Fréttablaðið - 20.04.2020, Síða 30
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Núna er sett upp leikrit á hverju
ári hjá Höfrungi –leikdeild hér á
Þingeyri. Þar er einn eldhugi og
þetta starf væri ekkert án hans.
Elskulegur eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ingvi B. Guðmundsson
járnsmiður og slökkviliðsmaður,
til heimilis að Suðurlandsbraut 58,
lést þann 14. apríl á Vífilsstöðum.
Útförin fer fram í kyrrþey.
Starfsfólki Fríðuhúss þökkum við sérstaklega
hlýju og alúð við umönnun hans síðustu ár.
Einnig þökkum við starfsfólki Vífilsstaða fyrir
góða umönnun síðustu vikurnar í lífi hans.
Agnes Kjartansdóttir
Dadda Guðrún Ingvadóttir Sveinn Óskarsson
Benedikt Ingvason Áshildur Jónsdóttir
Sigrún Björg Ingvadóttir Halldór Þorvaldsson
barnabörn og barnabarnabörn
Útför elskulegs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Jóns H. Bergs
fv. forstjóra SS og
aðalræðismanns Kanada,
fer fram miðvikudaginn
22. apríl kl. 15.00.
Aðeins nánasta fjölskylda verður viðstödd
en streymt verður frá athöfninni á vefslóðinni
https://livestream.com/accounts/21705659/jonhbergs
Jón Gunnar Bergs María Soffía Gottfreðsdóttir
Magnús Helgi Bergs Klara Zelei
Björn B. Alfreðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Þegar maður kafar ofan í sögu leiklistar á Vestf jörðum áttar maður sig á því að í fjórðungnum var fólk sem ruddi brautina svo vel að maður getur sjálfur helgað
sig listinni, segir Elfar Logi Hannesson,
eini atvinnuleikari Vestfjarða. Hann
hefur rekið eigið leikhús, Kómedíuleik-
húsið, í áratugi og sett upp fjölda ein-
leikja. Sá frægasti fjallar um Gísla Súrs-
son, sem Elfar Logi telur fyrsta leikara
Vestfjarða, enda hafi Gísli komist ræki-
lega á blað er hann lék Ingjaldsfíflið.
Dýrfirðingar listfengir
Elfar Logi lætur líka muna um sig á rit-
vellinum. Nú er komin út ný bók eftir
hann, Leiklist og list á Þingeyri og þar
er allur Dýrafjörðurinn undir.
„Ég ætlaði fyrst bara að skrifa leiklist-
arsöguna, svo ákvað ég að bæta annarri
list við vegna þess að Dýrfirðingar eru
svo listfengir, það leikur allt í höndunum
á þeim,“ útskýrir hann. „Ég skrifaði bók
um leiklistina á Bíldudal fyrir nokkrum
árum, þar var af nógu að taka. Hér á
Þingeyri á myndlistin líka mikla sögu.
Listmálararnir Nína Tryggvadóttir og
Jón Engilberts komu hér við og einn
kaflinn í bókinni fjallar um listahjónin
á Hofi, Gunnar Guðmundsson og Guð-
mundu Jónu Jónsdóttur, afa og ömmu
Vilborgar Davíðsdóttur rithöfundar.
Munda sótti meðal annars efnivið í
sín verk í fjöruna, Gunnar rataði í hina
merku bók Einfarar í íslenskri myndlist,
þó hann væri kominn á eftirlaun þegar
hann byrjaði að mála.“
Leiklistin hefur átt sín blómaskeið í
Dýrafirði og daprari ár á milli að sögn
Elfars Loga. „Oft byggist drifkrafturinn
á sama fólkinu í einhver ár, það koma
einhverjir brjálæðingar sem taka
áhugamálin fram yfir vinnuna og vex
ekkert í augum í þeim efnum. Í hinum
smærri byggðum er hver einstaklingur
svo mikilvægur, alveg á við heila blokk í
Reykjavík, eða heilt hverfi. Núna er sett
upp leikrit á hverju ári hjá Höfrungi –
leikdeild hér á Þingeyri. Þar er einn
eldhugi og þetta starf væri ekkert án
hans. Það hófst með Dragedukken 2009
og svo hafa verið sett upp verk árlega,
nánast óslitið síðan,“ segir Elfar Logi
sem hefur leikstýrt öllum sýningum
Höfrungs.
List augnabliksins
Elfar Logi er fæddur og uppalinn á
Bíldudal en býr nú á Þingeyri og fer um
allt með sínar sýningar en þar sem nú
er samkomubann í landinu segir hann
ágætt að fást við grúsk og að skrifa.
„Ég greip það í mig að mig langaði að
skrifa leiklistarsögu Vestfjarða. Íslenska
leikbókmenntadeildin er frekar tómleg
og þó flottar bækur séu til um sögu bæja
og byggða þá er listin yfirleitt afgreidd
nokkuð snögglega þar, enda margt sem
þarf að segja frá. Þannig að ég ákvað að
stúdera leiksögu Vestfjarða og er þegar
byrjaður á þriðju bókinni – um leiklist í
Bolungarvík,“ lýsir hann.
„En leiklist er list augnabliksins,“
bendir hann á. „Hún gerist bara hér
og nú og heimildirnar hverfa oft með
fólkinu. Mér finnst ég vera í dálitlu
kapphlaupi við tímann. Ég hitti margt
fólk sem tók þátt í sýningum en þegar
ég fer að yfirheyra það er algengt svar:
„Það var mikið leikið, alltaf sett upp
eitthvað á hverjum vetri,“ svo fer minna
fyrir upplýsingum um hvað var leikið,
hvaða ár og hverjir léku. Það rennur
allt dálítið saman – að ekki sé minnst á
myndaskortinn.“
Í nýju bókinni er listi yfir 55 leikverk
sem sett hafa verið upp í Dýrafirði, þó
er sýninga Kómedíuleikhússins ekki
getið þar. Þegar gluggað er í bókina sést
að á sjöunda áratugnum hefur Leikfélag
Þingeyrar verið starfandi og líka Leik-
félag Núpsskóla. Fram að því virðist
kvenfélagið Von standa fyrir f lestum
sýningum. „Það hefur verið eins í Bol-
ungarvík, kvenfélagið þar hefur verið
sterkur bakhjarl sýninga,“ lýsir Elfar
Logi. „Í gerðabókum félaganna er þó
yfirleitt fáum orðum eytt í þennan þátt
starfsins, einungis getið um að sett hafi
verið upp leikrit. Svo koma eyður í þessa
sögu alla, þá hefur líklega verið rólegt í
sýningahaldi, kannski hefur bara verið
dansað þeim mun meira,“ segir hann
glaðlega. „Það er sko aldrei leiðinlegt
hérna fyrir vestan!“ gun@frettabladid.is
Finnst ég vera í dálitlu
kapphlaupi við tímann
Elfar Logi Hannesson er þekkt nafn í íslenskri leiklistarsögu. Hann hefur sett upp
yfir 40 einleiki, vinsælastur er Gísli Súrsson. Einnig skrifar hann bækur um vestfirska
menningu, með áherslu á leiklistina, sú nýjasta nefnist Leiklist og list á Þingeyri.
Í samkomubanni segir Elfar Logi ágætt að fást við grúsk. MYND/MARSIBIL
Merkisatburðir
1916 Víðavangshlaup ÍR fer fram í fyrsta sinn en það er
árviss viðburður síðan á sumardaginn fyrsta.
1920 Sumarólympíuleikar eru settir í Antwerpen í Belgíu.
1925 Kastrupflugvöllur í Danmörku er vígður.
1928 Mæðrastyrksnefnd er stofnuð í Reykjavík.
1950 Þjóðleikhúsið er vígt.
1972 Ásatrúarfélagið er stofnað á Íslandi.
1977 Boris Spassky sigrar Vlastimil Hort í skákeinvígi í
Reykjavík.
1978 Sænska þingið samþykkir breytingar á erfðalögum
sem gera Viktoríu að krónprinsessu.
1991 Alþingiskosningar eru á Íslandi og ellefu listar eru í
framboði, fleiri en nokkru sinni fyrr.
1992 Heimssýning er opnuð í Sevilla.
2 0 . A P R Í L 2 0 2 0 M Á N U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT