkamannaflokki Tony Blair og
Gordon Brown sem stýrði Bret landi
í meira en áratug.
En hver er þessi maður sem
leiðir nú stjórnarandstöðuna og
gera má ráð fyrir að verði forsætis-
ráðherraefni f lokksins í næstu
kosn ingum? Starmer er 57 ára lög-
fræð ingur, giftur og faðir tveggja
barna. Sonur hjúkrunarfræðings og
smiðs, á hann ársmiða á leiki Arsenal
í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur
verið þingmaður Verka manna-
f lokksins frá árinu 2015. Hefur
verið hlegið að því meðal f lokks-
manna að hann virðist vera svo
gallalaus stjórnmálamaður á blaði
að það mætti halda að hann væri
uppskáldaður.
Fyrir helgi sagði Starmer við BBC
að hann væri fyrst og fremst feginn
að vera orðinn leiðtogi því hann
þoldi ekki að vera í samkeppni við
samflokksmenn. „Ég hataði að þurfa
að selja sjálfan mig til flokksmanna,“
sagði hann. „Þetta er miklu þægi-
legra en að vera í leiðtogaslag.“
Hann lenti upp á kant við Cor-
byn síðasta haust eftir að upptaka
af honum rataði í fjölmiðla þar sem
hann sagði marga telja að flokknum
myndi ganga betur án Corbyn.
Hann var skuggaráðherra Verka-
mannaflokksins í Brexit málum og
var ekki á sömu línu og forystan.
Vildi Starmer að kosið yrði að nýju
og það yrði opinber stefna flokksins
í málaf lokknum. Hefur hann nú
sætt sig við að Brexit verði að veru-
leika. Eitt fyrsta sem hann gerði sem
nýr leiðtogi var að biðja samfélag
gyðinga afsökunar, en Corbyn var
sakaður um að leyfa gyðingahatri
að grassera innan flokksins. Starmer
hyggst afmá þann stimpil en það
mun reynast erfitt verkefni þar sem
málið er viðkvæmt og snertir marga
úr innsta hring flokksins.
Áður en hann sneri sér að stjórn-
málum var Starmer um tíma æðsti
sak sóknari Bretlands, féll það meðal
annars í hans hlut að biðja fórn ar-
lömb Jimmy Savile afsökunar á að
Savile sat ekki í fangelsi. Þar á undan
starfaði hann sem mannréttindalög-
fræðingur en hann var meðal verj-
enda í Mc Libel-málinu, 10 ára löngu
meið yrða máli McDonalds gegn höf -
und um dreifimiða með ýms um full-
yrðingum um BigMac. Athygli vekur
að hann er í raun Sir Keir Starmer, en
hann var aðlaðaður árið 2014 fyrir
störf sín í lögmennsku. Starmer vill
ekki nota þann titil.
Starmer kemur á furðulegum
tímum inn sem leiðtogi enda eru
fáir að hugsa um f lokkspólitíska
bar áttu núna þegar COVID-19 far-
ald urinn gengur yfir. Boris Johnson
forsætisráðherra er vinsæll í skoð-
ana könnunum en ef fylgi hans fer
að dala, hvort sem það verður vegna
viðbragða vegna faraldursins eða
annars, mun Starmer verða áber-
andi sem hans mögulegi eftirmaður
í Downing-stræti.
Hann lýsir sjálfum sér sem sós-
í a lista. Vill hann halda í mörg af
stefnu málum Corbyn, til að mynda
að þjóðnýta járnbrautir landsins og
hækka skatta á þá sem þéna mest.
Vinstri stefna Corbyns hefur ekki
náð miklum árangri fyrir flokkinn
sem þarf að ná meirihluta atkvæða
í meirihluta allra einmennings-
kjör dæma landsins til að komast
í ríkisstjórn. Má því búast við að
flokk ur inn undir Starmer komi til
með að höfða meira inn á miðj una
en þó ekki á sama hátt og flokk ur-
inn gerði undir stjórn Blair.
Stóra málið í Bretlandi þessa
stund ina, að mati Starmer, er það
að opnun landsins eftir að kóróna-
veiran gengur yf ir bitni ekki
mest á þeim sem minnst mega
sín. „Því lengur sem skólarnir eru
lokaðir, því meira bil myndast á
milli þeirra sem fá góða kennslu
heima fyrir og þeirra sem eru ekki
í aðstöðu til þess,“ sagði Starmer
við BBC. Hann ætli sér þó ekki að
stilla sér upp sem beinum and-
stæðingi rík is stjórnarinnar heldur
sé hans hlutverk að veita aðhald.
arib@frettabladid.is
Nýr leiðtogi í brúna á
afar erfiðum tímum
Arsenal-aðdáandinn Keir Starmer leiðir nú stjórnarandstöðuna á Bretlandi.
Hann kemur inn sem nýtt andlit á tímum þar sem lítil eftirspurn er eftir
flokkspólitískri baráttu þar í landi. Starmer lýsir sjálfum sér sem sósíalista.
Starmer lýsir sjálfum sér sem sósíalista og hyggst hann halda mörgum stefnumálum forvera síns. MYND/EPA
2 0 . A P R Í L 2 0 2 0 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð