Feykir


Feykir - 29.03.2017, Blaðsíða 20

Feykir - 29.03.2017, Blaðsíða 20
20 13/2017 Námið er sérsniðið að íslenskri ferðaþjónustu með sterkri tengingu við leiðandi fyrirtæki í greininni. Áhersla er lögð á stjórnun ferðaþjónustu í víðu samhengi, allt frá stærri hótelum og veitingastöðum til móttöku gesta í þjónustumiðstöðvum og umsjón ferða um hálendið. Hólaskóli - Háskólinn á Hólum Hólum í Hjaltadal 551 Sauðárkrókur Sími 455 6300 holaskoli@holar.is www.holar.is w w w .h ol ar .is BA í stjórnun ferðaþjónustu og móttöku gesta Ferðaþjónusta er skemmtilegt og síbreytilegt fag þar sem starfsfólk tekst á við flókin verkefni alla daga. Ný námsleið vel svo ekki sé á þeim ryk eða önnur óhreinindi. Ég notaði t.d perur og ananas með viðjugrein og einni rós á hvert borð sem kom mjög vel út. Margir láta prenta fyrir sig á servíettur og upplagt er að taka nokkuð ríflega af þeim sem má þá nota til að setja undir skreytingarnar og/eða til að lífga upp á borðin. Einnig má nota litlar skálar eða glös til að skreyta og setja í þær flotkerti, þá má t.d. lita vatnið með matarlit en einnig má setja gróft salt í þær og setja þá sprittkerti sem falla aðeins ofan í saltið. Ég mæli alltaf með því ef notuð eru sprittkerti að láta þau aldrei beint í glervasa eða skál því þau eru misjöfn að gæðum, þ.e. vaxið í þeim, og þau geta hitnað of mikið og hreinlega sprengt glerið. Því mæli ég alltaf með að setja sand, steina, salt, eða bara eitthvað sem getur dreift hitanum frá álinu utan um vaxið. Ég hef séð svona glös springa og það er ekki skemmtilegt að upplifa svo allur er varinn góður. Ef ykkur langar að hafa veisl- una heima en finnst að plássið sé ekki nóg fyrir alla gestina er eitt sniðugt ráð við því, það er að hafa ekki alveg sömu tímasetningu á öllum boðskortunum og láta þar með gestina ekki koma alla á sama tíma, hafa t.d klukkutíma á milli. Það gefur ykkur færi á njóta þessarar stundar betur með öll- um ykkar gestum. Þetta er dagur til að njóta með ættingjum og vinum. Þema í skreytingum getur verið bæði hvað varðar liti, og eða áhugamál fermingarbarnsins og er um að gera nýta sér það. Fótboltabarnið gæti t.d verið með skreytingu í sínum uppá- haldsskóm sem viðkomandi er vaxið upp úr, upprennandi bóndinn gæti verið með hesta- eða rolluþema og svo mætti lengi telja. Ekkert er úr takti ef áhuginn er fyrir hendi. Og umfram allt, hugsið þetta út frá ykkur sjálfum, hvað finnst ykkur fallegt og hentugt fyrir ykkur. Til hamingju fermingarbörn nær og fjær. Að ýmsu þarf að huga þegar kemur að fermingu og alltaf gott að gefa sér góðan tíma í undirbúning, þá verður allt svo miklu auðveldara. Mér finnst gott, svona þegar ferm- ingarbarnið hefur ákveðið hvort það vill köku- eða matarveislu, ef það þá vill hafa veislu, að byrja á því að skoða hvað er til á heimilinu sem nota má í skreytingar. Gott er að byrja á því að ákveða litaþema og finna svo í samræmi við það hvað er til. Það er nefni- lega flest til á mörgum heimilum og alltaf gott að sníða sér stakk eftir vexti og sérstaklega gott að geta endurunnið hlutina, svo endilega skoðið hvað þið eigið til, það leynast fjársjóðir á flestum heimilum. Á borðum sem gestir sitja við getur verið fallegt að setja eitt- hvert skraut og ef menn nota t.d blóm þarf ekki endilega að eiga eða fjárfesta í mörgum vösum. Það má til dæmis nota ávexti, ekki samt sítrusávexti, en perur, epli, ananas og melónur geta verið fallegar sem blómavasi en það má einnig klippa greinar úr nátturinni og láta þær byrja að opna sig með smá fyrirvara. Passið bara að skola greinarnar Dæmi um fallegar fermingarskreytingar hjá Sigurlaugu í Húnabúð á Blönduósi. MYNDIR: SIGURLAUG Sigurlaug Gísladóttir í Húnabúðinni á Blönduósi Góð ráð fyrir fermingarveisluna UMSJÓN Fríða Eyjólfsdóttir

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.