Feykir - 26.07.2017, Side 6
Annan daginn, sem Monika
var á Sauðárkróki, vék sér að
henni maður, þar sem hún stóð
inni í verzlunarbúð, og sagði:
„Hann er að leita að þér eins
og saumnál, hann Gísli á
Víðivöllum.“
„Sér er nú hver saumnálin,“
sagði Monika, sem orðin var
stór og þroskaleg, þá er hér var
komið.
Þegar hún kom út á götuna,
hitti hún Gísla. Hann heilsaði
henni hjartanlega og kvaðst
þurfa að ræða við hana mjög
alvarlegt mál. Þau fóru síðan
þangað, sem hún bjó. Þegar þau
voru sezt, mælti Gísli:
„Ég veit, að þú ert að fara
suður í Reykjavík, en ég hef
UMSJÓN
Páll Friðriksson
heyrt, að þú sérst samt ekki
ráðin.“
„Ætlar þú kannski að biðja
mig að fara til þín sem ráðs-
konu?“ sagði Monika glettin.
„Nei, ónei,“ sagði Gísli og
var jafnalvarlegur og áður. „En
ráða vil ég þig sem ráðskonu,
þó að ekki sé það til mín. Ég
veit, að þú ert dugnaðarmann-
eskja, jafnt úti sem inni, og
natin við sjúklinga, enda orðin
vön hjúkrun.“
„Mér er nú allt annað í
huga,“ sagði Monika, „heldur
en að fara að ráða mig til
hjúkrunar, úr því að ég þá ekki
beinlínis ákvað að leggja þau
störf fyrir mig.“
„Hlustaðu nú á mig,“ sagði
Gísli. „Það eru mestu vandræði
hjá gömlu hjónunum á Merki-
gili. Sigurbjörg liggur í rúminu
og er mesti aumingi, enda
orðin níutíu og þriggja ára, og
Egill er ósköp lasinn og ekki til
neinnar vinnu, þolir hvorki
gang né gust, hvað þá nokkurt
venjulegt erfiði, er líka bráðum
áttræður. Hún er hjá þeim
núna, hún Lilja, systir mín, en
hún er bundin og getur ekki
verið þarna degi lengur.“
Það var ekki örgrannt, að
Moniku hnykkti við, þegar
Gísli nefndi Merkigil. Og nú
sagði hún hvatlega:
„Þú heldur þó víst ekki, að
ég, sem er komin hingað með
allt mitt dót og á leið suður í
Reykjavík, fari að hætta við
suðurferðina og láti drífa mig
fram fyrir þetta alræmda gil,
alla leið upp í Austurdal? Ég
held það verði nú ekkert af
því!“
Bókaútgáfan Sæmundur hefur endurútgefið bókina Konan í dalnum og dæturnar sjö.
Bók þessi kom út árið 1954 og var söguhetjan, Monika Helgadóttir, þá 53 ára að aldri. Hún
bjó þá, og um áratugi þar á eftir, ekkja á sínu afskekkta býli með sjö dætrum og einkasyni.
Í sex áratugi hefur bókin Konan í dalnum og dæturnar sjö verið umsetin í fornbókaverslu-
num og á bókasöfnum. Hún nýtur nú meiri vinsælda en nokkur önnur bók Guðmundar G.
Hagalín. Í meðförum Hagalíns verður Monika á Merkigili ekki aðeins barnmörg húsfreyja í
sveit heldur táknmynd íslensku sveitakonunnar, konunnar sem borið hefur þjóð sína í
móðurörmum og umvafið hana með fórnfýsi og kærleika öld eftir öld. Feykir grípur hér
ofan í bókina þar sem segir frá komu Moniku að Merkigili sem átti eftir að verða heimili
hennar til æviloka.
Gísli þagði andartak, en
sagði síðan:
„Ég býst nú frekast við, að
gamla konan eigi skammt eftir,
eins og aum og hún er orðin.
Einn vetur er ekki mikið af
mannsævinni, og þú kemst
þinna ferða, Monika mín, þó að
þú vinnir þetta líknarverk. Þú
getur þó alltaf farið til Reykja-
víkur næsta haust, ef þú verður
þá sama sinnis og nú. Ég skora
á þig, treysti hjartagæzku þinni
og manndómi.“
Monika skellti í góm og ók
sér í sæti sínu:
„Það er naumast þú særir
mann. Það hlýtur að vera ein-
hverja aðra manneskju um að
ræða í öllum Skagafirði.“
Gísli hristi höfuðið:
„Ekki mér vitanlega. Ekki
nema þá kannski einhvern
ungling, sem ekki er fær um
það jöfnum höndum að sjá um
heimili, hjúkra sjúkum og
annast gegningar svo, að í lagi
sé. Þú ert tilvalin í þetta og um
leið sú einasta, sem getur
komið til mála.“
Monika var öll að meyrna.
Sannarlega voru gömlu hjónin
á Merkigili hjálpar þurfi, og víst
áttu hún að geta komizt ferða
sinna til Reykjavíkur, þó að
ekki yrði úr því, að hún færi í
þetta sinn. En það hafði gripið
hana bæði uggur og þrjózka.
Henni fannst eins og einhver
dularöfl væru þarna að verki.
Það var nú sök sér, að Jóhannes
tæki sig til og skrifaði henni, en
að hún lét dragast að svara
honum, þar sem hún var
ákveðin í að neita, – og svo
kom til þessi þrábeiðni Gísla …
Og Monika hnykkti til höfði og
sagði:
„Ég er svo steinhissa á
þessum þráa í þér, maður. Ég
veit ekki, hvers konar vitleysa
þetta er, – ég, sem er að bíða hér
eftir skipinu!“
Gísli brosti og klappaði
Moniku:
„Ég veit það, að ég er frekur,
en það er ekki mín vegna, enda
sé ég, að þú munir ætla að gera
þetta. Þú ert hjálpfús og
brjóstgóð í þér, átt heldur ekki
langt að sækja það, og þetta er
sannkallað miskunnarverk. Þú
skalt fá tuttugu og fimm krónur
á mánuði, eins og mundi vera
borgað í vist fyrir sunnan, og
ekki þarf að efast um skilvísina,
þar sem hann Egill er annars
vegar.“
„Kaup – heldurðu virkilega,
að þú getir boðið mér það kaup
að ég hefi ekki meira fyrir
sunnan? Nei, ef ég geri þetta, þá
er það til að hjálpa gömlu
hjónunum, en ekki fyrir
kaupið.“ Monika hafði ekki fyrr
sleppt orðinu en hún heyrði að
sér hvíslað:
„Eru það nú bara gömlu
hjónin, sem þú ert að hugsa
um? Hvers vegna dróst það
alltaf hjá þér að senda honum
Jóhannesi afsvarið?“
Og Monika spratt á fætur,
ákveðin í að taka nú af skarið
og þverneita bón Gísla. En Gísli
stóð einnig upp, klappaði henni
á herðarnar og þreif hönd
hennar:
„Þakka þér hjartanlega fyrir,
Monika mín. Þig mun ekki iðra
þessarar ákvörðunar. Það er ég
viss um.“
Og í stað neitunarinnar
komu þessi orð út yfir varir
Moniku:.
„Nú, jæja þá! Svo vitlaust
sem mér finnst það, þá er bezt
ég láti undan. Það er eins og þar
stendur: Sá hefur fram sitt mál
sem þrástur er.“
Enginn veit
sína ævina
Monika bjóst í skyndi, hafði
fataskipti og lét niður í hnakk-
tösku og pokasnigil það, sem
henni var nauðsynlegast, en
skildi annars dót sitt eftir. Svo
riðu þau af stað. Þau fóru greitt,
því að Gísli hafði haft með sér
að heiman fjóra duglega og
Konan í dalnum og dæturnar sjö
Húsfreyja á Merkigili
– Örlög ráða
Bókarkápa Konunnar í dalnum. MYND: FEYKIR
Hjónin Jóhannes og Monika með einkasoninn Skarphéðinn. MYNDIR ÚR EINKASAFNI
6 29/2017