Feykir - 26.07.2017, Page 2
Nýverið las ég grein eftir Friðriku Benónýsdóttur sem
vinkona mín deildi á Facebook. Greinin er að vísu fimm
ára gömul en á jafnt við í dag sem þá. Hún ber yfirskriftina
Listin að gera ekki neitt og þar
fjallar Friðrika um þá „félags-
legu pressu að vera sífellt á
þönum eins og landafjandi á
sterum“ eins og hún kemst svo
skemmtilega að orði um þörf
nútímamannsins fyrir að
skipuleggja hverja mínútu lífs-
ins og vera alltaf að gera
eitthvað.
Það að maður sé álitinn þung-
lyndur ef maður ætlar bara að
gera „ekki neitt“ í sumarfríinu og njóta þess að eiga tíma
fyrir sjálfan sig í stað þess að keyra sig út á einhverri
þaulskipulagðri dagskrá. Það að verða alltaf að hafa eitt-
hvað fyrir stafni til þess að aðrir sjái að líf manns sé eitthvað
spennandi.
Mikið er ég sammála því sem Friðrika segir. Og nú, þegar
ég er rétt að fara í örstutt sumarfrí, er ég alveg óendanlega
þakklát fyrir að ég skuli ekki hafa skipulagt einhverja
viðburði í fríinu sem ég þarf nauðsynlega að standa við. Í
staðinn get ég lagst með tærnar upp í loft, úti á palli, inni í
sófa, allt eftir því hvernig veðrið verður. Og ég ætla að njóta
þess.
Góðar stundir!
Fríða Eyjólfsdóttir, blaðamaður
LEIÐARI
Loksins, loksins –
sumarfrí á næsta leiti
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Glæsileg og vel búin bifreið
Nýr brunabíll á Blönduós
Brunavarnir Austur-Húnavatns-
sýslu hafa fest kaup á nýjum
slökkvibíl og var hann til sýnis á
nýafstaðinni Húnavöku. Bifreið-
in, sem keypt var af Feuerwehr-
technik Berlin, er af tegundinni
MAN, með sex þúsund lítra
vatnstanki, 500 lítra froðutanki
og öllum öðrum nauðsynlegum
búnaði.
„Stjórn BAH er afar stolt yfir
þessum áfanga og má segja að
nú hafi verið brotið blað í sögu
BAH með þessari glæsilegu
slökkvibifreið, " segir í fundar-
gerð Brunavarna Austur-Húna-
vatnssýslu frá 18. júlí sl. Þar eru
slökkviliðsstjóra færðar þakkir
fyrir hans vinnuframlag í tengsl-
um við kaupin á bifreiðinni.
Í fundargerðinni kemur fram
að rekstrartekjur ársins 2016
voru kr. 1.228.145,- og rekstrar-
gjöld hljóðuðu upp á 12.802.711
kr. Framlög sveitarfélaganna
voru 18 millljónir króna. Hagn-
aður ársins 2016 var kr. 6.418.175,-
og handbært fé í árslok 402.408
kr. Fram kemur að mun færri
útköll voru á árinu 2016 en árinu
á undan eða fjögur á móti
fimmtán árið á undan. /FE
30 bátar lönduðu rúmum 98 tonnum á Skagaströnd í
vikunni, á Hofsósi var landað tæpum 13 tonnum úr
fimm bátum og á Hvammstanga landaði einn bátur
rúmum þremur tonnum.
Tæplega 831 tonni var landað á Sauðárkróki en þar
með eru talin 512 tonn af rækju sem flutningaskipið
Samskip Ice flutti hingað frá Tromsö í Noregi fyrir Dögun
á Sauðárkróki. Í heildina var landað 945.278 kílóum af
fiski en einnig kom Havfrakt til Sauðárkróks með 1.250
tonn af skeljasandi fyrir Steinull. Þá kom flutningaskip
Eimskips, Blikur, einnig til Sauðárkróks í vikunni. /FE
AFLATÖLUR 16. júlí – 22. júlí 2017 á Norðurlandi vestra
Mörg flutningaskip til Sauðárkróks
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Sæunn HU 30 Handfæri 3.119
Tara SK 25 Handfæri 704
Víðir EA 423 Handfæri 3.019
Alls á Skagaströnd 98.477
SAUÐÁRKRÓKUR
Badda SK 113 Þorskfiskinet 453
Dagur SK 17 Rækjuvarpa 19.041
Fannar SK 11 Landbeitt lína 2.318
Farsæll SH 30 Rækjuvarpa 31.178
Gammur II SK 120 Þorskfisknet 2.269
Gjávík SK 20 Handfæri 2.232
Helga Guðmundsd. SK 23 Handfæri 529
Hrafnreyður KÓ 100 Annað 4.296
Klakkur SK 5 Botnvarpa 97.868
Kristín SK 77 Handfæri 611
Maró SK 33 Handfæri 1.374
Málmey SK 1 Botnvarpa 150.589
Már SK 90 Handfæri 2.284
Óskar SK 13 Handfæri 1.411
Samskip Ice NO 36 Rækjuvarpa 512.062
Vinur SK 22 Handfæri 2.195
Alls á Sauðárkróki 830.710
HOFSÓS
Ásmundur SK 123 Landbeitt lína 2.769
Geisli SK 66 Handfæri 3.906
Leiftur SK 136 Handfæri 902
Skáley SK 32 Handfæri 3.240
Þorgrímur SK 27 Landbeitt lína 2.013
Alls á Hofsósi 12.830
HVAMMSTANGI
Bergur Vigfús GK 43 Lína 3.261
Alls á Hvammstanga 3.261
SKAGASTRÖND
Auður HU 94 Handfæri 785
Beggi á Varmalæk HU 219 Handfæri 2.904
Bjartur í Vík HU 11 Handfæri 1.506
Blíðfari HU 52 Handfæri 3.019
Bogga í Vík HU 52 Handfæri 2.203
Dagrún HU 121 Þorskfisknet 7.154
Dísa HU 91 Handfæri 468
Elín ÞH 82 Handfæri 2.424
Garpur HU 58 Handfæri 2.225
Geiri HU 69 Handfæri 3.091
Greifinn SK 19 Handfæri 645
Guðmundur á Hópi HU 203Lína 10.852
Guðrún Ragna HU 162 Handfæri 3.157
Gyðjan HU 44 Handfæri 2.412
Hafdís HU 85 Handfæri 1.862
Hafey SK 10 Handfæri 766
Hafrún HU 12 Dragnót 23.640
Húni HU 62 Handfæri 3.208
Jenný HU 40 Handfæri 2.338
Kambur HU 24 Handfæri 1.449
Kópur HU 118 Handfæri 1.193
Maggi Jóns HU 70 Handfæri 3.162
Már HU 545 Handfæri 585
Ólafur Magnússon HU 54 Handfæri 537
Stella GK 23 Landbeitt lína 6.822
Svalur HU 124 Handfæri 1.525
Sæfari HU 212 Landbeitt lína 1.703
Sveitarfélagið Skagafjörður
Sækja þarf um
stöðuleyfi
Á vef Svf. Skagafjarðar er
vakin athygli á því að sækja
þarf um stöðuleyfi til sveitar-
félagsins til að láta lausa-
fjármuni standa lengur en
tvo mánuði utan þeirra
svæða sem sérstaklega eru
skipulögð og ætluð til
geymslu slíkra muna. Þar er
m.a. um að ræða hjólhýsi, á
tímabilinu frá 1. október til
1. maí, gáma, báta,
torgsöluhús, frístundahús í
smíðum, sem ætlað er til
flutnings, og stór
samkomutjöld.
Umsókn um stöðuleyfi
skal vera skrifleg og undir-
rituð af eiganda eða ábyrgðar-
manni viðkomandi hlutar og
skal fylgja samþykki eiganda
eða lóðarhafa þeirrar lóðar
sem fyrirhugað er að lausa-
fjármunirnir standi á. Sjá
nánar á Skagafjörður.is. /PF
Palli Magg með þorsk með augnskugga.
MYND: SILLA PÁLS
Nýi bíllinn var til sýnis á Húnavöku. MYND: HÚNI.IS
Ásdís Brynja í
hollenska landsliðið
Húnvetningur keppir fyrir Holland
Ásdís Brynja Jónsdóttir á Hofi í
Vatnsdal hefur verið valin í
hollenska landsliðið í
hestaíþróttum. Ásdís segir að
leiðarvísinum fyrir landsliðsvali
sé öðruvísi háttað í Hollandi en
á Íslandi en þar þarf að ná
ákveðinni lágmarkseinkunn á
World Ranking-mótum til að
eiga möguleika á að verða
valinn.
„Ég var búin að ríða lág-
mörkin einu sinni fyrir Íslands-
mótið sem fór fram á Hólum svo
spennan var í hámarki. Ég reið
svo lágmörkin í forkeppninni í
fimmgangi og sigraði svo
B-úrslitin með 6,31 sem fóru
fram á laugardaginn. Seinna
sama dag fékk ég svo að heyra
að ég væri komin í landsliðið,“
segir Ásdís.
Hesturinn sem Ásdís keppir
á heitir Sleipnir frá Runnum og
er 11 vetra gamall undan Orra
frá Þúfu og Grímu frá Lynghaga.
„Ég myndi lýsa hestinum sem
heilsteyptum alhliða gæðingi
með frábært geðslag.“
Feykir óskar Ásdísi til ham-
ingju með von um gott gengi
ytra. /PF
2 29/2017