Feykir - 26.07.2017, Blaðsíða 4
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.isF
Stefán Arnar tekur
við liði Tindastóls
Knattspyrnudeild Tindastóls
Í tilkynningu frá Knattspyrnu-
deild Tindastóls í gærkvöldi
var það tilkynnt að Knatt-
spyrnudeild Tindastóls og
þjálfarar meistaraflokks
karla, þeir Stephen Walmsley
og Christofer Harrington, hafi
komist að þeirri niðurstöðu að
þeir leggi niður störf sem
þjálfarar meistaraflokks
Tindastóls í knattspyrnu.
Síðan segir í tilkynning-
unni: „Ástæða starfsloka er
árangur liðsins í sumar sem
báðir aðilar eru sammála um
að sé alls ekki sá sem var stefnt
á í byrjun sumars. Knatt-
spyrnudeild Tindastóls þakk-
ar þeim fyrir sín störf, en þeir
hafa frá fyrsta degi lagt mikla
vinnu í starf sitt. Óskum við
þeim velfarnaðar í komandi
verkefnum.“
Að sögn Bergmanns Guð-
mundssonar, formanns knatt-
spyrnudeildar Tindastóls,
hefur Stefán Arnar Ómarsson
verið ráðinn þjálfari út
tímabilið en Stefán var annar
helmingur þjálfarateymis
liðsins í fyrra, þegar liðið
tryggði sér sæti í 2. deild. Þá
eru Stólarnir að leita að
liðsstyrk í júlíglugganum og
ættu þau mál að skýrast á
næstu dögum. Fráfarandi
þjálfari Stólanna, Stephen
Walmsley, var einnig einn
mikilvægasti leikmaður liðs-
ins þannig að ljóst er að skarð
er fyrir skildi og stoppa þarf í
götin. /ÓAB
2. deildin í knattspyrnu
Súrt tap í sex stiga leik
Stólarnir máttu bíta í það
súra epli að fara halloka
gegn liði Fjarðabyggðar sem
heimsótti Krókinn á heitasta
degi sumarsins. Stólarnir voru
klárlega sterkara liðið í
leiknum, enda einum fleiri í
rúman klukkutíma, en það
voru gestirnir sem nýttu færin
sín af kostgæfni og uppskáru
þrjú stig og settu botnbaráttu
2. deildar í algjört uppnám.
Lokatölur 2-3 fyrir
Fjarðabyggð.
Ísak Sigurjónsson kom
Stólunum yfir strax á 5. mínútu
með hörkuskoti en á 17. mínútu
jafnaði Mbang Ondo fyrir
Fjarðabyggð eftir að Stólunum
mistókst að koma boltanum frá
marki sínu. Stólarnir héldu
boltanum betur en gestirnir og
á 28. mínútu hljóp á snærið hjá
heimamönnum þegar Georgi
Karaneychev fékk að líta rauða
spjaldið eftir að hafa gefið
Ragga Gunn kröftugt olnboga-
skot. Kenny Hogg fékk eina
markverða færið fram að
hálfleik en klikkaði.
Stólarnir blésu til sóknar í
síðari hálfleik en Spánverjinn
Enrique Rivas reyndist dýr-
mætur gestunum því hann
skoraði tvívegis á upphafsmín-
útunum. Staðan skyndilega
orðin 1-3 og brekkan orðin
brött hjá Stólunum sem reyndu
hvað þeir gátu að koma sér inn
í leikinn. Lið Fjarðabyggðar
bakkaði og varðist af krafti
þungri pressu heimamanna.
Fannar Kolbeinsson minnkaði
muninn í 2-3 á 81. mínútu en
þar við sat þrátt fyrir mýmarg-
ar hornspyrnur og fyrirgjafir
Tindastólsmanna.
Stólarnir söknuðu skapandi
leikmanns í leiknum en Benni
var ekki með að þessu sinni.
Næsti leikur Tindastóls er gegn
toppliði Njarðvíkinga. /ÓAB
Húnvetningar í ham í fótboltanum
4. deildin í knattspyrnu
Kormákur/Hvöt og Drangey voru í eldlínunni í 4.
deildinni um helgina. Húnvetningar fóru mikinn
en verr gekk hjá Skagfirðingum.
Lið Kormáks/Hvatar lék við Hrunamenn á
Flúðavelli og þar gerðu Ingvi Rafn Ingvarsson
og Sigurður Aadnegard sitt hvort markið í fyrri
hálfleik. Þeir Heiðar Örn Rúnarsson og Sigurður
skoruðu síðan undir lok leiksins og öruggur 0-4
sigur staðreynd. Kormákur/Hvöt er í öðru sæti
C-riðils 4. deildar með 21 stig eftir sjö sigra og
þrjú töp. Efst er lið Ýmis með 22 stig.
Lið Drangeyjar fékk Mídas í heimsókn á
Krókinn á laugardaginn. Gestirnir voru 0-2 yfir
í hálfleik og höfðu bætt við þremur mörkum í
þeim seinni áður en Eysteinn Bessi Sigmarsson
lagaði stöðuna fyrir Drangey. Lokatölur 1-5. /ÓAB
„Við erum allir góðir vinir
innan sem utan vallar“
Það er slöttungur af erlendum
knattspyrnukempum sem
kemur við sögu hjá bæði
karla- og kvennaliði
Tindastóls í sumar, líkt og
undanfarin sumur. Feykir setti
sig í samband við nokkra
þeirra og að þessu sinni er það
Bandaríkjamaðurinn Tanner
Sica, 23 ára piltur frá New
Jersey, sem svarar. Hann gekk
til liðs við Stólana í vor og
hefur staðið sig með sóma í
sumar og lengst af leikið í
stöðu vinstri bakvarðar.
Tanner er einn fimm systkina
en hann á tvo bræður, Mike og
Nick, og tvær systur, Jennu og
Savönnu. Hann er með gráðu í
íþróttafræðum frá Long Island
University í Brooklyn í New
York.
Hvernig kom það til að þú ert að
spila fótbolta á Ísslandi? Ég lék
gegn Stephen Walmsley, núver-
andi þjálfara Tindastóls, þegar
við vorum í háskólafótbolt-
anum í Bandaríkjunum. Við
héldum sambandi eftir að við
útskrifuðumst og hann bauð
mér að koma hingað og spila.
Hvað hefur komið þér mest á
óvart síðan þú komst til Íslands?
Ég held að það hafi komið mér
mest á óvart að það skuli ekki
dimma yfir sumartímann.
Nema kannski aðeins í nokkra
tíma yfir hánóttina. Það tók mig
talsverðan tíma að venjast því.
Hvernig finnst þér að vera hluti
af liði Tindastóls? Það er frá-
bært að vera hluti af Tindastóls-
liðinu. Frá fyrsta degi hafa allir
verið vingjarnlegir og séð til
þess að mér hafi gengið vel að
aðlagast öllu innan sem utan
vallar.
Hver er uppáhalds liðsfélagi
þinn? Það er enginn uppáhalds
í þessu liði. Allir hafa verið
Tanner Sica með boltann í leik gegn Sindra. MYND: ÓAB
[ ERLENDIR TUÐRUSPARKARAR ] oli@feykir.is
Tanner Sica / frá New Jersey í Bandaríkjunum / bakvörður í Tindastóli
mjög almennilegir og hjálp-
samir og við erum allir góðir
vinir innan sem utan vallar.
Hvaða væntingar hafðirðu til
sumarsins á Íslandi? Ég vonaðist
til að geta hjálpað liðinu til að
LAG SUMARSINS: Nei nei
með Áttunni. Það er vinsælt
íslenskt lag. Ég hef ekki
hugmynd um hvað verið
er að syngja en lagið er
grípandi.
SKRÍTNASTI MATURINN SEM ÞÚ
HEFUR BRAGÐAÐ Á ÍSLANDI:
Ég hafði aldrei borðað
hrossakjöt áður en ég kom til
Íslands en ég er hrifinn af því!
UPPÁHALDS FÓTBOLTALIÐIÐ
ÞITT: Manchester United.
ná góðum árangri. Markmið
okkar sem liðs er að vinna af
dugnaði og stefnan er sett á að
komast upp um deild í lok
tímabilsins.
Hvaða leikmaður hefur verið þér
fyrirmynd? Cristiano Ronaldo
var mér alltaf innblástur þegar
ég var að alast upp. Vinnusemi
hans er til fyrirmyndar og hann
er stórkostlegur leikmaður.
Hvað gerir þú annað hér á Sauð-
árkróki en að spila fótbolta? Á
virkum dögum þá hjálpa ég til á
vallarsvæðinu. Við Neil, félagi
minn hjá Tindastóli, sláum
völlinn og merkjum og gerum
allt sem í okkar valdi stendur til
að völlurinn sé í toppstandi
fyrir heimaleiki Tindastóls.
Hvað hefur verið erfiðast við að
dvelja á Íslandi? Erfiðast er að
vera fjarri vinum og ættingjum
heima.
Stephen Walmsley (t.h.) og Chris Harrington ræða saman. Þeir félagar skipuðu
þjálfarateymi Tindastóls en hafa nú kvatt liðið. MYND: ÓAB
4 29/2017
stutta
spilið