Feykir - 29.03.2017, Blaðsíða 16
16 13/2017
erum að vinna með þetta svipað
með Drangeyjardæmið. Sveit-
irnar gista úti á Reykjum og
einhverjir hafa prófað að fara í
siglingu með Viggó og Helga
Rafni sem er auðvitað
ógleymanleg upplifun. Þetta
hefur gengið vel og það er mikill
spenningur í þessum hópi sem
er að koma í sumar. Sumir hafa
komið áður eins og Jónas og
ritvélarnar sem voru hér fyrsta
árið. Mugison höfum við reynt
að fá bæði árin á undan þannig
að hann veit vel af okkur. Hann
hefur komið til okkar austur og
veit alveg hvernig svona hátíðir
fara fram enda einn af upphafs-
mönnum Aldrei fór ég suður.
Amabadama hefur komið á
Gæruna og einnig á Bræðsluna
og vita alveg út í hvað þau eru að
fara. Eins er með Emmsjé
Gauta. Hann hefur spilað á
Króknum og svo eru þau í
Contalgen Funeral auðvitað
heimamenn, en það er mjög
mikilvægt að hafa heimafólk
líka á sviðinu. Þetta verður
góður hópur og skemmtileg
stemning.
iPhone eða tvöfalt
kassettutæki
Svona í lokin og með hliðsjón
af því að fermingar nálgast
óðfluga er Heiðar spurður að
því hvað hann myndi langa í í
fermingargjöf ef hann væri að
fermast núna. Eftir stutta þögn
en mikla íhugun segir hann
vandamálið með fermingar-
börn í dag vera það að þau eigi
alla skapa hluti og hann væri
efalaust í vandræðum með að
svara þessu ef hann væri að
fermast núna. „Miðað við allt
sem ég veit núna væri örugg-
lega gáfulegast að fá einhverja
upplifun í fermingargjöf, ferð
um heiminn eða ferð í
tungumálaskóla erlendis, eða
hljóðfæri, í mínu tilfelli yrði
það bassi, það er mitt hljóðfæri.
En líklega væri maður að hugsa
um eitthvert i-tæki; iPad,
iPhone eða alla vega í einverjum
raftækjapælingum. Þykist vita
það. Það yrði líklega ekki sam-
stæða með plötuspilara og
tvöföldu kassettutæki! Kannski
flottur bluetooth hátalari eða
heyrnartól.
Þá vitum við það, bassi og
bluetooth er málið hjá Heiðari.
En líklega hefði verið gert
óspart grín að þeim einstakl-
ingi sem hefði haldið því fram
að ekki þyrfti snúru í hátalara
til að í þeim heyrðist þegar
Heiðar fermdist 1987. Ekki illa
meint samt.
Borgaraleg ferming
Mismunandi
viðhorf unglinga
til lífsins
Frá árinu 1989 hefur Siðmennt
staðið fyrir borgaralegum
fermingum á Íslandi sem
valkost þeirra sem kjósa aðrar
leiðir en kirkjan býður upp á.
Á heimasíðu Siðmenntar segir
að sá valkostur njóti sífellt
meiri vinsælda og standi öllum
unglingum til boða. Þar segir
einnig að íslenska orðið
ferming sé þýðing á latneska
orðinu confirmare sem merkir
m.a. að styðja og styrkja.
„Ungmenni sem fermast borg-
aralega eru einmitt studd í því
að vera heilsteyptir og ábyrgir
borgarar í lýðræðislegu sam-
félagi en megintilgangur borg-
aralegrar fermingar er að efla
heilbrigð og farsæl viðhorf
unglinga til lífsins og kenna
þeim að bera virðingu fyrir
manninum, menningu hans og
umhverfi.
Alls konar unglingar velja að
fermast borgaralega. Sumir til-
heyra trúfélögum, aðrir ekki,
sumir eiga við fötlun að stríða
og aðrir ekki, sumir eru af
erlendum uppruna og sumir
hafa ekki náð fullkomnum
tökum á íslensku, sumir eru
bráðgerir og eiga mjög auðvelt
með nám og sumir eiga erfitt
með nám. Tekið er á móti
hverjum og einum eins og hann
er og er fjölbreytt mannlíf
álitinn mikill kostur,“ segir á
sidmennt.is.
Fyrstu átta ár borgaralegra
ferminga Siðmenntar var fjöldi
þeirra sem kusu þá athöfn
rokkandi, frá ellefu börnum til
þrjátíu. Árið 1997 voru börnin
alls 50 en tíu árum síðar komin
yfir 100. Nú, 20 árum síðar, er
fjöldi þeirra barna sem velja
þess konar athafnir, kominn
yfir 300.
Fermingarathöfnin er hátíð-
leg og hápunktur hennar virðu-
leg lokaathöfn. Þar eru börnin
sjálf í aðalhlutverkinu. Þau
koma fram prúðbúin, flytja
ávörp, ljóð og sögur, spila á
hljóðfæri og dansa svo fátt eitt
sé nefnt. Að lokum fá þau
afhent skrautritað skjal til
staðfestingar á því að þau hafi
lokið fermingarnámskeiðinu.
Eftir því sem Feykir kemst næst
munu öll fermingarbörn í
Húnavatnssýslum fermast
kristilegri athöfn en þrjú börn í
Skagafirði hafa ákveðið að njóta
leiðsagnar Siðmenntar og ferm-
ast borgaralega. Feykir hafði
samband við þau og forvitnaðist
lítið eitt um ákvörðun þeirra.
UMSJÓN
Páll Friðriksson
Soffía Hrafnhildur Rummelhoff
Soffía býr á Sauðárkróki, dóttir Erlu Einarsdóttur
og Karsten Rummelhoff
Af hverju ákvaðst þú að
fermast borgaralega?
-Ég ákvað að fermast
borgaralega af því að ég
trúi ekki á Guð. En mig
langaði samt að fermast
og mér finnst námskeið-
in og fræðslan hjá Sið-
mennt mjög góð og
henta mér rosalega vel.
Hvernig veislu ætlar þú
að halda? -Það verður
veisla fyrir stórfjölskyld-
una með heitum réttum
og kökum.
Hvað langar þig að fá í fermingargjöf? -Ég er búin að fá
fermingargjöfina frá mömmu og pabba. Það var iPhone
7+ og ég var mjög ánægð. Svo langar mig í rúm, fataskáp
með speglahurð og pening til dæmis.
Birta Sylvía Ómarsdóttir
Birta Sylvía býr á Sauðárkróki, dóttir Sigrúnar
Hrannar Pálmadóttur og Þorgríms Ómars Tavsen
Af hverju ákvaðst þú að
fermast borgaralega?
-Ég ákvað að fermast
borgaralega því mér
fannst það henta mér
betur því að ég er trú-
leysingi. Einnig langaði
mig að læra að verða
heilsteyptur og ábyrgur
borgari í lýðræðislegu
samfélagi.
Hvað finnst vinum
þínum um það að þú
fermist borgaralega?
-Sumum vinum mínum
finnst það skrítið og öðrum finnst það bara fínt.
Hvað fannst þér skemmtilegast við fermingarfræðsl-
una? -Mér fannst allt mjög skemmtilegt í fermingar-
fræðslunni t.d. hópavinnan, fyrirlestrarnir, rökhugsunin,
samkenndin og fordómaleysið.
Hvað langar þig að fá í fermingargjöf? Í fermingargjöf
langar mig mest í utanlandsferð með fjölskyldunni.
Anna Sif Mainka
Anna Sif býr í Ásgarði í Viðvíkursveit,
dóttir Hlínar C. Mainka Jóhannesdóttur
og Sveins Ragnarssonar
Af hverju ákvaðst þú að
fermast borgaralega?
-Mig langaði að ferma
mig borgaralega. Þó að
ég trúi á æðri mátt þá vil
ég ekki binda þessa trú
við ákveðin trúarbrögð.
Hvernig var fermingar-
fræðslan hjá þér? -Ég
mætti á tvö helgar-
námskeið í Reykjavík,
þar sem við ræddum
mest um heimspeki og
siðfræði.
Hvað langar þig að fá í
fermingargjöf? -Mest langar mig í ferð til útlanda.
Frá athöfn borgaralegar fermingar. MYND: SIÐMENNT