Feykir - 27.08.2017, Blaðsíða 1
36
TBL
27. september 2017
37. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
„
BLS. 6–7
BLS. 11
Þórhildur María Jónsdóttir
er matgæðingur Feykis
Hægelduð
kiðlingaöxl og
kjúklingasalat
BLS. 9
Guðmundur Paul Scheel-
Jónsson
„Ættfræðin er
þannig að hún
endar aldrei“
Gunnar Bragi Sveinsson
„Getum ekki verið
stikkfrí þegar al-
þjóðalög eru brotin“
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Velkomin til Pacta lögmanna
& 440 7900 pacta@pacta.is
Nýttu þér
netverslun
Skoðaðu vöruúrvalið
www.lyfja.is
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Þú hringir í síma 540 2700
Þessa fallegu mynd tók Róbert Daníel
Jónsson á Blönduósi um kvöld-
matarleytið 24. september af kirkju
bæjarins innan í tvöföldum regnboga.
Byggingarframkvæmdir Blönduós-
kirkju, hinnar nýrri, hófust árið 1982
og var hún vígð 1. maí 1993.
Dr. Maggi Jónsson teiknaði og hannaði
kirkjuna, sótti hugmyndir að útlitinu í
fjöllin og landslagið í umhverfinu. Á nat.
is segir að kirkjan taki 250 manns í sæti
og er aðstaða fyrir safnaðarstarf í
kjallaranum. Munir gömlu kirkjunnar
prýða hina nýju, s.s. altaristaflan
Emmausgangan eftir Jóhannes Kjarval,
og skírnarfonturinn sem Ríkharður
Jónsson skar út. Hann er gjöf frá
Guðbrandi Ísberg, fyrrum sýslumanni til
minningar um konu hans. Orgelið var
vígt um leið og kirkjan, fjögurra radda af
Marcusen og søn D gerð./PF
Kirkjan og regnboginn
Jarðbogi nefnist regnbogi sem
nær báðum endum til jarðar
Holræsa- og stífluþjónusta
Bjóðum alhliða lagnahreinsun
og lagnamyndun
Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958.
Sími 452 2958 | Oddagata 18 | 545 Skagaströnd | gamar.is | vilhelm@gamar.is
Hanna og smíða hleðslustöð fyrir rafmagnsreiðhjól
FNV í Evrópuverkefni
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra tekur
þátt í Evrópuverkefninu Easy Sharging
Green Driving ásamt fjórum öðrum
skólum frá Noregi, Belgíu, Tékklandi og
Þýskalandi. Í síðustu viku var komið að
FNV að halda utan um sameiginlegan
fund allra skólanna.
„Dagana 20. til 23. september komu 20
þátttakendur á Sauðárkrók frá skólunum,
bæði kennarar og nemendur, til að vinna
áfram að hinu sameiginlega verkefni sem
gengur út á það að hanna og smíða hleðslu-
stöð fyrir rafmagnsreiðhjól.
Orkan sem nota á, skal vera „græn“ og
þess vegna var unnið með vindmyllur
og sólarsellur til þess að framleiða hana
fyrir hjólin. Björn Sighvatz, kennari
málmiðngreina, segir kostinn við þá
útfærslu þann að stöðin getur staðið
sjálfstæð óháð utanaðkomandi raf-
kerfum. „Svona stöðvar geta gefið ýmsa
fleiri möguleika en að hlaða hjólin. Þær
gætu t.d. komið sér vel fyrir
rafmagnslausa snjalltækjanotendur,“
segir Björn. Fyrir utan að leysa þau
verkefni sem upp koma við útfærslur og
smíði þá standa gestgjafar hvers fundar
fyrir kynningu á mannlífi, menningu og
atvinnulífi landsins fyrir gestina.
Að þessu sinni var farið í Blöndustöð
sem framleiðir mikið afl og í Stein-
ullarverksmiðjuna á Sauðárkróki sem
notar mikið afl og framleiðir hágæða-
vöru. Næsti sameiginlegi fundur verður
í Belgíu og svo lýkur verkefninu í
Steinfurt í Þýskalandi. /PF