Feykir - 26.07.2017, Síða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
29
TBL
26. júlí 2017 37. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Það var ljómandi sumarveður á Norðurlandi vestra
um helgina og ófáir sem nutu blíðunnar léttklæddir
og með sumarbros á vör.
Á laugardaginn fór hitinn í um 25 gráður og þá
var ljósmyndari Feykis á vappi með myndavélina og
fangaði nokkur augnablik í sólinni á Króknum. /ÓAB
Siðbót í samtíð
AÐSENT :: Hólahátíð 11 - 13. ágúst
Svipmyndir frá Sauðárkróki
Sumarið dúkkaði upp
500 ára siðbótarafmælis Marteins Lúthers verður
minnst með óvenjulega veglegum hætti í ár á Hólahátíð
dagana 11. - 13. ágúst.
Hátíðin hefst föstudaginn 11. ágúst með listgjörningnum
Tesur á Hólahátíð sem hefst kl. 17:00 í Auðunarstofu. Þar
munu myndlistakonurnar Guðrún Kristjánsdóttir og Ólöf Nordal
kynna gjörninginn. Síðan er gengið í Nýjabæ og Hóladómkirkju.
Gestum verður boðið að semja og teikna sínar eigin tesur sem
prentaðar verða með háprenti á pappír og síðan neglir hver og
einn sína tesu á tréhurð í kirkjunni. Myndlistargjörningurinn fer
fram alla helgina fram eftir kvöldi. Verkið á að minna á
gjörninginn þegar Lúther negldi tesurnar 95 á kirkjudyr í
Wittenberg og markaði þannig upphaf siðbótar í Evrópu.
Laugardaginn 12. ágúst verður pílagrímaganga eftir Hallgríms-
veginum frá Gröf á Höfðaströnd heim að Hólum. Leiðin er 22
km á jafnsléttu. Bílferðir verða í boði fyrir og eftir göngu frá
Hólum og er hægt að panta þær hjá sr. Gylfa í síma 895 5550.
Kl. 16:00, eða að göngu lokinni, verður sérstök athöfn sem
kölluð er endurnýjun skírnarinnar og eftir hana er altarisganga í
Hóladómkirkju. Þetta er einföld og falleg athöfn sem höfðar til
persónulegrar upplifunar hvers og eins. Öllum er velkomið að
taka þátt í þeirri athöfn, hvort sem þeir hafa gengið píla-
grímagönguna eða ekki.
Kl. 19:00 er síðan kvöldverður Undir Byrðunni í anda hátíð-
arinnar.
Sunnudaginn 13. ágúst kl. 11:00 verður flutt tón-leikhús um
tvær siðbótarkonur, þær Elísabetu Cruciger og Halldóru
Guðbrandsdóttur í Hóladómkirkju. Elísabet var nunna sem
snerist til hins nýja siðar og var eitt af fyrstu sálmaskáldum
siðbótarinnar og samstarfskona Marteins Lúthers. Hún átti
sálm í fyrstu sálmabók Lúthers og í fyrstu útgáfu Grallarans,
messubók Guðbrands Þorlákssonar, biskups á Hólum. Hall-
dóra var dóttir Guðbrands biskups og var fóstra Hallgríms
Péturssonar og bústýra á Hólum með leyfi konungs í forföllum
föður sins. Það eru þær Diljá Sigursveinsdóttir og Guðný Einars-
dóttir sem hafa sett leikhúsið saman með tónlist frá barokk-
tímanum í Þýskalandi og grallarasöng frá siðbótartímanum á
Íslandi. Það er ReykjavíkBarokk sem flytur verkið, en fram koma
tólf hljóðfæraleikarar, fjórir söngvarar og leikkona auk kirkju-
kóra Hofsóss- og Hólaprestakalls.
Kl. 14:00 á sunnudeginum er hátíðarmessa í Hóladómkirkju
með þátttöku ReykjavíkBarokk. Eftir messuna er að venju veg-
legt veislukaffi í Hólaskóla, sem öllum kirkjugestum er boðið í.
Kl. 16:30 er hátíðasamkoma í Hóladómkirkju. ReykjavíkBarokk
sér um tónlist og hátíðarræðu flytur sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir,
fyrsta konan sem hlaut prestsvígslu á Íslandi.
/ SR. SOLVEIG LÁRA GUÐMUNDSDÓTTIR
Þú færð
MÚMÍN bollana
hjá okkur!
30
1987-2017
Sími: 453 8245 I bakkaflot@bakkaflot.is I www.riverrafting.isHlökkum til að sjá þig!
Við eigum afmæli og í tilefni af 30 árunum gefum við 30% afslátt
í River Rafting eða
Kayjak ferð
Vertu í afmælisskapi með okkur og skelltu þér í River Rafting í Vestari og Austari Jökulsár eða ferð í kayak niður Svartá (fyrir 6 manns eða fleiri).