Fréttablaðið - 20.04.2020, Síða 14

Fréttablaðið - 20.04.2020, Síða 14
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Ég myndi kannski ekki taka svo sterkt til orða, en ég trúi á að setja sér markmið og að vinna öll verkefni vel því allt sem við gerum í dag hefur áhrif á framtíðina,” segir sviðslistakonan og framleiðandinn Hallfríður Þóra Tryggvadóttir, innt eftir því hvort hún sé fædd undir heillastjörnu því margir drauma hennar hafa ræst. „Frá því ég man eftir mér hefur mér fundist gaman að hrinda hugmyndum í framkvæmd. Listabakterían hefur líka loðað við mig frá því ég var lítil. Ég sannfærði meðal annars skólastjórann í Hvassaleitisskóla um að koma á leiklist sem aukafagi og hann tók vel í það. Það sýnir að þótt maður sé ungur getur maður komið ýmsu til leiðar,” segir Hallfríður Þóra. Í byrjun árs tók hún við stjórn­ unarstöðu á sviði markaðs mála hjá menningar stofnuninni Lincoln Center í New York en þar hefur hún unnið síðan haustið 2018. „Lincoln Center er heimili New York­fílharmóníunnar, Metro­ politan­óperunnar, New York­ ball ettsins, Juilliard skólans og fleiri listastofnana. Starf mitt felst í að markaðssetja listamenn sem koma fram á hinum ýmsu list­ viðburðum sem Lincoln Center heldur. Starfið er mjög fjölbreytt og á sama deginum er ég kannski að vinna við nútímadanssýningu, tónlistarhátíð með sinfóníu hljóm­ sveitum og einleikurum, japanska brúðuleiksýningu og tónleika með Broadway­stjörnu. Það er aldrei dauð stund og ég er alltaf að læra eitthvað nýtt. Núna er allt lokað í New York og það er skrítið að fara ekki í vinnuna heldur sitja heima á Íslandi og upplifa hvað er að gerast í borginni í gegnum samstarfsfólk og vini. Það er líka erfitt að segja til um hvenær hægt verður að fara aftur í leikhús og á tónleika.” Lærði af þeim bestu í NY Hallfríður er 29 ára Reykvíking­ ur. Hún lauk bókmenntafræði með lögfræði sem aukagrein frá Háskóla Íslands. Hún lék á mennta­ skólaárunum stórt hlut verk í kvik­ myndinni Sumar landið í leikstjórn Gríms Hákonarsonar. „Sú reynsla gaf mér smjörþefinn af kvikmyndabransanum og ár ið eftir sótti ég leiklistartíma í New York til að átta mig á hvort mig langaði að verða leikkona eða vinna á bak við tjöldin. Ég hafði á framhaldsskólaárunum fund­ ið að ég vildi ekki aðeins skapa eigin list heldur lyfta öðr um upp og beina sviðsljósinu að þeim. Ég vildi framleiða, leik stýra og stjórna listviðburðum og var alltaf að skipuleggja eitt hvað,“ segir Hallfríður sem var um tíma markaðsstjóri i Tjarnar bíói, stýrði viðburðum fyrir kvik mynda­ hátíðina RIFF og framleiddi fjöl marg ar leik­ og danssýningar, ásamt alþjóðlegri sviðslistahátíð. „Svo flutti ég til New York árið 2016 þegar ég komst inn í meist aranám í leikhússtjórnun og framleiðslu við Columbia­há­ skólann. Þetta er mjög fjölbreytt nám og tímarnir fóru ekki ein ung is fram í skólanum heldur um alla borg, bæði á Broadway og í öðrum leikhúsum. Ég sótti til dæm is tíma hjá forstjóra Disney Thea trical sem sér um allar Broad way­sýningar Disney, fékk að sjá Frozen­ söngleikinn verða að veruleika, og lærði listrænu hlið ina sem og viðskiptahliðina á leikhúsrekstri af listrænum stjórn endum og framleiðendum í borginni,” útskýrir Hallfríður sem hafði árum saman haft augastað á náminu. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Eitt af því sem Hallfríður gerir alltaf á Íslandi er að fara í pönnsur til ömmu sinnar á Flúðum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Ég gat ekki ímyndað mér að þetta yrði að veruleika en ég ákvað að sækja um. Samhliða skólanum vann ég með ýmsum leikfélögum og byrjaði hjá Lincoln Center með fram lokaritgerðinni. Það var ótrú­ l ega gaman en algjört púl þar sem ég eyddi öllum kvöldum á bóka­ safninu að skrifa.” Sírenuvæl á fjarfundum Starf Hallfríðar hjá Lincoln Center er annasamt. Í kjölfar kóróna­ veir unnar var allri sumardagskrá aflýst og starfið fært yfir á netið. „Á svipstundu bjuggum við til Lincoln Center at Home og sett um upptökur af tónleikum og sýningum á netið og réðum lista menn til þess að halda tón­ leika heima hjá sér. Við erum með listkennslu fyrir börn á virk um dögum og bætum við nýj um sýningum daglega,” segir Hallfríður sem hefur undanfarinn mánuð unnið frá Íslandi. „Ég kom heim 19. mars, sama dag og allir sem komu til landsins urðu að fara í sóttkví. Þá var alv­ ara farin að færast yfir New York og búið að loka skrifstofunni minni. Ég vissi að ekkert yrði af vor dagskránni okkar en vegna ferða banns ríkti óvissa um hvenær ég kæmist út aftur. Það var nokkuð stór ákvörðun að fljúga heim því enginn vissi hver þróunin yrði, en ég er ótrúlega fegin að hafa tekið af skarið. Ég pantaði flugið kvöldið fyrir flugtak og pakkaði án þess að vita hve lengi ég yrði í burtu. Það var mjög skrítin tilfinning. Það er átakanlegt að heyra fréttir frá borginni, heyra af fólki sem hefur veikst og á fjarfundum heyri ég oft sírenuvæl í bakgrunni,” segir Hallfríður. Með mörg járn í eldinum Vinnan er áhugamál Hallfríðar, númer eitt, tvö og þrjú. „Ég dýrka vinnuna mína og vinn stundum of mikið en reyni líka að taka frá tíma til að hlaða batteríin. Það er mjög mikilvægt,” segir Hall fríð ur sem er með mörg járn í eld inum. Hún tók nýlega við starfi list­ ræns stjórnanda hjá Scandi navian Ame rican Theater Company. „Skandinavíska leikfélagið hefur sett upp norrænar leiksýningar í New York í tíu ár. Síðustu ár hefur mig langað að læra meira um leik húslistamenn á Norðurlönd­ un um og hafði verið að skoða þann möguleika að stofna hátíð til að kynna norræna leiklist en svo kom þetta óvænta tækifæri,” segir Hall­ fríður. Þakklát því hversdagslega Hallfríður býr í Upper West Side­ hverf inu á Manhattan, rétt við alm enningsgarðinn Central Park. „Flestir laugardagar byrja á göngu í Central Park. Það er gott að kom ast í burtu frá allri steypunni og anda að sér örlítið ferskara lofti. Ég labba líka oftast heim úr vinnunni, sem tekur tæpan hálf­ tíma, og hringi heim í fólkið mitt. Það eru mikil lífsgæði að búa svona nálægt vinnunni en ekki alveg ofan í miðbænum,” segir Hallfríður. „Fyrst þegar maður kemur til New York getur manni liðið eins og maður sé í bíómynd, því borg in er svo áberandi í sjónvarpi og kvik­ myndum, en það er allt öðru vísi að búa þar. Þá verður borgin vinalegri og hversdagslegri en við fyrstu kynni getur hún verið ansi hröð og jafnvel yfirþyrmandi. Þessa dagana sakna ég þess að labba í vinnuna, fara á leiksýningar og taka neðanjarðarlest í klukku tíma til að hitta vini. Maður þakkar fyrir allt þetta hversdagslega,” segir Hall fríður sem unir sér líka vel heima á Íslandi. „Það er alltaf góð tilfinning að heyra „velkomin heim” frá flug­ freyjunum þegar maður lendir og það er eins og maður nái að anda bet ur um leið og maður kemur í íslenska loftið.” Par á sömu bylgjulengd Kærasti Hallfríðar er Tryggvi Aðal­ björnsson, fréttamaður. Hann fór í meistaranám í blaðamennsku í Col um bia á sama tíma og þau hafa búið saman vestra en und an farna mán uði hefur Tryggvi starfað á Ísl andi fyrir fréttaskýr ingaþáttinn Kveik sem sýndur er á RÚV. „Það hefur gengið ágætlega að vera í sitthvorri heimsálfunni en þetta er auðvitað ekki drauma­ staðan. Fjarbúðin styttist allavega núna út af kórónaveirunni. Það er kannski það eina jákvæða við þetta ástand. Við erum rosamikið á sömu bylgjulengd og styðjum hvort annað í að gera það sem við brennum fyrir. Okkur líður vel í New York en auðvitað togar Ísland alltaf. Maður veit ekkert hvað ger­ ist á morgun, hvað þá eftir tíu ár og sú hugsun á sérstaklega vel við núna,” segir Hallfríður og veit upp á tíu hvernig hún myndi eyða full­ komnum frídegi í New York. „Ætli dagurinn myndi ekki byrja á góðum bröns, síðan væri gengið nið ur Central Park á svona tveimur tímum og farið á þakbar með góðu útsýni. Um kvöldið væri farið á leik sýningu eða í óperuna eftir kvöld mat á grænmetisstaðnum Nix sem er í uppáhaldi,” segir Hallfríður. Hún sækist eftir því að komast reglulega út úr borgarysnum. „Mér finnst fátt skemmtilegra en að ferðast um Ísland og það er allt af ákveðinn hápunktur að fara í pönnu kökur til ömmu á Flúðum en hún er á 94. ári og er mikil fyrir­ mynd.” Sjálf grínast Halla með að sækja sinn kraft í kaffi. „Ég er yfirleitt frekar orkumikil en veit ekkert af hverju. Ég drekk mjög mikið kaffi og til skiptis espr­ esso og cappuccino og svo má ekki gleyma að fá sér súkkulaði. Það er gott bensín,” segir Hallfríður. Framtíðardraumurinn er að leiða leikhús og menningar stofn­ anir ásamt því að skapa eigin verk efni. „Ég leikstýrði og skrifaði stutt­ myndina Ég, ásamt Völu Ómars­ dóttur og sú mynd hefur ferðast um heiminn síðasta rúma árið og verið þýdd á þrettán tungumál. Mér finnst ekkert skemmtilegra en að vinna með fólki, skapa listaverk, halda hátíðir og framleiða viðburði því þá þurfa svo margir að koma að því, rétt eins og í stóru púsluspili þar sem myndin verður ekki full gerð án allra púslanna,” segir Hallfríður. „Mig langar að taka þátt í alþjóðlegu samtali listamanna óháð því hvar ég bý hverju sinni. Það er það sem mig langar að gera þegar ég verð orðin stór.” Ég er ótrúlega fegin að hafa tekið af skarið. Ég pantaði flugið kvöldið fyrir flugtak og pakkaði án þess að vita hve lengi ég yrði í burtu. Það var mjög skrýtin tilfinning. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . A P R Í L 2 0 2 0 M Á N U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.