Feykir


Feykir - 26.07.2017, Blaðsíða 7

Feykir - 26.07.2017, Blaðsíða 7
sums staðar berghella, og tæp var gatan, geymdi rétt aðeins fótinn. Næsti sneiðingur var líka tæpur, en Monika horfði beint niður fyrir fætur sér, forðaðist að líta niður í gilið. Allt í einu beygði gatan til suðurs, lá eftir mjóum og afsleppum aurhrygg með stefnu á innri barm gilsins. Gusturinn varð að þungum sogum, með slotum á milli, eins og einhver furðuskepna lægi á gilbotninum og andaði þungt og erfiðlega. Niðri í gilinu sást glytta í straumstreng, og nú heyrðist svarrkenndur niður. Gatan sveigði austur á bóginn, varð rýmri og brattinn minni, en eftir því sem lengra dró niður gilið, urðu klettarnir í syðri barminum skuggalegri og ferlegri. Áin var óbrúuð. Hún fossaði stórgrýtt milli klettariðanna, hafði grafið skvompur og kalta í berghelluna á þeim þúsundum ára, sem hún hafði steðjað þarna um gilið, niður að hinni grænbláum Jökulsá. En hest- arnir ösluðu yfir ána, óragir og fótvissir. Nú gat að líta snasir, klettarið og hamrabrúnir á alla vegu, en yfir var svo sem vogskorin eyja, himinblá í svörtum sævi, hvít ljós hér og þar, einmanaleg og fjarræn. Þá er yfir ána var komið, virti Monika fyrir sér það, sem fram undan var. Henni hnykkti við. Hvar var leið upp úr þessu ógnar gili? Auganu mætti ekki annað en hamarbríkur og klettanef. En það rættist betur úr en á horfðist. Gatan reyndist öllu greiðari upp úr gilinu en ofan í það, þó að raunar væri leiðin hrikalegri. Fram á þverhnípt rið rakti hún sig, gatan, smó undir slútandi klettanef, vék sér niður í þvergil, upp brattar og fláar kinnar og eftir tæpum syllum. Loks var komið upp á aflíðandi hjalla, og svo var þá greiðfært alla leið upp á brúnina. Monika nam staðar, leit við, horfði niður í gilið, sem nú var enn myrkara en áður. Það þaut í klettum og skorningum, og það var urgkennt svarr í nið árinnar. Það var eins og hún tautaði örg og hvefsin: „Já, yfir ertu komin, yfir ertu komin, – en enginn veit sína ævina, telpa mín.“ Monika stóð sem bergnumin, og Gísli, er var kominn á bak reiðskjóta sínum, kallaði til hennar: „Farðu nú á bak, Mona mín. Það er örstutt heim, og nú skulum við flýta okkur að komast í bæinn og fá okkur eitthvað í svanginn.“ röska reiðskjóta. Það var komið fast að hádegi og leiðin er löng frá Sauðárkróki að Merkigili. Veður var stillt og bjart, en nokkurt frost. Snjór var á jörð, en hann var laus og ekki meiri en svo, að ekki var að honum verulegur trafali. Gísli yrti annað veifið á Moniku, og hún svaraði, en annars var hún hljóð. Hún var undrandi, og auk þess vógust á í hug henn- ar eftirsjá og eftirvænting. Hvernig stóð eiginlega á því, að hún hafði látið hafa sig í þetta, þrátt fyrir fasta ákvörðun um að fara suður, löngun til þess að njóta þar frjálslegs lífs í glöðum hópi hressilegra starfssystra og vissu um að vinna sér inn miklu hærri fjárhæð en hún gat fengið þarna fyrir norðan? Hvað beið hennar á hinum afskekkta bæ framan við Merkigilið, sem var svo hrika- legt og illt yfirferðar, að trölla- sögur gengu af því um allt héraðið? Að það væri Jóhannes? Skárri var það bannsett fjar- stæðan! Hún hafði ekki verið nema ellefu ára telpukrakki, þegar þau voru við heyskapinn á Teigakoti – og hann nýfermd- ur unglingur. En henni fannst eitthvað dult og sterkt og svo sem óumflýjanlegt við það, hvernig atburðirnir höfðu ráð- izt, og hvernig sem á því gat staðið, hvarflaði hugur hennar aftur og aftur að hinu hrikalega gili, þegar hún var að hugsa um þetta. […] Brátt sá Monika klettarið fram undan – og þó nokkuð á hægri hönd, því gatan hafði sveigt til austurs. Það lagði nepjugust í andlit ferðafélögunum, og Monika þóttist sjá, að kletta- riðin mundi gilbarmurinn syðri. Gatan sveigðist meir og meir austur á bóginn, og nú sá Monika fram af hengiflugi – ofan í ærið skuggalegt gímald. Gusturinn jókst, og hann smó ofan í hálsmálið á reiðtreyjunni, niður hálsinn og bakið, og Monika kenndi hrolls og svima. En samt gaf hún gilinu auga. Hún sá ekki niður í botn þess, svo skuggsýnt var orðið, en það var sem grettar ásjónur stingju þar saman nefjum. Gatan sveigðist frá gilbarminum, en tók síðan á sig krók og lá á ská niður gilkinnina. Gísli sté af baki, og Monika fór að dæmi hans. Lausu hestarnir stönzuðu, og Gísli hottaði á þá. Sá, sem var á undan, frýsaði og sló sig með taglinu. Svo hélt hann áfram, fetaði sig eftir sneiðingnum. Hinn fór á eftir, og síðan komu þau Gísli og Monika með hesta sína í taumi. Gísli leit um öxl og mælti: „Ertu nokkuð lofthrædd?“ „Nei,“ svaraði Monika, en dró þó við sig svarið, því að svimagjörn var hún, ef hún horfði fram af háum hömrum. Þau héldu áfram, og Monika var ekki hrædd, en dálítið óstyrk. Það var sjór í götunni, og undir var frosinn aur, en Fjóla Ólafsdóttir tengdadóttir Moniku við Merkigilið. Merkigilsbærinn sem ekkjan Monika lét reisa. Júlía Kristín Pálsdóttir á Flugumýri í Skagafirði er margverðlaunuð í hesta- íþróttum en á dögunum varð Júlía Kristín Íslandsmeistari í fjórgangi unglinga á Íslandsmóti yngri flokka, sem haldið var á Hólum í Hjaltadal. Þar sveif hún keppnisbrautina á Kjarval frá Blönduósi. Júlía á ekki langt að sækja hestaáhugann en hún er dóttir þeirra Eyrúnar Önnu Sigurðardóttur og Páls Bjarka Pálssonar sem gert hefur garðinn frægan með Flugumýrarhrossin. Júlía Kristín er Íþróttagarpur Feykis að þessu sinni. Íþróttafélag? Skagfirðingur. Helstu íþróttaafrek: -Var í fernum úrslitum á öllum þremur hestunum mínum á Íslandsmótinu á Hólum í Hjaltadal í ár. Íslandsmeistari tvö ár í röð og síðan 3. sæti á Landsmótinu 2016 auk margra minni titla. Skemmtilegasta augnablikið: -Þau eru eiginlega tvö. Þegar Eyrún systir mín vann A- flokkinn á Hrannari frá Flugumýri á Lands- mótinu á Hólum í fyrra og var fyrsta konan sem afrekaði það og hitt var þegar ég var pínulítil að keppa á Vindheimamelum og flýtti mér svo upp í brekku að horfa á Þórdísi systur mína að ég tók bara beislið af Dropa mínum og hann hljóp með hitt áleiðis heim. Neyðarlegasta atvikið: -Fór í fjórða gír en ekki bakkið á bílnum mömmu þegar ég var að snúa við og lenti út af. Great job! Einhver sérviska eða hjátrú? -Nei, ég held í rauninni ekki. Ég vil samt yfirleitt alltaf vera með gott skipulag í kringum mig. Uppáhalds íþróttamaður? -Ég ætla að nefna systkinin mín sem eru mínar helstu fyrirmyndir og eru öll flottir knapar. En síðan er Jakob Svavar Sigurðsson einnig í uppáhaldi hjá mér. Ef þú mættir velja þér and- stæðing, hver myndi það vera og í hvaða grein mynduð þið spreyta ykkur? -Ég myndi skora á systkinin mín hvert okkar myndi verða fyrst af okkur að leggja á og hoppa í hnakkinn. Hvernig myndir þú lýsa þeirri rimmu? -Læti, læti og meiri læti og ég myndi vinna! Helsta afrek fyrir utan íþrótt- irnar? -Vaxa & dafna. Lífsmottó: -Létt, ljúf & kát! Helsta fyrirmynd í lífinu: -Mínar helstu fyrirmyndir eru bara systkinin mín. Ef ég ætti þau ekki væri ég ábyggilega ekki komin svona langt sjálf í hestaíþróttinni. Hvað er verið að gera þessa dagana? -Halda áfram að þjálfa og sinna hrossunum mínum. Hvað er framundan? -Var að hugsa um að fara á svona eitt til tvö mót í viðbót og síðan ætla ég að gefa hrossunum mínum gott frí og fara kannski sjálf eitthvað í frí. Síðan ætla ég að taka snemma inn fyrir næsta ár og vera vel undirbúin. Júlía Kristín Pálsdóttir / hestaíþróttir Var í fernum úrslitum á Íslandsmótinu ( ÍÞRÓTTAGARPURINN ) palli@nyprent.is Íslandsmeistararnir í fjórgangi unglinga, Júlía Kristín og Kjarval frá Blönduósi. MYND ÚR EINKASAFNI 29/2017 7

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.