Feykir


Feykir - 26.07.2017, Page 3

Feykir - 26.07.2017, Page 3
Ekki missa af neinu! Dagana 26.-30. júlí ELDUR Í HÚNAÞINGI Hvammstanga TAKTU STRÆTÓ Þú hringir í síma 540 2700 og pantar ferðina Leið 83 Fimm daga bæjarhátíð í Húnaþingi vestra Eldur í Húnaþingi Hátíðin Eldur í Húnaþingi verður haldin dagana 26.-30. júli nk. og er þetta í fimmt- ánda skipti sem hátíðin er haldin. Upphaf hátíðarinnar má rekja til verkefnisins „Ungt fólk og atvinna“ sem hrundið var af stað árið 2002 með fundi sem öllu fólki í Húna- þingi vestra á aldrinum 20-30 ára var boðið til. Tilgangur fundarins var að skapa umræðugrundvöll fyrir ungt fólk, sem áhuga hefði á að setjast að á svæðinu, um atvinnumál og önnur þau mál sem snertu búsetu fólks í byggðarlaginu. Þaðan er hugmyndin um að halda bæjarhátíð sprottin. Upphaflega hét hún Ung- listahátíð en breyttist síðar í nú- verandi nafn. Stjórn Menningar- félags Húnaþings vestra sér um framkvæmd hátíðarinnar og skipar hún fjóra aðila í undir- búningsnefnd en auk þess kemur öflugur hópur sjálfboða- liða að undirbúningnum og telur hann um tíu manns. Feykir lagði nokkrar spurn- ingar fyrir þær Aldísi Olgu Jóhannesdóttur, stjórnarmann í Menningarfélaginu og Svein- björgu Rut Pétursdóttur sem á sæti í undirbúningshópnum. Fyrst voru þær stöllur spurð- ar að því hvenær undirbún- ingur hæfist. -Fyrsti undirbún- ingur hófst á haustmánuðum 2016, en þá bókuðum við þessi stærri atriði á hátíðinni. Það er vissara að vera snar í snúningum þegar bóka á vinsæla listamenn, því ekki fækkar hátíðinum sem eru að berjast um listamanna- bitana. Hvert er markmið hátíðarinn- ar?-Markmið hátíðarinnar eru fjölþætt og má meðal annars nefna að gera Húnaþing vestra sýnilegra og eftirsóknarvert sem stað til að búa á, stuðla að listsköpun og menningu hjá íbúum Húnaþings vestra, stuðla að þátttöku íbúa Húnaþings vestra og efla samskipti þeirra og samheldni. Ennig að stuðla að áhuga hjá yngri kynslóðinni á að vera skapandi og bera ábyrgð og efla áhuga hennar á menningu og hátíðinni sem slíkri. Síðast en ekki síst er markmiðið að hafa gaman og skemmta okkur sjálfum um leið og við skemmtum öðrum. Eru heimamenn áhugasamir og duglegir að leggja sitt af mörkum? -Heimamenn eru einstaklega áhugasamir og stoltir af hátíðinni og mjög margir íbúar Húnaþings vestra hafa einhvern tímann komið að hátíðinni á einn eða annan hátt. Eins og einn orðaði það einu sinni „þetta er hátíð okkar allra“. Það á enginn einn þessa hátíð, þetta væri engin hátíð ef ekki væri fyrir allt samfélagið í Húnaþingi vestra. Til hverra á hátíðin helst að höfða? -Hátíðin á að höfða til fjölskyldna, heimamanna, brott- flutta, gesta þeirra og annarra sem langar að gleðjast með heimamönnum. Við leggjum mikið upp úr því að bjóða upp á eitthvað fyrir alla og langflestir dagskrárliðir hátíðarinnar eru gestum hennar að kostnaðar- lausu. Hátíðin hefur þróast frá því að vera unglistahátíð yfir í að vera bæjarhátíð. Eru einhverjir dagskrárliðir sem eru alveg fastir? -Nokkrir dagskrárliðir hafa fest sig í sessi og má þar t.d. nefna Melló músíka þar sem heimamenn koma fram og flytja tónlist, útitónleika í Borgarvirki, fjöl- skylduskemmtun á laugardegi og lokadansleik á laugardags- kvöldi. Á hátíðin sér einhvern há- Hluti af undirbúningshópnum: Valdimar H. Gunnlaugsson, Sigurvald Ívar Helgason, Vilhelm Vilhelmsson, Ína Björk Ársælsdóttir, Elísa Ýr Sverrisdóttir, Aldís Olga Jóhannesdóttir og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir. MYNDIR: ALDÍS OLGA punkt? -Hápunkturinn fyrir marga virðast vera tónleikarnir í Borgarvirki, enda um einstakan stað að ræða og magnað að upplifa tónleika í þessari nátt- úrufegurð. Skiptir þá engu máli hvernig viðrar, Borgarvirki hefur þann eiginleika að geta verið stórfenglegt hvort sem það er glampandi sólskin seint á sumarkvöldi eða þoka og drungalegt um að litast. Hver er ávinningurinn af hátíð sem þessari? -Þótt klisjulegt sé að segja það þá er það fyrst og fremst gleðin. Þessi hátíð fær brottflutta, vini og vandamenn til að koma til baka. Gaman er einmitt að heyra af því hvað vinafólk heimamanna hefur tekið ástfóstri við hátíðina og mætir á hverju ári. Þá er mark- miðum okkar náð. Hátíðin er alls ekki rekin í hagnaðarskyni. Hvernig er ágóða af hátíðinni varið sé hann einhver? -Ef það er einhver ágóði þá fer hann einfaldlega inn á bankareikning og er ávaxtaður fram að næstu hátíð þar sem hann er nýttur. Reynt er að leggja upp með að hátíðin komi út á sléttu. Hátíðin gefur t.d. öllum kjötsúpu á opnunarhátíðinni, pylsur á fjölskyldudeginum, aðgang að námskeiðum og tónlistarflutn- ing í Borgarvirki. En þetta kostar jú allt pening sem hátíðin nær að greiða með styrkjum og sölu á auglýsingum og öðru smá- vægilegu. Er eitthvað sem stendur upp úr í 15 ára sögu hátíðarinnar? -Það hefur svo margt skemmti- legt gerst undanfarin 15 ár og ætli það sé ekki misjafnt hvað er fólki minnisstæðast. Ef eitthvað er þá er gaman að sjá hvað hátíðin hefur náð að halda sér, hún er ekki of stór og ekki of lítil, heldur bara akkúrat passleg. Að síðustu, hvernig verður veðrið? -Veðrið er alltaf gott á Eldinum. Veðurspáin hefur stundum verið að stríða okkur en það rætist oftar en ekki vel úr henni. Nú, og ef ekki, þá eru allir svo sérstaklega hamingjusamir á hátíðinni að það fer enginn að láta veður hafa áhrif á upp- lifunina og gleðina! Úr brúðuleikhússýningunni Tröll. VIÐTAL Fríða Eyjólfsdóttir 29/2017 3

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.