Feykir


Feykir - 27.08.2017, Blaðsíða 12

Feykir - 27.08.2017, Blaðsíða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 36 TBL 27. september 2017 37. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Árleg flúðasigling útvistarhóps FNV, niður Vestari-Jökulsá, var farin miðvikudaginn 13. september síðastliðinn. Að þessu sinni var farið með Viking Rafting en þeir hafa aðstöðu á Hafgrímsstöðum í Lýtingsstaðahreppi hinum forna. Á fésbókarsíðu FNV segir að 35 nemendur ásamt einum kennara hafi farið í leiðangurinn og fimm bátar ásamt fimm bátsstjórum hafi þurft í verkið. Vonbrigði dagsins voru þau að við klettinn sem ávallt er hoppað af út í ána, var komið skilti sem bannaði allt hopp af honum nema með leyfi jarðareigenda. Varð það til þess að enginn hoppaði, sem var miður því þetta átti að vera einn af hápunktum ferðarinnar. Þrátt fyrir þetta óvænta hoppbann var það glaður en þreyttur hópur sem skilaði af sér útbúnaði og hélt heim á leið eftir ævintýri dagsins. Lengri ferðasögu og fleiri myndir er hægt að sjá á FB síðu Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. /PF Útivistarhópur FNV Flúðasigling niður Vestari-Jökulsá MYNDIR: AF FACEBOOKSÍÐU FNV. FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER Stórsýning & skagfirsk gleði Reiðhöllin Svaðastaðir kl. 20:30 ::Graðhestaræktun Óla Bolla ::Bjórtölt - Lalli mætir! ::Riddarar Norðursins stjórna fjöldasöng ::Bestu skeiðreiðmenn landsins mæta Skeið með hefðbundnu sniði og eru vegleg verðlaun í boði. fyrir sigurvegarann, 2. og 3. sæti. Það ve rðu r ká t t í hö l l i nn i þe t ta kvö ld ! Höllin opnuð kl. 20:00 :: Miðaverð kr. 3.000.- LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER Laufskálarétt í Hjaltadal Gleði & gaman Stóðið rekið úr Kolbeinsdal til Laufskálaréttar upp úr kl. 11:30. Réttarstörf hefjast kl. 13:00 Ath. Þátttakendur við stóðrekstur úr Kolbeinsdal vinsamlegast mæti við Laufskálarétt eða við hesthúsið Ástungu kl. 10:00 (laugardagsmorgun) Rekstrarstjóri er Halldór Steingrímsson. Upplýsingar í síma 895 0920, Atli. Höfum gleðina í fyrirrúmi en hóflega noktun áfengis Laufskálaréttarball 2017 Laugardaginn 30. september kl. 23-03 Reiðhöllin Svaðastaðir Hljómsveitin Von ásamt frábærum söngvurum þeim Eyþóri Inga, Magna og Sölku Sól Miðaverð kr. 3.700.- forsala en 4.000 v. innganginn - Aldurstakmark 16 ár ATHUGIÐ ENGIN BJÓRSALA - Forsala aðgöngumiða hjá N1 á Skr. Feykir.is Ert þú búinn að kíkja til okkar?

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.