Feykir - 27.08.2017, Síða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
36
TBL
27. september 2017 37. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Árleg flúðasigling útvistarhóps FNV, niður
Vestari-Jökulsá, var farin miðvikudaginn 13.
september síðastliðinn. Að þessu sinni var farið
með Viking Rafting en þeir hafa aðstöðu á
Hafgrímsstöðum í Lýtingsstaðahreppi hinum
forna.
Á fésbókarsíðu FNV segir að 35 nemendur ásamt
einum kennara hafi farið í leiðangurinn og fimm
bátar ásamt fimm bátsstjórum hafi þurft í verkið.
Vonbrigði dagsins voru þau að við klettinn sem ávallt
er hoppað af út í ána, var komið skilti sem bannaði
allt hopp af honum nema með leyfi jarðareigenda.
Varð það til þess að enginn hoppaði, sem var miður
því þetta átti að vera einn af hápunktum ferðarinnar.
Þrátt fyrir þetta óvænta hoppbann var það glaður en
þreyttur hópur sem skilaði af sér útbúnaði og hélt
heim á leið eftir ævintýri dagsins.
Lengri ferðasögu og fleiri myndir er hægt að sjá á FB
síðu Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. /PF
Útivistarhópur FNV
Flúðasigling niður
Vestari-Jökulsá
MYNDIR: AF FACEBOOKSÍÐU FNV.
FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER
Stórsýning & skagfirsk gleði
Reiðhöllin Svaðastaðir kl. 20:30
::Graðhestaræktun Óla Bolla
::Bjórtölt - Lalli mætir!
::Riddarar Norðursins stjórna fjöldasöng
::Bestu skeiðreiðmenn landsins mæta
Skeið með hefðbundnu sniði og eru vegleg
verðlaun í boði. fyrir sigurvegarann, 2. og 3. sæti.
Það ve rðu r ká t t í hö l l i nn i þe t ta kvö ld !
Höllin opnuð kl. 20:00 :: Miðaverð kr. 3.000.-
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER
Laufskálarétt í Hjaltadal
Gleði & gaman
Stóðið rekið úr Kolbeinsdal til Laufskálaréttar upp úr kl. 11:30.
Réttarstörf hefjast kl. 13:00 Ath. Þátttakendur við stóðrekstur
úr Kolbeinsdal vinsamlegast mæti við Laufskálarétt eða við
hesthúsið Ástungu kl. 10:00 (laugardagsmorgun)
Rekstrarstjóri er Halldór Steingrímsson. Upplýsingar í síma 895 0920, Atli.
Höfum gleðina í fyrirrúmi en hóflega noktun áfengis
Laufskálaréttarball 2017
Laugardaginn 30. september kl. 23-03
Reiðhöllin Svaðastaðir
Hljómsveitin Von
ásamt frábærum söngvurum þeim
Eyþóri Inga, Magna og Sölku Sól
Miðaverð kr. 3.700.- forsala en 4.000 v. innganginn - Aldurstakmark 16 ár
ATHUGIÐ ENGIN BJÓRSALA - Forsala aðgöngumiða hjá N1 á Skr.
Feykir.is
Ert þú búinn
að kíkja til okkar?