Feykir - 27.08.2017, Blaðsíða 5
Meistaraflokkur kvenna
Jón Stefán næsti þjálfari
Stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls hefur gengið frá
ráðningu Jóns Stefáns Jónssonar sem þjálfara meistaraflokks
kvenna næsta tímabil. Jón Stefán var, árið 2014, ráðinn þjálf-
ari 1. deildarliðs Tindastóls en sú ráðning gekk til baka.
Jón Stefán kemur frá Val úr Reykjavík þar sem hann var í
þjálfarateymi meistaraflokks kvenna og yngri flokka. Stelpurnar
féllu úr 1. deild í sumar en að sögn Guðjóns Arnar Jóhannssonar,
stjórnarmanns, er það ekkert leyndarmál að stjórnin gerir þá
kröfu til stelpnanna og Jóns að vinna sig aftur upp í 1. deild. /PF
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.isF
Körfubolti
Fréttir úr stássstofunni á Sjávarborg
Helgi Rafn skrifaði undir
Enn berast fréttir úr
stássstofunni á Sjávarborg
en þar skrifaði kapteinninn
sjálfur, Helgi Rafn Viggós-
son, undir tveggja ára
samning við körfuboltadeild
Tindastóls á dögunum. Vart
þarf að kynna Helga Rafn,
sem hefur verið
burðarstykkið í liði Stólanna
í áraraðir.
Þó Helgi teljist ekki lengur
til unglingadeildarinnar í
liðinu, gefur hann þeim yngri
ekkert eftir hvað baráttu
varðar og kappsemi. Hann
hefur verið fyrirliði svo lengi
sem menn muna og nær með
áræðni og einbeitingu að
berja liðið saman á ögur-
stundum svo ekki sé talað um
stemninguna í áhorfendur.
Helgi gefur lítið fyrir það
þegar hann er spurður hvort
gamli kallinn sé ekki hræddur
um að yngri strákarnir ýti
honum út úr liðinu. „Nei, nei,
nei! Þeir eiga ekki séns í mig
þessir guttar,“ segir Helgi og
hlær. /PF
Knattspyrna
Sigur í rennblautum leik á Seyðisfirði
Knattspyrnulið Tindastóls
endaði tímabilið í 2. deildinni
með blautum sigri á
Seyðisfirði sl. laugardag er
Huginn var heimsóttur.
Vallaraðstæður voru ansi
slæmar þar sem völlurinn var
rennandi blautur og í raun
hættulegur. Það fór þó þannig
að sjö mörk voru skoruð og
fóru Stólarnir með sigur af
hólmi og öll stigin heim.
Lokastaðan Huginn 2,
Tindastóll 4.
Tindastóll endaði í 6. sæti 2.
deildar með 34 stig, jafnmörg
og Huginn og Afturelding sem
voru með betra markahlutfall.
Virkilega góður árangur hjá
strákunum og ekki síður
þjálfaranum, Stefáni Arnari
Ómarssyni, sem kom inn á
miðju sumri eftir að stjórn
deildarinnar lét þá Stephen
Walmsley og Cristofer
Harrington fara.
Stefán Arnar segist aðspurður
ekki viss með galdurinn við
viðsnúningi liðsins. „Veit ekki
með galdur, en þetta var
auðvitað erfitt verk í byrjun.
Sterkir erlendir leikmenn
yfirgáfu liðið um það leyti sem
ég tók við. Við fengum til okkar
þrjá erlenda leikmenn en tveir
af þeim urðu okkur gríðarleg
styrking. Einnig komu til baka
nokkrir gamlir Tindastóls-
leikmenn og einn af þeim,
Bjarki, sem var aðstoðarþjálfari
ásamt því að koma með sína ró
og skipulag inn á völlinn. Þessi
viðsnúningur byrjar í raun í
þriðja leiknum eftir að ég tek
við. Bjarki kominn inn í þetta,
nýir útlendingar og við byrjum
að spila á okkar styrkleika og
sama upplegg og í fyrra, sem
skilaði okkur 17 sigurleikjum í
röð. Það hélt áfram þarna og
vorum við taplausir í síðustu 7
leikjum,“ segir Stefán en liðið
vann sex sigra og gerði eitt
jafntefli.
Þú varst fenginn til að taka við
þjálfun með stuttum fyrirvara
í sumar. Var það erfið
ákvörðun að taka liðið að þér?
„Já og nei. Ég er búsettur í
vinabæ Skagafjarðar í Svíþjóð
og bara sú staðreynd gerði
ákvörðunina erfiðari en ef ég
byggi á Íslandi. Ég á tvo litla
stráka og Guðrún
kærastan mín er að
vinna á spítalanum í
Kristianstad. Þurfti því
að púsla mörgum
hlutum saman með
stuttum fyrirvara.
Guðrún tók ekki annað
í mál en ég færi og tæki
liðið að mér, mamma og
pabbi fóru líka út til
Svíþjóðar og hjálpuðu
okkur, án þess stuðnings
hefði ég aldrei getað
tekið þetta að mér.“
Hvað ertu ánægðastur
með eftir sumarið? „Að liðið
skyldi snúa bökum saman og
klára þetta svona flott. Halda
sér uppi og enda svo í 4.-6.
sæti, aðeins fimm stigum frá 2.
sætinu. Einnig er gaman að
vera það lið sem skoraði flest
mörk í síðustu sjö leikjunum.“
Muntu taka að þér þjálfun
liðsins næsta tímabil ef það
býðst?
„Ég sé ekki fram á það enda
ómögulegt fyrir mig að vera á
Króknum næsta vetur og
þjálfarinn þarf að vera með á
undirbúningstímabilinu. Veit
að liðið á eftir að gera gott mót
ef við höldum flestum sem
enduðu þetta tímabil. Er samt
alltaf tilbúinn á einhvern hátt ef
klúbburinn vill mína hjálp.
Áfram Tindastóll!“. /PF
Stefán Arnar var sóttur til Svíþjóðar til að þjálfa
Tindastól MYND: ÓAB.
Formaðurinn og kapteinninn, Stefán Jónsson og Helgi Rafn Viggósson í stáss-
stofunni á Sjávarborg.
Á dögunum var haldið lokamót
Norðurlandsmótaraðarinnar í
golfi sem fór fram á Jaðarsvelli
á Akureyri. Þar varð Hákon
Ingi Rafnsson í 2. sæti í flokki
15-17 ára og vann þar með
heildarstigakeppnina og
Norðurlandsmeistaratitilinn í
sínum aldursflokki. Hákon Ingi
er Íþróttagarpur Feykis þessa
vikuna.
Hákon Ingi er fæddur árið 2001,
sonur Rafns Inga Rafnssonar og
Árnýjar Lilju Árnadóttur og hefur
alla sína tíð búið á Sauðárkróki.
Íþróttagreinar Hákonar eru golf og
körfubolti
Íþróttafélag/félög: -Golfklúbbur
Sauðárkróks og Tindastóll
Helstu íþróttaafrek: -Það verður
nú að vera þegar ég spilaði á
parinu (71) í stigamóti á Íslands-
bankamótaröðinni í Kópavogi/
Garðabæ.
Skemmtilegasta augnablikið:
-Þegar ég fór holu í höggi.
Neyðarlegasta atvikið: -Þegar
ég var spurður hvernig höggið var
þegar ég fór holu í höggi en höggið
var skelfilegt þótt það hafi endað
vel.
Einhver sérviska eða hjátrú? -Ég
á eina „Lukkuhúfu“ og alltaf þegar
hún er á hausnum þá spila ég vel!
Uppáhalds íþróttamaður? -Seve
Ballesteros.
Ef þú mættir velja þér
andstæðing, hver myndi það
vera og í hvaða grein mynduð
þið spreyta ykkur? -Úff, erfið
spurning! En ég held ég verði að
velja Micheal Jordan í golfi og
spila holukeppni, vegna þess að
ég veit að hann er mjög góður.
Hvernig myndir þú lýsa þeirri
rimmu? -Hann myndi hafa
yfirhöndina af teig en ég myndi
rústa honum þegar nær kemur
flötinni. Hann myndi byrja sterkar
og ætti alltaf eina eða tvær holur
að 15. holu en þá myndi ég gefa í
og vinna hann á 18. holu.
Helsta afrek fyrir utan íþrótt-
irnar? -Að búa til súkkulaði!
Lífsmottó: -Súkkulaði er svarið,
hverjum er ekki sama hver
spurningin er?
Helsta fyrirmynd í lífinu:
-Foreldrar mínir hafa hjálpað
mikið í því að koma mér þangað
sem ég er núna þannig ég verð nú
að segja að þau séu svona helstu
fyrirmyndirnar.
Hvað er verið að gera þessa
dagana? -Bara að læra í FNV.
Fullt af körfuboltaæfingum
og ég er í unglingastarfi hjá
björgunarsveitinni, en svo reyni ég
líka að komast í golf og æfa mig.
Hvað er framundan? Skóli, skóli,
skóli, karfa, björgunarsveit og golf.
Hákon Ingi Rafnsson / golf
Skemmtilegasta augna-
blikið að fara holu í höggi
( ÍÞRÓTTAGARPURINN ) palli@nyprent.is
Hákon Ingi. MYND ...
36/2017 5