Feykir - 27.08.2017, Blaðsíða 11
bringur
2 pokar ruccola (klettasalat)
500 g heilhveitispaghettí
150 g furuhnetur
1 Mexíkóostur
1 sítróna
2-3 rif af hvítlauk
250 g litlir tómatar
2 msk. steinselja, fersk
olífuolía
svartur pipar og salt
Aðferð: Steikið kjúklinginn, kælið
og skerið í bita. Spaghetti soðið og
kælt. Olífuolía, hvítlaukur, stein-
selja, sítrónubörkur, salt og pipar
sett saman í mixer og blandað eða
allt saxað mjög smátt og sett út í
olíuna. Tómatarnir skornir í tvennt
og Mexíkóosturinn í teninga.
Blandið saman spaghettí og kjúkl-
ingi, hellið olíunni út á og blandið
vel. Í lokin eru tómarar ostur og
klettasalat sett út í.
Þórhildur skorar á Sólborgu
Indiönu Guðjónsdóttur sem næsta
matgæðing.
Verði ykkur að góðu!
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Sandur, Svanur og Oddur.
Feykir spyr...
Hversu oft í
viku er fiskur
í matinn á
þínu heimili?
Spurt á Facebook
UMSJÓN frida@feykir.is
Einu sinni, svo restin
lambakjöt frá Stað.
Magnús Thorlacius
Alltaf fiskur á mánudögum
en mætti vera oftar.
Sigríður Gunnarsdóttir
Yfirleitt einu sinni, stundum
tvisvar. Börnin fá svo oftar
fisk í hádegismatinn í
skólanum.
Erla Einarsdóttir
Hægelduð kiðlingaöxl
og kjúklingasalat
Það er Þórhildur M. Jónsdóttir, matreiðslumeistari, sem ætlar að
leyfa okkur að kíkja í pottana hjá sér að þessu sinni. Þórhildur er
Skagfirðingur, úr Lýtingsstaðahreppnum, en starfar nú sem
umsjónarmaður Vörusmiðju hjá BioPol á Skagaströnd. „ Ég hef
mjög gaman af því að lesa matreiðslubækur og kaupi iðulega
matreiðslubækur á mínum ferðalögum erlendis sem minjagripi.
Hef gaman af því að borða góðan mat og helst ef einhver annar
eldar hann fyrir mig.
Bestu stundirnar eru þegar maður er með fjölskyldu og vinum
að borða góðan mat og tengir maður iðulega minningar við
ákveðin mat.
Það er alltaf spennandi að prufa rétti úr hráefni sem er ekki algengt
og ég var svo heppin að fá kiðlingakjöt frá Sigrúnu á Stórhóli um
daginn. Ég ákvað að hægelda það og er það alger snilld og mjög
einfalt,” segir Þórhildur.
RÉTTUR 1
Hægelduð kiðlingaöxl
1 kiðlingaöxl
1 laukur
4 gulrætur, miðlungsstórar
2-3 hvítlauksrif
2 greinar ferskt rósmarin
1 tsk. svartur pipar
1 tsk. salt
2 msk. tómatpurra
250 ml rauðvín
350 ml vatn
Aðferð: Kiðlingaöxlin er krydduð
með salti og pipar og er sett í
letipott ásamt grófskornu græn-
metinu, tómatpurru, rauðvíni og
vatni. Pottinum lokað og hann
settur inn í ofn á 120°C í 3-4 tíma
eftir stærð bitans. Gott er að ausa
soðinu yfir annað slagið á meðan
er verið að elda.
„Hér kemur önnur uppskrift sem
tengist góðum minningum með
vinkonum mínum en við fáum
okkur iðulega þetta salat þegar við
eyðum helgum saman.”
RÉTTUR2
Kjúklingasalat fyrir sex
1 meðalstór kjúklingur eða 4
Þórhildur María Jónsdóttir MYND ÚR EINKASAFNI
Tvisvar í viku.
Kristján Björn Snorrason
( MATGÆÐINGUR VIKUNNAR ) frida@feykir.is
er Þórhildur M. Jónsdóttir
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING
Krossgáta
Tilvitnun vikunnar
Vinur er sá sem veitir þér algjört frelsi til að
vera þú sjálfur. – Jim Morrison
36/2017 11
Ótrúlegt, en kannski satt..
Á Wikipediu segir að fyrstu umferðarljósin hafi verið sett upp í
London árið 1868 en í dag er þau að finna í flestum borgum heimsins.
Flest umferðarljós eru með perum í þremur litum, grænt, gult og
rautt, sem ætlað er að veita vegfarendum upplýsingar, eins og flestir
ættu að vita. Ótrúlegt, en kannski satt, þá eyðir hver manneskja sex
mánuðum að meðaltali í það að sitja á rauðu ljósi á sinni ævi.
Bóndinn / Vísnagátur Sigurðar Varðar
Fyrstu tvær hendingarnar segja
hvað bærinn heitir, þriðja lína
bóndinn og sú fjórða hver
faðirinn er.
Sjötti býr, þar landið liggur,
lágt við fjöru.
Syngjandi hann fagur flaug.
Faðirinn í efni smaug.